10.05.1955
Sameinað þing: 58. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1737 í B-deild Alþingistíðinda. (3141)

Almennar stjórnmálaumræður

Hermann Jónasson:

Herra forseti. Góðir Íslendingar. Það er mjög leiðinlegt, að hv. þm. Gils Guðmundsson hefur ekki lagt það á sig að kynna sér þær miklu umbætur, sem gerðar hafa verið á framkvæmd hervarnarsáttmálans síðan dr. Kristinn Guðmundsson tók við. Aðaládeilan á fyrri framkvæmd var, að allt of náin samskipti væru milli Íslendinga, hersins og erlendra verkamanna; enn fremur, að Hamiltonfélagið prettaði íslenzka verkamenn í kaupgreiðslum.

Allir, sem nokkuð fylgjast með, vita, að hermenn og erlendir verkamenn fá nú orðið mjög takmarkaðar leyfisferðir út af vellinum. Vegabréfakerfi hefur verið komið á og kvenfólki bannað að sækja dansleiki inn á völlinn. Gamlar kærur verkamanna á Hamiltonfélagið, um 900 að tölu, hafa verið rannsakaðar og kaup leiðrétt. Allar kærur út af röngum kaupgreiðslum eru leiðréttar jafnóðum og fram koma. Hamiltonfélagið hætti útivinnu um áramót. Íslendingar annast nú allar framkvæmdir á vellinum, sem þeir geta annað. Radarstöðvar úti á landi verða lokaðar. Allt eru þetta staðreyndir, og þær eru sannaðar svo rækilega sem bezt verður kosið.

Fyrir fáum dögum birtist stór grein í Þjóðviljanum, þýdd úr amerísku blaði og eftir hermann á vellinum. Hermaðurinn segir, að síðan dr. Kristinn Guðmundsson tók við sé raunverulega lokið sambandi milli Íslendinga og hersins, örfáum sé leyft að fara út af vellinum og kvenfólki bannaður aðgangur, verið sé að girða herinn inni eins og fanga og slíkt talið einsdæmi, skorað er á ameríska þm. að láta þetta ekki við gangast. Í gær bætti hv. þm. Einar Olgeirsson því við, að hermennirnir væru farnir að kæra beint til Washington út af því, hvernig þeir væru einangraðir hér.

Ég ætla, að þetta séu nægar sannanir fyrir því, að gerbreyting hefur orðið á framkvæmdum. Í dagblöðum Reykjavíkur í aprílmánuði voru margar fyrirsagnir eins og þessar:

1. „Grimmilegar kylfuárásir á þjóðvegum í fyrrakvöld.“

2. „Innbrot, íkveikjur, rán og slagsmálaárásir rök auðstéttarinnar.“

3. „Ofbeldismenn eyðileggja benzín, en kveikja í öðrum birgðum.“

4. „Árás skítliðs Heimdallar var fylgt eftir með innbroti og íkveikju.“

Svona blaðaskrif sýna mynd af íslenzku þjóðfélagi í verkfalli. Við Íslendingar tökum svona verkföllum um hábjargræðistímann eins og vondum örlögum. Og mönnum virðist varla taka því að reyna að finna orsakir verkfalla og úrræði til að koma í veg fyrir þau. Og þó eru þessi verkföll líklegri til þess en flest annað að brjóta niður framfaraöldu, sem risíð hefur og rísa þurfti enn hærra, og líkleg til þess að leggja atvinnu- og fjármálalíf okkar í auðn.

Hvernig mundi bæjarmönnum geðjast að því, ef verkföll yrðu, segjum svona 6 vikur árlega, þegar semja ætti við mjólkurbúaeigendur um gerilsneyðingu og flutning mjólkur til bæjarins? Hvernig mundi bæjarbúum líka það, ef verkföll yrðu flest haust, þegar slátrun ætti að hefjast, meðan bændur væru að semja við frystihúsaeigendur, eða ef öll ræktun stöðvaðist flest vor vegna verkfalla, meðan hændur reyndu að semja við eigendur dráttarvéla og skurðgrafa? Ég býst við, að heyrast mundi hljóð úr horni hjá bæjarbúum. Þeir mundu kalla þetta brjálað ástand og telja afleiðingar þess óþolandi, kjöt- og mjólkurleysi langan tíma árs. Og þó væru þessar vinnustöðvanir í sveitum hliðstæðar því, sem alltaf er að gerast í atvinnulífinu við sjóinn.

Hver er ástæðan fyrir því, að framleiðslan í sveitum og við sjó er þannig tveir ólíkir heimar, tvær andstæður? Annars vegar er samvinnukerfið, hin stefnan er samkeppni og gróðahyggja. Ástæðan fyrir því, að aldrei heyrist talað um vinnustöðvun í sveitum, er sú, að félög bændanna sjálfra eiga mjólkurbúin, flest frystihúsin og stórvirku ræktunarvélarnar. Þeir skammta sér því sjálfir rétt verð og þurfa við engan um að deila. Sama regla gildir um verzlun þeirra, kaup og sölu. Vitanlega er útkoman misjöfn eftir því, hvernig félögum bænda er stjórnað og fleiru. Ekkert, sem mennirnir stjórna, er fullkomið, en hugsjónin, samvinnukerfið, er hin rétta lausn. Það getur veitt hverjum manni rétt verð fyrir vinnu og vöru. Þegar bátur kemur að landi í íslenzkri höfn, er fiskurinn eign útgerðarmanna og sjómanna, unz honum er skilað á land. Þar tekur við fiskinum milliliðastarfsemi í óteljandi myndum, unz fiskurinn er kominn til neytendanna. Og áður en báturinn fer í róður, streyma um borð alls konar nauðsynjar til úthaldsins einnig gegnum hendur óteljandi milliliða. Hér eru bátaeigendur, sjómenn og verkamenn eins og smáflugur í köngulóarneti milliliðanna. Þeir kaupa nauðsynjar, selja framleiðslu og vinnu án þess að hafa hugmynd um sannvirðið.

Til þess að sjómaðurinn og bátseigandinn væru eins settir og bændur, þyrftu þeir að eiga og stjórna frystihúsunum, söltunar- og herzlustöðvunum og allri annarri slíkri starfsemi, unz fiskurinn er kominn á borð neytandans. En auk þess þyrftu þeir að geta keypt allt til útgerðarinnar gegnum eigið kaupfélag.

Afleiðingin af því, að farið er með vinnandi fólk við sjóinn eins og blindingja, er sú, að ef þetta fólk heldur, að hlutur sinn sé fyrir borð borinn, krefst það hærra kaups, og ef á móti er staðið, gerir það verkföll. Hins vegar hefur þetta vinnandi fólk enga aðstöðu til þess að vita um það, hvort kröfurnar eru réttmætar eða framleiðslan þolir þær. En verkamenn og sjómenn hafa ósköp óbrotin rök. Þeir segja bara þetta: Ef framleiðslan getur ekki greitt hærra kaup, má taka það af milliliðunum. En of margir þeirra sýna með áberandi óhófslífi, að þeir hafa meira milli handa en þeim ber.

Af þessu, sem nú hefur verið sagt, er augljóst mál, að meðan milliliða- og arðránsstefnan ræður ríkjum, hljóta að verða harðar deilur um skiptingu arðsins og afleiðingarnar sífelld verkföll. Þau eru skuggi gróðahyggju og óhófs. Verkföll eru tilraun verkamannsins til að hrista af sér þessa ófreskju. Nú hefur kaup hækkað. Milliliðirnir segjast ekki geta misst og telja sig nú þurfa að hækka. Hvar endar þetta? spyr hver annan. Og þó finna allir á sér, hvar það endar. Dýrtíðin vex, krónan lækkar, vöruverð og fasteignir hækka, þar með húsaleiga í bæjum, verkalýðsstéttin hefur verkfall að nýju. Leiðin til þess að skapa meiri vinnufrið er sú að skapa sannvirði vinnunnar og trú manna á það, að þeir fái þetta sannvirði. Þessu marki er hægt að ná, ef ríkisvaldið vinnur að því með verkamannasamtökunum. Bændur náðu þessu marki, oft vel studdir, en oft í andstöðu við ríkisvaldið. Meðan þetta gerist ekki, vofa verkfallsóeirðir yfir þjóðinni eins og þrumuský.

Milliliðirnir höfðu nokkrar tekjur af verzlun með mjólk og kjöt, áður en kjöt- og mjólkurskipulagið var lögleitt árið 1934. Vegna þess, að milliliðirnir töldu sinn hlut skertan með þessum lögum, setti flokkur þeirra þjóðfélagið á annan endann með mjólkurverkfalli til að reyna að koma í veg fyrir, að stjórn bænda og verkamanna, sem setti lögin, gæti framkvæmt þau. Þessi milliliðagróði var þó aðeins örlítið brot af milliliðagróðanum í sambandi við framleiðslu við sjávarsíðuna. Þar er meginpeningaflóðið og gróðinn í óteljandi myndum, opinber og leynilegur. Þess vegna geta menn reitt sig á það, að á þessu verður aldrei nein breyting, meðan flokkur milliliðanna er í ríkisstjórn. Ef sú breyting væri sett á oddinn, mundi það valda stjórnarslitum, í hvaða stjórn sem milliliðirnir tækju þátt.

Þeir menn eru pólitísk börn, sem ekki hefur enn þá skilizt, að flokkur milliliðanna er stofnaður og áhrifum hans og pólitísku valdi viðhaldið og beitt með milljónakostnaði í blaðaútgáfu og áróður, einmitt til þess að vernda gróða milliliðanna.

Það er engin tilviljun, að dómsmrh. talaði sig upp í æsing um vinstri stjórn og formaður Sjálfstfl. gerði sér svo tíðrætt í gærkvöld um það, sem ég hef sagt og skrifað um vinstri stjórn. Hann gaf þá m.a. í skyn, að ekki væri hægt að koma fram málum bænda nema með Sjálfstfl. Þetta er auðvitað, eins og sagan sannar, misskilningur. Framgangur landbúnaðarmála á þingi er kominn undir styrk Framsfl., en ekki því, með hvaða flokki hann vinnur hverju sinni. Ef hér væri við völd ríkisstj., sem bændur og annað vinnandi fólk stæði að, mundi sú ríkisstj. verða að heyja baráttu við grimmilegri andstöðu en hér hefur nokkurn tíma þekkzt, ef sú ríkisstj. gerði með löggjöf ráðstafanir, þótt ekki væri nema til að skerða milliliðagróðann, hvað þá afnema hann.

En þegar rætt er um úrræði til þess að efla vinnufrið, er bezt að gleyma því ekki heldur, að ýmsir þeir, sem mestu ráða í verkalýðshreyfingunni, hafa þær stjórnmálaskoðanir, að rotnandi arðránskerfi sé æskilegur jarðvegur til að rækta hjá verkalýðnum tortryggni, öfund, hatur og tíðar og langvarandi vinnustyrjaldir, sem skerpi andstæðurnar milli öreiga og auðvalds og búi verkalýðinn undir lokaslaginn. Í augum þessara manna eru umbætur hættulegar, því að þær auka líkurnar fyrir sáttum og friði. Efling kommúnista þýðir fleiri verkföll. Með því að efla flokk milliliða eru kjósendur að kjósa yfir sig verkföll, því að ranglætið í starfi milliliða er uppspretta og orsök verkfallanna.

Augljóst er, að til þess að losa þjóðina við skaðsemi verkfalla er eina ráðið að efla þá lýðræðislegu flokka, sem með starfi sínu hafa sýnt það og sannað, að þeir vilja, að hver maður fái réttlát laun vinnu sinnar, enda þá fyrst tryggður vinnufriður.

Við framsóknar- og samvinnumenn gerum okkur ljóst, að þróun samvinnukerfisins við sjávarsíðuna tekur það langan tíma, að samvinnan er framtíðarlausn, sem lítils gætir í bráð. Þess vegna samþykkti síðasta flokksþing Framsfl. að fá samþ. á Alþingi, „að Alþýðusamband Íslands og Vinnuveitendasamband Íslands skipi hvort um sig tvo fulltrúa í samvinnunefnd, sem hafi það hlutverk að afla árlega hverra þeirra upplýsinga, sem nefndin telur sig þurfa um afkomu atvinnuvega landsins og hag almennings, til þess að leita megi rökstudds álits nefndarinnar, þegar ágreiningur verður um kaup og kjör eða ætla má, að til slíks ágreinings komi.“

Þessi till. hefur nú verið samþ. á Alþingi og er allt annars eðlis en að samþ. till um líkt efni, þegar verkföll eru að hefjast. Þannig er viðhorf og starf Framsfl. í kaupgjaldsmálum verkamanna hið sama og í kaupgjaldsmálum bænda í áratugi: sannvirði vinnunnar.

En fulla tryggingu fyrir sannvirði vinnunnar fær vinnandi fólk þó fyrst, ef bændur og verkamenn hafa löggjafar- og framkvæmdavaldið í sínum höndum, því að það hefur tökin á milliliðastarfseminni beint og óbeint.

Ýmsir spyrja: Hvers vegna notuðuð þið ekki verkfallið til þess að stofna til slíkrar vinstri stjórnar? Framsfl. lítur á það sem mjög hættulegt fordæmi að nota verkföll til stjórnarskipta og komi slíkt ekki til mála, nema ef til vill í ýtrustu neyð þjóðarinnar. Það breytir engu um þessa skoðun Framsfl., þótt sjálfstæðismenn og kommúnistar beittu stjórn Framsfl. og Alþfl. tvívegis pólitískum verkföllum, benzínverkfalli 1936, verkfallsuppreisninni í Hafnarfirði 1938.

Í annan stað er það öllum vitanlegt, að Framsfl. og Alþfl., þó að Þjóðvfl. kæmi til, hafa ekki meiri hluta og hvorugur flokkurinn telur sér fært frekar en lýðræðisflokkum annarra landa að vinna með kommúnistum. Ég hef aldrei gert ráð fyrir því, að þeir menn í þingmannaliði kommúnista, sem segjast ekki vera kommúnistar, sýndu það í verki með því að segja sig úr flokknum.

Af þessu er augljóst mál, að ekki er nema ein leið fær til að mynda vinstri stjórn og hún er þessi, eins og ég hef áður lýst:

1) Að halda áfram að efla Framsfl., sem vann á í síðustu bæjarstjórnarkosningum.

2) Að jafnaðarmenn sættist og Þjóðvfl. og þær þúsundir kjósenda í kommúnistaflokknum, sem ekki eru kommúnistar, en hafa kosið með honum vegna gamalla og nýrra ósætta við Alþfl., sameinist í einn flokk eða kosningabandalag.

Þetta er leiðin, sem aðalfundur miðstjórnar Framsfl. markaði skýrt í vetur. Hún stendur lýðræðissinnuðum íhaldsandstæðingum opin, hvenær sem forvígismönnum þeirra auðnast að rækja þá skyldu, sem lýðræðissinnaðir umbótamenn næstum allra landa telja sjálfsagðasta af öllu. Það er að sameinast til baráttu í stað þess að sundrast í marga máttlausa smáhópa, sem slást innbyrðis og tryggja milliliðaflokknum og arðránsstefnunni búrlyklana að þjóðfélaginu til þess að skammta sjálfri sér að vild, en öðrum úr hnefa.

Það getur ekki dulizt neinum, að ef lýðræðissinnaðir íhaldsandstæðingar utan raða Framsfl. vanrækja þessa höfuðskyldu sína að sameinast í einhverju formi í næstu kosningum, þá eru það þeir, sem með opin augu og vísvitandi tryggja Sjálfstfl. áframhaldandi völd. Sameinaðir eru þessir hópar vissir með sigurinn, sundraðir dæmdir til ósigurs. Afleiðingar slíkrar sundrungar að öðru leyti eru auðsæjar. Landsmönnum verður ljósara með hverjum degi, að sífelldar verkfallsstyrjaldir milli sterkra verkalýðssamtaka í stjórnarandstöðu annars vegar og ágengrar og þurftarfrekrar milliliðastéttar með ríkisvaldið að baki hins vegar enda á þann hátt, sem allir tæpa á og hvísla um, en enginn þorir að segja. Ég sé ekki, að neitt nema lýðræðissinnaðir íhaldsandstæðingar í stjórnaraðstöðu með Framsóknarflokknum geti héðan af stöðvað þessa skriðu.

Það er nauðsynlegt, að þjóðin geri sér það ljóst, að það er þetta, sem er í húfi. Miðstjórn Framsfl. hefur sagt sitt orð skýrt og afdráttarlaust. Nú er beðið eftir svari annarra íhaldsandstæðinga.

Verður það sundrung og ósigur eða sameining og sigur? — Góða nótt.