10.05.1955
Sameinað þing: 58. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1723 í B-deild Alþingistíðinda. (3139)

Almennar stjórnmálaumræður

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Um það verður ekki villzt, að núverandi ríkisstj. hefur öfluglega unnið að framgangi flestra þeirra mála, er hún lofaði að beita sér fyrir, þegar hún var mynduð síðla sumars 1953.

Þá lýsti ríkisstj. yfir því, að það væri höfuðstefna hennar að tryggja landsmönnum sem öruggasta og bezta afkomu. Til þess að því marki yrði náð, taldi stjórnin nauðsynlegt, að sem mest frjálsræði ríkti í viðskipta- og atvinnulífi þjóðarinnar, og skilyrði þess væri, að jafnvægi héldist í efnahagsmálum inn á við og út á við.

Þrátt fyrir áframhaldandi síldarbrest, sem aldrei var verri en sumarið 1954, sauðfjársjúkdóma og óhagstæð viðskiptakjör, er samkv. síðustu skýrslum voru nær fjórðungi verri en til dæmis 1946, hefur atvinna almennings í landinu aldrei verið betri en þessi tvö síðastliðin ár.

Skýrslur sýna, að lífskjör almennings eru svipuð og í hinum Norðurlöndunum, en hvarvetna er viðurkennt, að þau eru til fyrirmyndar í þessum efnum. Öruggt er þó, að jöfnuður manna á milli er meiri hér en þar eða annars staðar, sem spurnir fara af, og þegar hv. þm. Einar Olgeirsson talaði í gær um auðstétt, gaf hann sjálfur þá skýringu á, að þar með teldi hann þá, er ráða yfir bönkunum og öllum þeim stórfyrirtækjum, sem raunverulega eru almenningseign, svo sem Eimskipafélag Íslands, Samband íslenzkra samvinnufélaga o.s.frv. Allt eru þetta þó launaðir starfsmenn, sem ekki hafa nema brot af því kaupi, sem þeim mundi greitt í kommúnistísku þjóðfélagi.

Það liggur einnig fyrir vottorð frá kommúnistum sjálfum um það, hvernig þeir telja að meta eigi lífskjör almennings. Í forustugrein Þjóðviljans 18. jan. stóð, með leyfi hæstv. forseta: „Hinir daglegu sölureikningar, sem starfsmenn mjólkurbúanna fara höndum um, sýna fljótlega, hvernig loftvogin hreyfist á sviði markaðsmálanna, og birgðasöfnunin, sem þegar fylgir í kjölfar lækkandi sölu, verður jafnframt þegar í stað viðfangsefni þessara manna. Hins vegar er það alkunn staðreynd, að þessi loftvog hækkar og lækkar nákvæmlega í réttu hlutfalli við fjárhagsafkomu og kaupgetu alls fjölda neytendanna í bæjum landsins.“ Þetta eru ummæli Þjóðviljans. En útreikningar hagstofunnar sýna, að ef mjólkurneyzla á mann er talin 100 árið 1946, þegar kommúnistar voru í stjórn, er hún 1954 mun meiri en nokkru sinni áður, eða 123. Samkv. hinni nákvæmu loftvog, sem kommúnistar vitna sjálfir til, hefur afkoma almennings því aldrei verið betri en einmitt s.l. ár og nær fjórðungi hagstæðari en meðan kommúnistar voru við stjórn.

Hagur þjóðarinnar út á við hefur fyllilega haldizt í horfinu, þó að Marshallframlögin hafi hætt, og hagfræðingar, bæði þeir, sem ríkisstj. fékk til að kanna það mál, og hinir, sem Alþýðusambandið aflaði skýrslna frá, eru sammála um, að kaupmáttur launa hafi haldizt nær óbreyttur frá því í desember 1952, þ.e. allan starfstíma núverandi stjórnar.

Vaxandi tiltrú á gildi peninga og staðfestu stjórnarfarsins lýsti sér og í mun meiri sparifjársöfnun en nokkru sinni fyrr. Ýmsar ástæður, sem hér gefst ekki tími til að rekja, hafa þó leitt til þess, að gera hefur þurft ráðstafanir til að afla fjár, einkum frá þeim, er mesta hafa eyðsluna, til viðhalds undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar. Um síðustu áramót reyndist fært að draga úr hlunnindum til bátaútvegsins, og hefði vafalaust mátt halda áfram á þeirri braut, ef ekki hefði verið af henni vikið í því verkfalli, sem nú nýlega er lokið og orðið hefur þjóðinni allri til gífurlegs tjóns og hætt er við að hafi mjög óheillavænleg áhrif á fjármála- og þar með atvinnuþróunina.

Örðugleikar atvinnuveganna gera þeim mun eftirtektarverðara, að þrátt fyrir allt skuli hafa tekizt að halda uppi svo almennri atvinnu og velmegun í landinu sem raun her vitni um. Ein af helztu ástæðunum til þess er sú, að stjórnin hefur fylgt þeirri meginstefnu, sem Sjálfstfl. hefur haft að leiðarstjörnu frá upphafi, að hafa sem mest frjálsræði í viðskiptum. Þess vegna var t.d. fjárhagsráð lagt niður og haldið áfram að losa um öll höft, eftir því sem föng hafa verið á. Hér sem ella hefur sannazt, að stefna frelsisins horfir til farsældar, en þvingun og ófrelsi til ófarnaðar og sífellt aukinnar áþjánar.

Í fullu samræmi við þetta hefur stjórnin komið fram verulegri lækkun á tekjuskattinum, og þó að endurskoðun skattalaganna sé ekki enn lokið varðandi félagaskattinn, þá hafa félögin fengið töluverða ívilnun frá því, sem áður var, og horfir það beint til uppbyggingar atvinnu í landinu öllum almenningi til gagns.

Þá ákvað stjórnin að beita sér fyrir að koma rafmagni sem víðast um landið og ráða bót á því ófremdarástandi, sem ríkt hafði um lán til íbúðarhúsabygginga. Hvor tveggja þessi mál hafa frá upphafi verið mikil áhugaefni sjálfstæðismanna. Það er löngu þjóðkunnugt, að fyrstu tillögumennirnir um allsherjar rafmagnsvirkjun í sveitum landsins voru þeir Jón Þorláksson, þáverandi formaður Sjálfstfl., og Jón alþm. Sigurðsson á Reynistað. Þá kannast og allir þeir, sem fylgzt hafa með stjórnmálum, við áhuga Jóns heitins Þorlákssonar fyrir eflingu veðdeildarinnar, sem því miður hefur verið gerð nær óvirk nú um aldarfjórðungsbil.

Okkur sjálfstæðismönnum var það því sannarlega mikið ánægjuefni, að takast skyldu samningar um framgang þessara mikilvægu þjóðþrifamála í sambandi við stjórnarmyndunina, og breytti það engu um áhuga okkar fyrir framgangi þeirra, þó að svo vildi til, að framsóknarmenn fengju til stjórnar þau ráðuneyti, er þessi mál féllu undir. Efuðumst við ekki um eindreginn vilja þeirra nú til að hrinda málunum fram, enda hefur okkur orðið að þeirri skoðun. Hitt er rétt, að svo hefur atvikazt, að þessi mál hafa öðrum fremur komið undir meðferð og ákvarðanir ríkisstj. allrar, og er það í rauninni eðlilegt, þegar íhugað er mikilvægi þeirra og erfiðleikar á að hrinda slíkum stórframkvæmdum af stað í fyrstu. Hygg ég, að þar hafi enginn legið á liði sínu og allir lagt fram það bezta, er þeir gátu, bæði í till. og athöfnum.

En til eru þeir, sem ekki una samvinnu tveggja aðalflokka þjóðarinnar um framgang hinna mestu nytjamála, heldur telja svokallaða vinstri stjórn allra meina bót. Til að koma af stað klofningi milli stjórnarflokkanna er því nú haldið fram af hálfu þessara manna, að framsóknarmenn einir hafi um þessi mál fjallað, enda fyllilega gefið í skyn, að við hinir höfum lítinn hug haft á þeim. Í beinu framhaldi af þeim söguburði hefur þess verið getið, að málefni þau, sem við sjálfstæðismenn höfum fjallað um, séu harla lítils virði og mjög hafi skipt um til bóta, eftir að framkvæmd varnarmálanna komst í hendur núverandi hæstv. utanrrh. Eru afrek dr. Kristins Guðmundssonar nefnd til sönnunar því, hvernig framsóknarmönnum hafi tekizt að koma á viðreisn í þeim málum, „er sjálfstæðismenn skildu við í rústum og niðurníðslu“, eins og Tíminn svo fagurlega kemst að orði, og var þá raunar jafnframt skotið ómaklega að fjármálastjórn Jóhanns Þ. Jósefssonar, sem vann ágætt starf við erfiðar kringumstæður. Skil ég ekki þann hugsunarhátt að reyna að gera víni sína mikla með því að gera litið úr fyrirrennurum þeirra í stað þess að láta alla njóta sannmælis og meta hvern eftir hans eigin verkum.

Sannleikurinn er sá, að mörg þeirra atriða, er sættu gagnrýni af hálfu þeirra, er töldu sig samþykka vörnum landsins, meðan ég var utanrrh. og fór með varnarmálin, heyrðu ekki undir mig, heldur aðra ráðh., þ. á m. framsóknarráðherra. Eftirmaður minn hefur fengið miklu meiri völd í þessum efnum en ég hafði, því að nú heyra öll þessi mál undir hann. Ég skal ekki ræða um og allra sízt gagnrýna einstakar stjórnarathafnir hans, en auðvitað er það engin nýjung, heldur í fullu samræmi við það, sem fylgt hefur verið um varnarmálin frá upphafi, að stöðugt sé breytt til og lagaðar þær misfellur, sem fram koma ýmist í framkvæmd eða sjálfum samningnum. Það er því síður en svo nokkur ný stefna, þó að ýmsar breytingar hafi á orðið, heldur beint framhald af því, sem áður var upp tekið. Annað mál er, að auðvitað sýnist mönnum ætíð sitt hvað um eðli þeirra breytinga, sem gerðar eru og framkvæmdar hverju sinni, og á það jafnt við nú sem fyrr.

Hitt var mér ljóst, ekki sízt eftir úrslit kosninganna 1953, að vinstristjórnarmennirnir innan Framsfl. töldu það sáluhjálparatriði að skamma mig, á hverju sem gengi, og skipti þá minnstu málí, hvernig mér tækist til um stjórnarstörfin. Hina sönnu vinstri stefnu varð að sýna með því að unna sjálfstæðismönnum aldrei sannmælis og þá allra sízt þeim, er fóru með þann málaflokk, sem ella kynni að leiða menn til sameiningar. Fyrir öllu þessu gerði ég nokkra grein í ræðu, sem ég flutti á fundi sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík hinn 11. sept. 1953, og færði rök að því, að hyggilegt væri, að Framsókn fengi utanríkismálin í sínar hendur um sinn, þar sem þjóðarnauðsyn bæri til þess að skapa sem mestan frið um meðferð þeirra. Hef ég gert allt, sem ég hef getað, til þess að sá friður héldist, og hef ég þess vegna látið undir höfuð leggjast að leiðrétta missagnir, er fram hafa komið, jafnvel í tilkynningum þeirra, sem betur ættu að vita, varðandi framkvæmd þessara mála áður fyrri, þar sem ég hef balið það skipta meira máli að ná samkomulagi um framkvæmd nytjamála nú en að deila um liðna atburði, sem á sínum tíma verður dæmt um í sögunni eftir þeim ótviræðu gögnum, sem til eru. Mér er nóg, að höfuðáhugaefni mitt hefur náðst.

Tíminn hefur þann 15. apríl s.l. berum orðum viðurkennt, „að ekki ætti að þurfa að óttast neinar þjóðernislegar eða menningarlegar hættur í sambandi við dvöl varnarliðsins hér“, eins og blaðið segir. Mér hlær hugur við að hafa fengið höfuðpaur vinstri samvinnunnar til að játa þetta, einmitt með því ráði, sem ég sagði í ræðu minni 11. sept. 1953 að duga mundi. Hitt skiptir mig engu, þó að Tíminn skammi mig dálítið í leiðinni, því ef hann hefur ekki annað, þá finnur hann sér það til, að það sé honum að þakka, en ekki mér, að ég hafi „hætt við ýmis rangindi“, og nefnir þó ekki eitt einasta dæmi þessara hugrenningasynda minna. Slík gamansemi er til skemmtunar í dægurþrasi stjórnmálanna og er alveg sama eðlis og það, sem ég drap á áðan, þegar vinstristjórnarmennirnir halda því fram, að allt hið góða, sem unnið sé í stjórninni, sé verk framsóknarmanna, en við hinir gerum annaðhvort ekkert eða illt eitt. Meðal þess, sem einskis virði er eða til ills, ber þá væntanlega að skoðun þessara umbótamanna, er svo nefna sig, að telja t.d. frv. um stórfellda eflingu fiskveiðasjóðsins, stöðuga viðleitni til að draga úr áföllum þeim, er sjávarútvegurinn hefur orðið fyrir, byggingu sementsverksmiðju, umbætur til handa iðnskólum, eflingu iðnaðarmálastofnunar, endurbætur og nýbyggingu flugvalla, áhrifaríka breytingu hegningarlaganna, mikilsverðar umbætur á reglunum um kostnað við skólahald og nýja löggjöf um almenningsbókasöfn, svo að aðeins séu nokkur dæmi nefnd þeirra mála, sem við sjálfstæðismenn í ríkisstj. beitum okkur nú fyrir framkvæmdum á og undir okkar ráðuneyti heyra.

Ef við sjálfstæðismenn létum þessar ýfingar vinstristjórnarmannanna verða til þess að spilla samstarfi okkar við þá mætu menn, sem með okkur eru í ríkisstj. eftir ákvörðun yfirgnæfandi meiri hl. flokks síns, væri náð tilgangi þeirra, er rjúfa vilja þjóðnauðsynlegt samstarf.

Við sjálfstæðismenn þekkjum af reynslunni erfiðleikana við samstarf ólíkra flokka og að þeir örðugleikar verða því meiri sem flokkarnir eru fleiri og innbyrðis ósamstæðari.

Það var ekki að ástæðulausu, að Churchill sagði eitt sinn við Stalin heitinn marskálk, að stjórnarstörfin væru töluvert auðveldari fyrir hann en þá Churchill sjálfan og Roosevelt, þar sem Stalin hefði aðeins einn flokk að fást við. Því svaraði Stalin svo, að það væri rétt, að reynslan hefði sýnt, að einn flokkur væri til mikilla þæginda fyrir ríkisstj. Við Íslendingar búum ekki við það stjórnarfyrirkomulag, þar sem mest er lagt upp úr, hvað helzt sé til þæginda fyrir ríkisstj. Hér er það hagur almennings, sem meira er miðað við, enda hefur hann úrslitaráðin um stjórn ríkisins við almennar kosningar. Í lýðfrjálsu landi eru fleiri en einn flokkur sjálfsagðir, og tekst þá yfirleitt bezt til um stjórn, þegar meginflokkarnir eru tveir og skiptast á um að fara með stjórn landsins eftir ákvörðun kjósenda hverju sinni. En taka verður staðreyndunum eins og þær eru. Á meðan kjósendur fá engum einum flokki meiri hl. á Alþ., verður samvinna tveggja eða fleiri flokka um stjórn landsins að eiga sér stað.

Örðugleikarnir á samstarfi tveggja stórra flokka, sem eru þó sammála um flest grundvallaratriði þjóðmálanna, eru ærnir, og eru þeir þó smáræði, miðað við það, sem verða mundi, ef fjórir eða þótt ekki væru nema þrír og hálfur margklofnir smáflokkar ættu að taka við stjórn undir forustu vinstristjórnarmanna í Framsókn. Klofningurinn á milli stjórnarflokkanna nú er óverulegur, miðað við sundrungina, sem þá yrði, og geri ég þó sízt lítið úr skaðsemi þess stöðuga narts, sem vinstristjórnarmennirnir nú iðka. Slík iðja hlýtur með margvíslegu móti að veikja allt stjórnarfarið. Það er t.d. skiljanlegt, að kommúnistar, sem trúa því, að hugtök eins og réttlæti, sannleikur og siðgæði séu aðeins borgaralegar hégiljur, er yfirstéttin hafi fundið upp sjálfri sér til framdráttar og almenningi til kúgunar, — það er skiljanlegt, að þeir, sem þetta telja, geri sem minnst úr sjálfstæði dómstólanna og segi þá einungis vera verkfæri valdhafanna. Kommúnistar eru og þessari skoðun sinni trúir og fylgja henni svíkalaust fram, þar sem þeir hafa völdin. Við hinir viljum ekki samþykkja, að þau hugtök, sem ég nefndi áðan, séu innantóm blekking. Við viðurkennum að vísu, að allir menn eru ófullkomnir, en við ætlumst til þess, að þeir lífi í anda þessara hugsjóna og reyni að framfylgja þeim. Þess vegna er það stórhættulegt, ekki fyrst og fremst fyrir þann, sem ráðizt er á, heldur fyrir þjóðskipulagið og trú almennings á því, þegar annað helzta málgagn ríkisstj. heldur því t.d. látlaust fram, að dómarar, sem dómsmrh. hefur skipað, séu aðeins handbendi hans. Ef dómararnir gerðu svo lítið úr sér, mundu þeir gera enn þá minna úr ráðherranum, er þeir tækju við fyrirskipunum frá, því að allír mundu þeir brjóta gegn meginreglum réttarins, ákvæðum stjórnarskrárinnar, embættiseiði sínum og heiðri.

Dómstólum hér á landi er ekki fremur en í öðrum lýðfrjálsum ríkjum og gagnstætt því, sem er í einræðislöndum, ætlað að fara eftir ákvörðun handhafa ákværuvaldsins eða annarra aðila um úrlausn mála. Að mínu viti er það frumskilyrði þess, að dómsmrh. sé hæfur til að gegna starfi sínu, að hann ekki aðeins geri sér grein fyrir, heldur sætti sig við, að dómstólar dæmi á annan veg en hann hefur ætlað eða viljað, ef þeir sjálfir telja það rétt vera. Enginn er dómari í sjálfs sín sök eða getur með fullu hlutleysi skoðað mál, sem hann er mjög við riðinn. Stundum, þegar óvitrir menn hafa hælzt um yfir því, að ég sem æðsti maður dómsmálastjórnarinnar hafi orðið að lúta í lægra haldi fyrir dómstólum, hefur það verið mér meira en bót í máli, að dómararnir hafa sannað svo skýrt, að ekki verður um villzt, að á Íslandi lúta þeir ekki forsögn dómsmálastjórnarinnar, heldur hlýða fyrirlagi stjórnarskrárinnar um að fara í embættisverkum sínum einungis eftir lögunum, þ.e. sínum eigin skilningi á þeim.

Ég sá þess raunar nýlega getið, að ég léti ekki framfylgja sumum dómum, og var talið, að það sýndi m.a., að ég teldi dómara hæstaréttar ekki ætið óskeikula.

Þess ætti naumast að þurfa að geta, að enginn maður hefur enn fæðzt, sem sé óskeikull. Einmitt þess vegna eru dómsstig höfð fleiri en eitt, og sumir, einkum hinir æðri dómar, svo sem hæstiréttur hér á landi, hafðir fjölskipaðir. Þrátt fyrir það getur öllum mannlegum dómstólum yfirsézt, þ. á m. íslenzkum dómurum, og efast þó enginn dómbær maður um, að þeir og þá ekki sízt hæstiréttur vilja dæma rétt og geri það svo sem bezt þeir geta. Það er hins vegar alger fjarstæða, að ég hafi kastað rýrð á réttdæmi hæstaréttar með því að framfylgja ekki ætíð dómum hans. Samkvæmt stjórnarskránni hefur dómsmálastjórnin heimild til að náða menn eða gefa þeim upp sakir, og er með því sízt gert lítið úr réttdæmi dómstólanna, heldur er þetta sjálfstæð heimild, sem ýmsar aðrar ástæður liggja til og hvergi hefur reynzt unnt að komast hjá, og sýnir skraf þess efnis furðanlega vanþekkingu á frumatriðum réttarfars og stjórnskipunar. Er þó sjálfsagt ekki um það að sakast, því að í frjálsu þjóðfélagi hafa menn einnig rétt til vanþekkingar, þó að þeir, er þann rétt nota sér um of, ættu helzt ekki að gerast leiðbeinendur annarra. Ásakanir þvílíkra manna eru og ekkert einkamál þeirra, heldur hljóta að eitra út frá sér með margvislegu móti.

Veilan í hugum þessara vinstristjórnarmanna sjálfra kemur berlega fram í því, að þeir skuli telja meðal helztu umbótamanna, er umfram allt þurfi að hefja til ríkisstjórnar, einmitt þá, sem leyft hafa sér að láta utanþingsstofnun, Alþýðusamband Íslands, bjóðast til þess að taka að sér forustu um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Ætla verður þó, að vinstristjórnarmennirnir viti, að stjórnarskráin segir fyrir um, að það sé Alþingi með atbeina forseta Íslands, sem kveður á um það, hverjir séu í ríkisstjórn, en ekki Alþýðusambandið eða annar slíkur utanþingsfélagsskapur. Tilboð þetta reynist þó enn óskammfeilnara þegar þess er gætt, að þegar það var gert, sat ríkisstj. studd miklum meiri hluta kjósenda. Út yfir tók þó, að ekki var um að villast, að stjórnarmyndun þessa átti tvímælalaust að knýja fram með hinu mikla verkfalli, sem hófst um miðjan marzmánuð. Á meðan það var yfirvofandi, eða hinn 6. marz s.l., segir Hannibal Valdimarsson í hinu illræmda bréfi sínu: „Verkalýðshreyfingin vill gera allt, sem í hennar valdi stendur, til að stuðla að myndun ríkisstjórnar“, sem bréfritaranum líkar. Hér er því ekki um að villast, hver tilgangurinn með verkfallinu var: sá fyrst og fremst að stuðla að myndun hinnar margumtöluðu vinstri stjórnar.

Lýðræði og þingræði á Íslandi hefur sjaldan eða aldrei verið sýnt magnaðra tilræði en þetta, og ekki bætir það úr skák, að tiltæki þetta er algert trúnaðarbrot við sjálft Alþýðusambandið. Það á eðli sínu samkv. að vera ópólitísk hagsmunasamtök verkalýðsfélaganna. Engir hafa lagt ríkari áherzlu á það en kommúnistar, sem nú ráða stjórn Alþýðusambandsins. Á stofnþingi Sameiningarflokks alþýðu, sósíalistaflokksins, var hinn 24. okt. 1938 samþykkt ályktun, þar sem m.a. segir: „innan verkalýðsfélaganna ríki fullt og óskorað lýðræði, þannig að allir hafi jafnan rétt til trúnaðarstarfa án tillits til pólitískra skoðana“, og breyta á vinnulöggjöfinni „í þá átt að skapa verkalýðnum meiri réttindi, og samband verkalýðsfélaganna sé fagsamband óháð pólitískum flokkum“.

Um þetta birtust síðan fjölmargar greinar í Þjóðviljanum veturinn 1938–39, þangað til sjálfstæðismenn gátu knúið fram, að Alþýðusambandið var gert ópólitískt fagsamband. Það er í samræmi við önnur óheilindi kommúnista, að þeir skuli nú umsnúa öllu því, er þeir hófu hæst við hún, þegar þeir gáfu flokki sínum langa nafnið 1938. Nú vilja þeir ásamt bandamönnum sínum láta útiloka sjálfstæðismenn frá trúnaðarstöðum í Alþýðusambandinu og gera það að pólitísku tæki flokks síns til að kollvarpa löglegri stjórn ríkisins.

Eftir að höfuðatlagan mistókst, láta kommúnistar nú svo sem aldrei hafi verið ætlunin, að verkfallið væri pólitískt. Sú blekkingartilraun er þó of seint hafin, enda kemur hrosshófurinn enn berlega í ljós. Þeir vita, að vonlaust er að telja verkamönnum trú um, að þeir hafi hagnazt á verkfallinu. Þess vegna er nú lögð megináherzla á, hve mikill áhugi og eining hafi verið um verkfallsvörðinn. Allir vita, að verkfallsvarðstaðan á vegum úti hafði engin áhrif á lausn verkfallsins önnur en þau, sem af því stöfuðu, að magna óvinsældir þess meðal alls almennings. Gildi hennar fyrir kommúnista var og allt annað. Með henni vonuðu þeir að geta stofnað til árekstra. er síðan kynnu að leiða til alvarlegra átaka. Þessi von brást einnig. En eftir er það eitt, að kommúnistar þykjast þarna hafa getað komið við eins konar allsherjaræfingu í ofbeldisáformum sínum. Auðvitað telja þeir slíkt mikils virði, en spurning er, hvort þeir hafa ekki einnig misreiknað sig í þessu með því að gefa almenningi slíka augljósa aðvörun um fyrirætlanir sínar.

Óheilindi og hvers konar umsnúningur staðreynda af hálfu kommúnista kemur engum á óvart. Hitt er merkilegra, að til skuli vera menn, er kenna sig við lýðræði og framsókn, sem telja það til umbóta að komast í stjórnarsamstarf með þessu fólki og lagsbróður þess. Engin afsökun er fólgin í því, þótt sagt sé, að ætlunin sé að semja aðeins við helming Sameiningarflokks alþýðu, sósíalistaflokksins. Kommúnistum er ekkert auðveldara en að kljúfa flokk sinn að nafninu til í tvennt til þess með þeim hætti að kaupa sér inngöngu í ríkisstjórnina. Þeim yrði ekki mikið um þá myndbreytingu, og flugumannahóparnir, sem þeir nú þegar hafa innan allra vinstri flokkanna, gefa nokkra hugmynd um, hvers eðlis þau helmingaskipti yrðu, sem vinstristjórnarmennirnir telja nú að þurfi að verða hjá kommúnistum, til þess að áform þeirra megi blessast.

Menn heyrðu glögglega í gær, hver áhrif vinstristjórnartalið hefur haft á hv. þm. Einar Olgeirsson. Þegar hann vitnaði í ummæli tímans um, að einangrun kommúnista væri úr sögunni, minnti hann óneitanlega meira en lítið á púkann á fjósbitanum í Odda, er tútnaði út jafnskjótt og hann heyrði ljótt orðbragð. Hann veiaði þeim Alþýðuflokksmönnum, sem ekki vildu fullkomna einingu flokks síns við kommúnistaflokkinn, og kvað þá varga — í véum og hótaði því, að friði mundi sagt sundur og lög og réttur fótum troðinn í landinu, ef kommúnistar yrðu ekki teknir í stjórn. Almenningur fékk áreiðanlega nóg af orðaflaumi púkans á eldhúsbitanum hér í g ær, enda hafa menn að undanförnu séð í verki virðingu þeirra kumpána fyrir lögum og landsrétti. Tilboð hans um vinnufrið hafa menn heyrt áður. Sanngildi slíkra fyrirheita reyndu menn á tímum nýsköpunarstjórnarinnar. Loforðin fuku þá út í veður og vind, jafnskjótt og kommúnistar sáu í bæjarstjórnarkosningunum 1946, að þeir höfðu ekki haft þann pólitíska hag af stjórnarþátttökunni, sem þeir vonuðu. Þá reyndu þeir strax að rétta hlut sinn með stórverkföllum. Þannig fer um þeirra fögru fyrirheit, enda vita menn nú, að sá friður, er þeir lofa samstarfsmönnum sínum, verður hinn sami, þegar þeir komast höndum undir, og þeir hafa veitt öllum þeim, er leiðzt hafa til að fá þeim úrslitavöld í hendur, og raunar mörgum þeirra eigin foringja einnig, svo sem Trotsky, Bería og hvað þeir heita nú allir, sem nú njóta hins kommúnistíska friðar í gröf sinni. Ég sé að vísu mér til gleði, að hv. þm. Hannibal Valdimarsson reikaði hér um þingsal í dag og situr hér í kvöld, að nafninu til á lífi, en fáir munu öfunda hann af þeirri skuggatilveru, er hann hefur átt að undanförnu, síðan hann gerðist bandingi kommúnista. Hvað sem um það er, kann óábyrgt tal sumra þeirra, er betur ættu að vita um raunverulega möguleika fyrir vinstri stjórn, að vera nokkur afsökun fyrir stjórnarmyndunarfrumhlaupinu í sambandi við verkfallið mikla. Allt þetta vinstristjórnarhjal, einmitt á meðan á undirbúningi hins víðtæka verkfalls stóð, hlaut eðli sínu samkv. að eggja grunnhyggna menn til trúar á möguleika, sem alls ekki eru fyrir hendi.

Vinstri samvinna er síður en svo nokkurt nýtt fyrirbæri hér á landi. Það er söguleg staðreynd, að Alþfl. og Framsfl. voru báðir stofnaðir um svipað leyti fyrir beinan atbeina Jónasar Jónssonar í því skyni, að þeir skyldu vinna saman. Síðan klofnuðu bæði Sameiningarflokkur alþýðu, sósíalistaflokkurinn og Þjóðvarnarflokkurinn út úr þessum flokkum. Þannig hafa þessir menu sundrazt, og sundrungin er meiri en flokkafjöldanum nemur, því að sumir þeirra, ef ekki allir, eru margklofnir, eins og við vitum. Allur þessi klofningur og sundrung er engin tilviljun. Annaðhvort hafa flokkarnir sundrazt af málefnalegum ágreiningi eða persónulegri togstreitu.

Er nú nokkuð það fram komið, sem geri það að verkum, að þessum mönnum sé málefnalega eða persónulega auðveldara að vinna saman en áður var? Er líklegra, að þeim takist nú að fá unnið samfelldan meiri hluta þjóðarinnar, eftir að þeir af auðsæjum og raunverulegum ástæðum eru margklofnir, heldur en meðan segja mátti, að þeir væru þó samstæð heild? Eða hvernig leizt mönnum á sameiningarviljann, sem fram kom í lýsingu þessara herra í gærkvöld á því, sem keppa hefði átt að í verkfallinu, og gildi þess, sem náðst hefði? Mætti þó ætla, að þeir gætu nokkurn veginn setið á strák sínum, meðan þeir hafa ekki öðru að sinna en gagnrýna það, sem aðrir gera.

Nei, sannleikurinn er sá, að allt þetta sameiningartal er innantómt. Það er miklu meira, sem aðskilur þessa flokka innbyrðis, svo margir og litlir sem þeir eru, heldur en aðskilur kjósendur í tveimur höfuðflokkum þjóðarinnar, Sjálfstfl. og Framsfl., og má með þeim hóp raunar einnig telja flesta kjósendur Alþfl. Það er áreiðanlegt, að yfirgnæfandi meiri hluti Íslendinga vill áframhaldandi þjóðlega uppbyggingu í sama anda og nú er unnið. Menn vilja ekki þá kyrrstöðu, sem leiða mundi af valdatöku hinnar sundruðu vinstri hjarðar, heldur stöðugar framfarir landi og lýð til hagsbóta. Hinar miklu framkvæmdir núverandi ríkisstj. eru aðeins liður í þróun, sem halda verður áfram. Efla verður atvinnuvegina og finna fleiri stoðir undir hagsæld þjóðarinnar. Nýta verður öll landsins gæði og stöðugt hafa í huga, að raunverulegar kjarabætur fást bezt með aukinni framleiðslu og hagkvæmari víðskiptum. Í þeim efnum er frelsið, stutt af samtakamætti þjóðarinnar, öflugasta lyftistöngin.