09.05.1955
Sameinað þing: 57. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1653 í B-deild Alþingistíðinda. (3129)

Almennar stjórnmálaumræður

Emil Jónsson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Samkvæmt þingsköpum á eldhúsdagsumræða að fara fram í sambandi við 1. umr. fjárlaga. Hin síðari ár hefur þessu oft verið frestað þangað til fjárlögin hafa verið afgreidd við 3. umr., enda hafa þá þinglok oftast verið nærri. En ástæðan til þessarar frestunar hefur þá verið sú, að betur hefur sézt undir þinglokin, að hverju ríkisstj. stefndi með afgreiðslu hinna þýðingarmestu mála.

Í þetta sinn var vitað, að þinginu mundi verða lengi fram haldið, eftír að lokið var afgreiðslu fjárlaganna, og þá eins og vant er afgreiðslu stóru. málanna frestað þangað til. Ríkisstj. hafði lýst því yfir, að hún mundi nú á þessu þingi leggja fram frv. um varanlega lausn á því öngþveiti, sem ríkt hefur í húsnæðismálunum. Enn fremur var vitað, að draga mundi til nokkurra átaka um kaup og kjör verkamanna á þessu tímabili og að þingið mundi vart verða sent heim fyrr en sæist fyrir endann á þeim deilum. Þótti því rétt, þar sem hér var um tvö mjög stór mál að ræða og miklu skipti, hvernig ríkisstj. og stuðningslið hennar stæðu að lausn þeirra, að fresta eldhúsdagsumræðunum þangað til séð yrði fyrir endann á þessum málum báðum, og því fara þær nú fram síðar en nokkru sinni áður, síðustu daga þings.

Ég get ekki stillt mig um, áður en að þessum málum verður vikið, að minnast hér í upphafi nokkuð á fjárlagaafgreiðslu síðustu ára, því að í henni speglast frekar en í afgreiðslu nokkurs máls annars höfuðstjórnarstefnan.

Hæstv. fjmrh. lýsti því hér yfir í ræðu, sem hann flutti 28. febr. s.l., að tekjur ríkissjóðs s.l. ár hefðu numið hálfum milljarð króna og 37 milljónum þó betur. En það er 94 millj. kr. hærri upphæð en gert er ráð fyrir í fjárlögum þess árs. Á það var þó bent, þegar þessi fjárlög voru til umr., að tekjurnar væru þar allt of lágt áætlaðar, væri því hægt að gera eitt af tvennu, annaðhvort að áætla mjög ríflegar viðbótarupphæðir til nauðsynlegra framkvæmda eða að fella niður einhvern óvinsælan skattinn eða tollinn, sem tekinn er af landsfólkinu. Hvorugt þetta var þó gert, heldur höfðinu barið við steininn og fullyrt, að ekki væri varlegt að áætla tekjurnar hærri. Ekki hafði þó reynsla ársins þar á undan verið slík, að hún gæfi tilefni til þessarar varfærni. Umframtekjur ársins 1953 urðu nefnilega nálega hinar sömu og s.l. ár eða lítið eitt undir 100 millj. kr. Sumir kunna nú að telja, að það sé hin æðsta fjármálaspeki að tryggja afkomu ríkissjóðsins á þennan hátt, með því að áætla tekjur hans svo óhóflega lágar, að þær fari 21% fram úr hinum mjög svo myndarlegu upphæðum fjárlaganna, og hafa skatta og tolla, sem á almenning eru lagðir, tilsvarandi óþarflega háa. En á því máli eru þó vissulega tvær hliðar. Önnur, sem veit að ríkissjóðnum, sú að geta gefið ríkisstj. tækifæri til að inna af höndum ýmsar greiðslur umfram það, sem fjárlög ákveða, og það gefur verið ánægjulegt fyrir ríkisstj. og skjólstæðinga hennar. Hin hliðin snýr aftur á móti að skattþegnunum, og hún er sannarlega ekki eins ánægjuleg, þar sem nú eru teknar af almenningi svo háar upphæðir í sköttum og tollum, að naumast verður eftir nægilegt til framfæris, þó að tekjurnar í krónum talið séu orðnar æði myndarlegar. Þessi tekjuöflun ríkissjóðsins umfram fjárlög er nú orðin svo hroðaleg og tillitslaus við hagsmuni almennings, að þangað má rekja eina aðalorsökina til þess, að launastéttirnar hafa orðið að risa upp til þess að fá kjör sín bætt með hækkuðu kaupgjaldi, sem þó hefur ekki tekizt nema með langvarandi verkfalli og miklum fórnum, sem um leið hafa orðið framleiðslustarfsemi þjóðarinnar til stórhnekkis.

Einn uppáhaldsskattur ríkisstj. heitir söluskattur. Hann er lagður á nálega alla vörusölu og þjónustu í landinu og stundum marglagður á sömu vöruna. Hann var á sínum tíma tekinn upp til að komast hjá gengislækkun. Þegar gengislækkunarleiðin þrátt fyrir það var valin 1950, hefði þessi skattur eðli málsins samkvæmt átt að leggjast niður. En honum var þá haldið, og honum er enn haldið. Þessi skattur gefur ríkissjóði um 100 milljónir kr. á ári eða svipaða upphæð og umframtekjurnar nema. Það virðist því ekki út í bláinn, þegar lagt hefur verið til þing eftir þing, að söluskatturinn verði felldur niður. En það hefur aldrei fengizt gert. Hverju mundi það þá nema fyrir almenning í landinu, ef þessi skattur yrði felldur niður? Maður getur gert sér svolitla hugmynd um þetta með eftirfarandi dæmi:

Launþegasamtökin í landinu eða mjög verulegur hluti þeirra hefur nú staðið í 6 vikna verkfalli. Kauphækkun sú, sem náðist með því, nemur yfirleitt um 10%. Launþegar í Alþýðusambandi Íslands munu vera um 27 þús. talsins samtals. Ef þeim öllum eru gerð meðallaun 30 þús. kr. á ári, sem ég tel mjög sómasamlega áætlað, þar sem þarna er bæði um konur og unglinga að ræða, nemur heildarlaunagreiðslan til allra þessara 27 þús. manna um 800 millj. kr. á ári. Ef gert er nú ráð fyrir, að þeir fái allir 10% hækkun, eins og fengizt hefur fram í verkfallinu, þá mundi það nema 80 millj. kr. eða æði miklu lægri upphæð en söluskatturinn einn nemur. Þannig var sú hliðin, sem að verkalýðnum snýr. Og hvort mundi hafa orðið affarasælla fyrir útflutningsatvinnuvegi landsins, skulum við segja, að afnema söluskattinn eða hækka allt kaupgjald fyrst um 10%, að viðbættum 3% í orlof, veikindi og atvinnuleysistryggingu, og taka síðan á sig þá hækkun vísitölu, sem kauphækkunin er talin munu leiða af sér eða um 11–12 vísitölustig, sem væntanlega nemur þá ekki staðar við þá hækkun?

Í sambandi við þessa skattpíningu ríkissjóðs má einnig geta þess, að ríkisstj. hefur horft upp á og samþykkt og meira að segja beitt sér fyrir ýmsum hækkunum, sem hún hefði átt að geta komið í veg fyrir, svo sem hækkun á rafmagni, hækkun vaxta og margt fleira, en verð á rafmagni í heildsölu frá virkjunum hefur hækkað stórkostlega að undanförnu, og ríkisstj. hefur beinlínis beitt sér fyrir almennri vaxtahækkun í landinu. Hér við bætist svo loks afnám laganna um hámarksálagningu, sem einnig er verk þessara stjórnarflokka, sem valdið hefur stórkostlegu misræmi, en þó yfirleitt hækkun álagningar og verðiags, eins og hinar fábrotnu skýrslur verðgæzlustjóra sýna.

Allt þetta hefur orðið til þess að ýta undir hina almennu verðhækkun í landinu, sem síðan hefur kallað á kauphækkun hjá verkafólki, til þess að það á þann hátt gæti freistað að jafna metin. Þáltill. um lækkun verðlags, sem borin hefur verið fram af hálfu Alþfl. í upphafi þessa þings, hefur verið svæfð, hún hefur ekki fengizt rædd fyrr en nú síðustu daga þingsins, og þá er henni vísað frá á venjulegan hátt.

Ég tel engan vafa á því, að ef ríkisstj. hefði viljað, hefði hún getað unnið á skynsamlegan og skipulagsbundinn hátt að því að halda verðlaginu niðri, og að það hefði orðið affarasælla en sú verðþensla, sem ríkisstj. nú beinlínis vinnur að markvisst, að því er virðist, og að sú stefna hefði orðið affarasælli bæði fyrir vinnandi fólk í landinu og fyrir atvinnurekendur. Hinu er ekki hægt að neita, að hæstv. ríkisstj. hefur náð mjög merkilegum árangri í þessari viðleitni sinni til að hækka verðlagið, því að Íslendingar munu nú eiga heimsmet í dýrtíðaraukningu, og er þá ekki alllítið sagt.

Svarið, sem oftast er á reiðum höndum, þegar að þessu er víkið, er venjulegast þetta: Hér gengur allt vel, allir hafa nóg að gera, afkoma manna þar af leiðandi góð, og þetta er aðeins nöldur manna, sem eitthvað eru að reyna að finna að, af því að þeir eru í stjórnarandstöðu, en ekki að hér sé um raunveruleg vandkvæði að ræða. En málið er, því miður vil ég segja, ekki svona einfalt. Atvinnulífið á íslandi í dag er sjúkt. Það er engu líkara en hitasóttarsjúklingi. Verulegur hluti vinnandi manna hér er að vinna við annarleg störf, sem ekki heyra til íslenzku atvinnulífi. Þessi störf eru óviss og geta hvenær sem er dregizt saman og jafnvel orðið að engu. Sjávarútvegurinn er rekinn með styrkjum, beinum og óbeinum, svo að skiptir tugum milljóna króna, sem komast sennilega nú yfir 1110 millj. árlega. Landbúnaðurinn á í vök að verjast og er þó með verðlag á sínum framleiðsluvörum, sem sennilega á óvíða sinn líka í heiminum. En það, sem sker úr um sjúkdómseinkennin, er hin öra fjárfestingarstarfsemi og kaup af öllu tagi í villtu kapphlaupi við verðbólguna. Allt vilja menn heldur eiga en peninga. Og hvað veldur þessu? Því er auðsvarað. Það er hin öra hækkun verðlagsins í landinu og hirðuleysi ríkisstj. um að halda því niðri.

Vísitala framfærslukostnaðar hefur hækkað um 62% síðan núverandi stjórnarflokkar tóku við völdum 1950 og ákváðu hina miklu gengislækkun, sem þá var gerð, og enn er útlit fyrir, að vísitalan hækki um 11–12 stig, sem afleiðing af þeim kauphækkunum, sem nú hafa átt sér stað, og verður þá hækkunin 74%, miðað við árið 1950. Til samanburðar má geta þess, að í þau 5 ár, sem Alþfl. tók þátt í stjórnarstörfum, eða um jafnlangan tíma hækkaði vísitalan aðeins um 21% samtals. En þá var líka sýnd markviss viðleitni í að halda verðlagi í skefjum. Þessi hækkun nam að meðaltali um 4% á ári, sem þótti víssulega ærið, á mótí 14–15% á ári nú, sem er allt að því fjórum sinnum meira. Menn eru kannske nú búnir að gleyma því, svo að það er rétt að rifja það upp til gamans, að svo miklu leyti sem um gamanmál getur verið að ræða í þessu sambandi, að þegar gengislækkunarlögin voru sett, var því haldið fram af þeim, sem að því stóðu, að gengislækkunin mundi valda um 11% verðhækkun, þar til jafnvægi yrði náð. Sjá nú allir, hvernig það hefur staðizt.

Ég skal þá koma lítils háttar að byggingarmálunum.

Þegar núverandi ríkisstj. var mynduð, var því heitið, að eitt aðalverkefni hennar skyldi vera að skipa þeim málum varanlega í horf. Þetta hefur nú verið efnt, eftir að stjórnin hefur setið hátt á annað ár, á þann hátt, að ríkisstj. hefur í dag fengið samþ. frv. til laga um húsnæðismálastjórn, veðlán til íbúðabygginga o.fl. Frv. þetta hefur allmikið verið rætt í blöðum, svo að ég geng út frá, að efni þess sé hlustendum í meginatriðum kunnugt, og skal ég ekki fara nákvæmlega út í að rekja það. En nokkur atriði verður að minnast á.

Það er þá fyrst, að varanlegri skipan er ekki komið á þessi mál en það, að þau eru ekki hugsuð nema til 2 ára og fé til framkvæmda er miðað við það tímabil. Yfirstjórn húsnæðismála á þó samkvæmt lögunum að kjósa til 6 ára, en það er líka það eina, sem hugsað er til langs tíma í lögunum.

Tvö vandamál eru það, sem efst eru á baugi í sambandi við húsnæðismálin. Annað er útvegun lánsfjár, en hitt, hvernig fátæku eða félitlu fólki sé gert kleift að byggja sér íbúðir með viðráðanlegum kostnaði. Fyrra atriðið er leyst þannig í frv., að Landsbanki Íslands tekur að sér að sjá um útvegun á 1.00 millj. kr. hvort árið, sem varið skal til útlána með 7% vöxtum. Verulegur hluti þess fjár — eða rúmur helmingur — er þó ekki nýtt fé, heldur reiknað með að fá þessa upphæð frá sparisjóðum, lífeyrissjóðum, tryggingarfélögum og opinberum sjóðum, en þessir aðilar allir mundu án efa hafa lánað svipaða eða hærri upphæð til bygginga, þó að engin lög hefðu verið um það sett. En það er sjálfsagt að viðurkenna, að í þessu á að felast nokkur hækkun á fé til ráðstöfunar í þessu skyni. Á hitt verður þá líka að benda, að í þessu frv. eða lögunum, sem nú eru orðin, feist engin viðleitni til að hjálpa hinum efnalitlu til að eignast þak yfir höfuðið. Það vandamál er jafnóleyst og áður. Byggingarkostnaðurinn í þessu landi hefur vaxið með eindæmum. Íbúð, sem kostaði 12–15 þús. kr. fyrir stríð, kostar nú upp undir 200 þús. kr. Þessa smæstu tegund af íbúðum getur enginn reist eða keypt hjálparlaust, nema hann annaðhvort eigi verulega fjárhæð til að leggja fram í bygginguna, sem hann getur afskrifað um leið, eða að hann hafi geysiháar tekjur. Þar sem hvorugt þetta er fyrir hendi, eru engir möguleikar til bygginga fyrir tilstilli þessarar lagasetningar. Athvarf þessara manna hefur hingað til verið annaðhvort verkamannabústaðir eða að vinna sjálfir að byggingunum, þeir sem það geta og kunna, í frístundum, en mestur fjöldi manna getur ekki komið því við af mörgum ástæðum. Þrautalendingin fyrir þá hefur verið að fá íbúð í verkamannabústöðum, sem mörgum hafa hjálpað, sérstaklega fyrr á árum. Af einhverjum annarlegum ástæðum hefur nú um skeið verið búið þannig að þessari starfsemi, að hún hefur verið fullkomlega fjárvana og hefur alls ekki getað sinnt sínu hlutverki. Með þessari lagasetningu er engin trygging gefin fyrir lagfæringu á þessu ófremdarástandi. Eina byggingarstarfsemin í landinu, sem hefur verið þess megnug að sinna þörfum hinna efnalitlu, er skilin eftir.

Í báðum deildum þingsins hafa verið bornar fram brtt., sem fóru í þá átt að tryggja byggingarsjóði verkamanna nokkurn hluta af því fé, sem gert er ráð fyrir í lögunum að ráðstafa til byggingarstarfsemi í landinu, en þetta var fellt, og þetta gerist samhliða því sem frá því er skýrt í grg. frv., að mjög veruleg upphæð — eða 12 millj. kr. — hafi verið tryggð í svipuðu skyni til byggingarsjóða sveitanna. Þetta er svo himinhrópandi ranglæti, að við það er á engan hátt hægt að una. Útvegun dýrra lána getur verið góðra gjalda verð, þar sem það á við, en að hugsa sér að leysa vanda hinna smáu með lánum, sem þvílíkir vextir eru teknir af, að fyrir aðeins tveim til þrem árum hefðu heyrt undir lögin um okur, það leysir ekki þann vanda, sem hér þarf að leysa.

Ýmislegt fleira mætti segja um þetta byggingarmálafrv. ríkisstj., en ég skal að svo stöddu ekki fara út í það. Höfuðgalli þess er, eins og ég sagði áðan, að hér er ekkert litið á vanda hinna smáu og efnalitlu og þeirra vandræði á engan hátt leyst og ekkert reynt til þess einu sinni.

Um verkfallið, sem nú er að vísu leyst eftir 6 vikna vinnustöðvun, skal ég ekki fjölyrða, það verður rætt hér í þessum umr. af öðrum. En ég hef hér áður í þessum fáu orðum, sem ég hef sagt, lýst sök á hendur ríkisstj. fyrir, að til verkfallsins þurfti að koma, og sýnt fram á, að þar var skattpíningu ríkisstj. og verðhækkunarpólitík fyrst og fremst um að kenna. Á meðan verkfallið stóð, hélt ríkisstj. að sér höndum og hafðist ekki að, fyrr en undir lokin, að sáttanefnd hafði borið fram hugmyndina um stofnun atvinnuleysistrygginganna, en ég vil leyfa mér að fullyrða, að það hafi verið það málið, sem frekar en nokkuð annað leysti deiluna.

Þessir flokkar, sem standa að ríkisstj., hafa nú farið með völdin í rúm 5 ár, að vísu ekki í sömu stjórninni. Það var illa spáð fyrir því samstarfi í upphafi, enda hefur það komið á daginn. Gengisfelling, bátagjaldeyrir og bílaskattur áttu að hjálpa sjávarútveginum og niðurgreiðslur í vaxandi mæli úr ríkissjóði landbúnaðinum, og nemur sú upphæð nú, sem varið er til niðurgreiðslu, um 50 millj. kr. samtals á ári. Vaxtahækkun átti að örva sparifjársöfnun, og afnám verðlagsákvæða átti að tryggja verzlunarstéttinni ómældan hagnað. Loks voru ríkissjóði svo tryggðar 100 millj. kr. í umframtekjur umfram það, sem þurfti til að standa undir áætluðum útgjöldum.

Allt er þetta sjálfsagt gott og blessað frá sjónarmiði þess, sem nýtur. En það er bara sá galli á, að það er ekki hægt að láta þetta fé af hendi, nema það verði tekið einhvers staðar, og þegar allar þessar millj. eru teknar frá einn:n og sama aðilanum, almenningi, hlýtur að líða að því, að hann kveinki sér, og það hefur hann nú gert. Verðlagsskrúfan heldur því áfram, og enginn sér fyrir, hvar hún muni enda, á meðan ekki er sýnd viðleitni til að stöðva á að ósi.

Þetta eru að mínu viti höfuðávirðingar núverandi stjórnarflokka.

Við Sjálfstfl. verður ekki sakazt. Þetta eru hans ær og kýr, og þarna er hann í sínu rétta „elementi“, og þess verður því miður ekki vart, að neitt sé haldið aftur af honum af samstarfsflokknum.

En hvað um Framsfl.? spyrja menn þá. Ef hann heldur enn áfram sömu stefnu og nú horfir, hætta menn að geta greint hann og hans stefnu frá Sjálfstfl., hversu mjög sem hann deilir á samstarfsflokkinn í blöðum sínum. Verkin sýna merkin. Þennan flokk mætti spyrja eins og spurt var hér á Alþ. fyrir 35 árum, þegar einn af þáverandi forvígismönnum Framsfl. og þátttakandi í íhaldssamri ríkisstjórn var spurður: „Loftarðu þessu, Pétur?“ — Þessari spurningu ætti Framsfl. að velta fyrir sér.