04.03.1955
Sameinað þing: 42. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1851 í B-deild Alþingistíðinda. (3167)
Bráðabirgðayfirlit um rekstrarafkomu ríkisjóðs á árinu 1954
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að víkja örfáum orðum að einu atriði í ræðu hæstv. forsrh., þó að það hafi annars ekki verið erindi mitt í ræðustólinn að þessu sinni.
Hann vék að hinum kunnu ummælum sínum í áramótaræðu sinni, að ef kaupgjald yrði hækkað á næstunni, þá mundi óhjákvæmileg afleiðing af því verða gengisfall íslenzku krónunnar. Hann kvartaði mjög undan því, að í blöðum andstæðinga hefðu þessi ummæli verið kölluð hótun. Jafnframt ræddi hæstv. forsrh. um, að íslenzka krónan, eins og gjaldmiðill allra annarra landa, lyti vissum lögmálum, sem ómögulegt væri að komast í kringum, og er það vissulega rétt. En hæstv. forsrh. verður að minnast þess, sem hann sagði ekki í ræðu sinni um þau lögmál, sem gengi krónunnar lýtur. Staðreynd málsins er auðvitað sú, að síðan gengi krónunnar var opinberlega fellt vorið 1950, hefur hún hvað eftir annað verið felld með öðrum aðgerðum, sem þó hafa ekki verið kallaðar gengislækkun. Í raun og veru hefur gengi krónunnar á undanförnum árum verið skert hvað eftir annað, án þess þó að það hafi verið kölluð gengislækkun og án þess að hæstv. forsrh. og aðrir í ríkisstj. hans hafi viljað við það kannast, að það hafi verið gengislækkun. Hvað var bátagjaldeyririnn í raun og veru annað en önnur gengislækkun? Hvað er ferðagjaldið, sem allir verða að borga, sem fara til útlanda, í raun og veru annað en gengislækkun? Hvað er bílaskatturinn, sem nýbúið er að innleiða, í raun og veru annað en sérstök tegund af gengislækkun? Allt þetta veldur því, að erlendar fjármálastofnanir, sem þurfa að skrá gengi krónunnar á hlutlausan hátt, treysta sér ekki til annars en að skrá tvöfalt gengi á henni, svo sem alþjóðagjaldeyrissjóðurinn. Hæstv. forsrh. og stjórn hans hefur aldrei viljað viðurkenna það, að neitt af þessum ráðstöfunum jafngilti gengislækkun. En þegar það liggur við, að kaupgjaldið verði hækkað, þá er strax hafin upp mikil raust og voldug og sagt: Nú verður afleiðingin gengislækkun! Þetta veldur tortryggni og ekki að ástæðulausu. Hér er spurningin sú, hvort ekki sé viðleitni til þess að skella skuld af því, sem þegar er orðið, yfir á það, sem nú er talið vera í vændum, og það tel ég vera merg málsins.
Þegar hæstv. fjmrh. hafði flutt skýrslu sína um afkomu ríkissjóðs á fundi fyrir nokkrum dögum, þá tókum við nokkrir fulltrúar stjórnarandstöðunnar til máls. Hæstv. fjmrh. svaraði í allýtarlegri ræðu. Hann byrjaði á því að svara hv. 8. landsk. þm. (BergS). Þá var hann eiginlega óvenju blíðmáll og stilltur í máli. Einhverjir þm. létu þess getið á eftir, að líklega hefði hann þarna verið að láta þennan þm. njóta þess, að hann er fyrrverandi flokksbróðir hans og skjólstæðingur. En þegar hann kom að því að gera aths. við mína ræðu, þá færðist hæstv. fjmrh. allur í aukana og talaði bæði mikið og hátt. En innihald ræðunnar var að engu leyti í samræmi við raddhæðina, því að í raun og veru játaði hann flest af því, sem fram hafði komið í gagnrýni minni á skýrslu hans, og mætti því e. t. v. segja, að sannleikanum yrði hver sárreiðastur.
Hvað hafði ég sagt? Hvað hafði verið kjarninn í gagnrýni minni á hinni löngu skýrslu hæstv. fjmrh.? Ég hef á það bent, að afkoma ríkissjóðs 1953 bæri ekki vitni um svonefnda heilbrigða fjármálastjórn. Tekjuafgangur er að vísu 90 millj., en greiðsluafgangurinn er aðeins 35 millj., og er þegar búið að ráðstafa honum að verulegu leyti, þannig að raunverulegur greiðsluafgangur er nú, óráðstafaður, aðeins 19 millj. kr.
Hæstv. fjmrh. undirstrikaði það sérstaklega, að hann hafi aldrei verið stoltur af tekjuafgangi í ríkissjóði, hann hafi alltaf gert sér ljóst, að það væri greiðsluafgangurinn, sem máli skipti. En á það var ég einnig að benda, að það sé raunverulegi greiðsluafgangurinn, sem sé aðalatriðið. En kannast menn ekki við það, að hann hafi verið stoltur af heilbrigðri fjármálastjórn sinni og hæstv. ríkisstjórnar? Eða ætlar hann kannske allt í einu að játa, að hann sé ekki stoltur af henni og það sé, ef betur er að gætt, kannske ekkert af að státa?
Hvað er heilbrigð fjármálastjórn á tímum eins og þessum, sem við nú lifum? Hún er auðvitað fólgin í því, að á ríkisbúskapnum sé verulega hár raunverulegur greiðsluafgangur, að hárri hlutfallstölu af tekjum ríkissjóðs sé haldið eftir, að þær komi fram sem innstæðuaukning í seðlabankanum eða lækkun á skuldum ríkissjóðs við seðlabankann, sem svo yrði m. a. til þess, að hægt væri að hafa hallabúskap á erfiðum árum, til þess að hafa þá hagstæð áhrif til atvinnuaukningar og til þess að koma í veg fyrir verðfall. Þetta hefur ekki tekizt. Það kom eins skýrt og á verður kosið fram í skýrslu hæstv. fjmrh. Og það var þetta, sem ég var að undirstrika í athugasemdum mínum. Raunverulegur greiðsluafgangur er aðeins 19 millj. kr. Því til staðfestingar, að svo væri, benti ég einnig á skuldaskipti ríkissjóðs og seðlabankans og viðskiptabankanna, en þar er niðurstaðan mjög svipuð. Þar hefur ríkissjóður ekki grynnt, svo að neinu nemur, á skuldum sinum. Greiðsluafgangurinn er aðeins 3–4% af ríkistekjunum og það þrátt fyrir eitt mesta góðæri, sem yfir Íslendinga hefur gengið. Það er einn höfuðgalli á stjórnarstefnu núverandi ríkisstjórnar, að ríkisbúskapurinn hefur ekki verið rekinn með raunverulegum afgangi. Það er einmitt þess vegna, sem það er rétt, er ég staðhæfði, að á þennan hátt hefur ríkisvaldið raunverulega stutt að þeirri þenslu, sem átt hefur sér stað í fjárhagskerfinu undanfarin tvö til þrjú ár. Framtíðin hefur ekkert verið undirbúin. Það hefur engum sjóði verið safnað til þess að mæta erfiðum árum, sem mjög bætt er við að séu fram undan, þegar varnarliðsframkvæmdirnar á Keflavíkurflugvelli dragast saman. Enginn varasjóður er til. Þessi óhemju góðæri, sem yfir landið hafa gengið, skilja enga varasjóði eftir í ríkisbúskapnum til að mæta erfiðleikunum, sem hljóta að vera fram undan. Það er alveg sama, til hvaða nágrannalanda yrði litið. Fjármálasérfræðingar og fjármálamenn í þeim öllum mundu hafa talið það skyldu sína á tímum eins og þeim, sem við höfum verið að lifa undanfarin tvö til þrjú ár, að hafa mjög verulegan raunverulegan greiðsluafgang á ríkisbúskapnum til þess að hafa hagstæð áhrif á hagkerfið á líðandi stund og til þess að undirbúa framtíðina.
Kjarninn í gagnrýni minni var í raun og veru sá, að ríkisstj. gæti ekki gert hvort tveggja, að guma af heilbrigðri fjármálastjórn og hinu, að hafa varið geysimiklu fé, öllu handbæru fé, til framkvæmda. Að vísu verður að játa, að stjórnarflokkarnir hafa hér haft með sér nokkra verkaskiptingu. Það hefur fallið í hlut hv. framsóknarmanna að guma af hinni heilbrigðu fjármálastjórn, en í hlut sjálfstæðismanna að guma af hinum miklu framkvæmdum og miklu fjárveitingum til atvinnuaukningar úti á landi. En þetta fellur ekki saman. Hvort tveggja getur ekki verið rétt. Annaðhvort hefur fjármálastjórnin verið óheilbrigð eða þá að framkvæmdirnar hafa verið óeðlilega miklar.
Það er svo saga út af fyrir sig, að hæstv. ríkisstj. hefur ráðstafað tugum milljóna án formlegs samráðs við Alþ., sem vitanlega er óheilbrigt.
Ég skal þó með ánægju láta hæstv. fjmrh. njóta þess sannmælis, að síðan hann tók við fjármálastjórninni eða fjármálaráðuneytinu hefur verið miklu meiri skilningur en áður var á nauðsyn raunverulegs greiðsluafgangs, en greiðsluhalla pólitík fyrrv. fjmrh. var mjög ámælisverð, eins og ég hef hvað eftir annað bent á, þegar þessi mál hefur borið á góma hér á hinu háa Alþ. og annars staðar. En niðurstaðan er samt sem áður sú, að enn er ástandið afleitt, og þess verður að gæta, að síðustu ár hafa verið miklu meiri góðæri en árin, er greiðsluhallabúskapurinn var mestur árin fyrir 1950 og fyrst þar á eftir.
Hæstv. dómsmrh. gerði mikið úr því, að við stjórnarandstæðingar gagnrýndum stjórnina fyrir sitt hvað, sumir fyrir ónógan greiðsluafgang og aðrir fyrir of miklar álögur. Taldi hann, að í því fælist mótsögn í röksemdafærslu. En það ætti að vera óþarfi að benda hæstv. dómsmrh. á, að auðvitað gætu álögurnar minnkað og greiðsluafgangurinn samt vaxið, ef dregið væri nógsamlega úr útgjöldunum. Greiðsluafgangurinn er auðvitað mismunur tekna og gjalda, og greiðsluafgangur þarf ekki einvörðungu að vaxa þannig, að tekjurnar vaxi; hann getur einnig vaxið þannig, að gjöldin minnki. Er þetta ósköp augljóst mál. Hæstv. ríkisstj. hefði átt að kappkosta að draga úr útgjöldum sínum, spara á sem allra flestum sviðum. Tímar eins og þessir, sem við nú höfum lifað, eru einmitt tímar til þess að reyna að hafa uppi viðleitni til sparnaðar. Atvinnuástandið er þannig, að það ætti að vera hægt. En í stað þess hefur ríkisstj. eytt meira og meira. Svo að segja allir liðir fjárl. hafa farið sívaxandi frá ári til árs.
Kaupgjaldsmálin hefur borið mjög á góma í þessum umræðum um daginn og svo aftur núna. Í því sambandi vil ég skjóta fram einni athugasemd. Hvers vegna skyldu í raun og veru vera á ferðinni kröfur um hærra kaupgjald? Hæstv. ríkisstj. hefur talið sig vera formælanda svokallaðra frjálsra viðskipta og þá væntanlega einnig á vinnumarkaðnum. Hæstv. ríkisstj. telur væntanlega ekki, að þau lögmál, sem hún hvað eftir annað vitnar í að eigi að fá að ráða og eðlilegt sé að fái að ráða á vörumarkaðnum, lögmálin um framboð og eftirspurn, séu og eigi að vera algerlega óvirk á vinnumarkaðnum.
En hvernig er ástandið á vinnumarkaðnum? Það vita allir, að undanfarin 2–3 ár hefur verið mikið um yfirvinnu. Það er yfirleitt unnið 2, ef ekki 3 tíma í yfirvinnu, og stundum meira. Mikið hefur að því kveðið, að greitt hafi verið meira en samkv. gildandi taxta, það hefur verið um yfirgreiðslur að ræða, og alls staðar þar, sem kaupgjald fer eftir ákvæðisvinnutöxtum, en ekki eftir tímatöxtum, hefur raunveruleg útkoma úr ákvæðisvinnunni verið miklu meiri en úr tímavinnunni. Ef höfð er hliðsjón af þeim sígildu markaðslögmálum frjálsra viðskipta, sem hæstv. ríkisstj. er alltaf að vitna í og telur að eigi að fá að ráða alls staðar, þar sem þeirra geti gætt, ber þá þetta vitni um, að vinnan sé of hátt metin í gildandi kauptöxtum? Er ekki yfirvinnan og yfirgreiðslutaxtarnir ótvíræð sönnun þess, að þar, sem um frjáls viðskipti milli vinnusala og vinnukaupanda er að ræða, eru gildandi taxtar taldir of lágir? Yfirvinnan og yfirgreiðslurnar virðast m. ö. o. bera vitni um það, ef lögmál frjálsra viðskipta eru höfð í huga, að framleiðsluöflin séu ekki rétt hagnýtt, að það sé um að ræða ofnotkun á vinnunni. Það virðist borga sig að hagnýta vinnu umfram venjulegan vinnutíma og meira að segja greiða verulega umfram taxta. Hverjum getur þá komið á óvart, þó að þrýstingur sé á vinnulaunataxtana upp á við? Allra sízt þeim mönnum, formælendum hæstv. ríkisstj., sem sýknt og heilagt hafa verið að vitna í, að það séu markaðsöflin, sem eigi að fá að ráða á vörumarkaðnum. Hverjir geta rekið upp stór augu, þegar sömu aflanna fer einnig að gæta á vinnumarkaðnum? Halda þeir menn, sem hafa gagngera vantrú á því, að það sé til nokkurs að blanda afskiptum ríkisvalds í þessi frjálsu öfl markaðsins á vörumarkaðnum, að geti verið eðlilegt eða sanngjarnt að spyrna gegn þessari hreyfingu, þegar sömu öflin verka á vinnumarkaðnum?
Í umræðunum hefur oftar en einu sinni verið vitnað í athugun hagstofustjórans, Klemens Tryggvasonar, og Ólafs prófessors Björnssonar, sem að aðalniðurstöðu er talin leiða það í ljós, að raunverulegur kaupmáttur verkamanna hafi hækkað um 1.1 % á s. l. tveim árum. Ég get tekið undir það, sem hæstv. fjmrh. sagði, að enginn, sem þekkir til, efast um vilja þessara manna til þess að leysa samvizkusamlega úr þeim dæmum, sem fyrir þá eru lögð En hafa verður hliðsjón af því, hvernig dæmið er, sem fyrir mann er lagt. Með hliðsjón af því getur margt verið við þessa niðurstöðu að athuga.
Í fyrsta lagi verður að benda á, að aukning kaupmáttarins fæst með því að taka tillit til skattalækkunar, til þeirra breytinga á skattstiganum, sem gerðar voru á síðasta þingi. En það má mjög um það deila, hvort það hafi verið eðlilegt í þessu sambandi að taka slíkt tillit til skattalækkunarinnar sem gert var, blátt áfram af því, að allir aðrir liðir, sem ganga inn í þessa athugun, eru þannig, að sama verðlagið gildir fyrir alla menn, hvort sem þeir hafa háar tekjur, lágar tekjur eða engar tekjur. Allir menn, hver sem tekjuhæð þeirra er, kaupa kartöflur og vefnaðarvörur á sama verði. En þessi kostnaðarliður, sem þarna er tekinn með í framfærslukostnaðinum, þ. e. a. s. skattarnir, er gerólíkur eftir því, hvaða tekjur menn hafa. Hann er hár, ef menn hafa háar tekjur, en lágur, ef menn hafa lágar tekjur, og enginn, ef menn hafa engar tekjur. Þetta veldur eðlismun á sköttunum sem lið í framfærslukostnaðinum, sem gerir það að verkum, að skattarnir eru yfirleitt ekki reiknaðir með, þegar reiknaðar eru út framfærslukostnaðarvísitölur. Það má mjög um það deila, hvort eðlilegt sé að taka tillit til hans þarna og þá á hvern hátt. En sé áhrifum skattstigalækkunarinnar sleppt, þá verða menn að hafa í huga, að þá kemur út — með aðferðum hagfræðinganna — rýrnun á raunverulegum kaupmætti um 2.9%. Skattalækkunin er m. ö. o. eina atriðið, sem hefur verkað til kaupmáttaraukningar hjá daglaunamanninum. Annars verður í þessu sambandi auðvitað að hafa fyrst og fremst í huga, að öll athugunin var byggð og ætlazt til þess að hún væri gerð á grundvelli vísitölugrundvallarins, sem allir vita að er orðinn mjög gallaður. Eins og hagfræðingarnir fengu dæmið, áttu þeir einskis annars úrkostar en að byggja svo að segja alla athugunina á vísitölugrundvellinum, eins og hann er núna. En þegar kaupgjaldið er bundið vísitölu, eins og nú á sér stað hér, þá er auðvitað ekki nema eðlilegt, að út komi nokkurn veginn óbreyttur kaupmáttur. Það dæmi, sem hæstv. ríkisstj. hefði átt að fela hagfræðingunum að athuga, var að athuga grundvöll vísitölunnar, að athuga hann af fyllstu gagnrýni og segja álit sitt um, hvort þessi grundvöllur væri sómasamlegur mælikvarði á raunverulegan kaupmátt launanna. Þá hygg ég, að skýrslan hefði orðið nokkuð öðruvísi en hún raunverulega varð. Sem dæmi um þetta nægir að benda á eitt, þ. e. a. s. á húsaleiguliðinn, sem er þannig í vísitölunni samkv. lagaákvæðum, að fjarri öllu lagi er. En opinberir embættismenn geta auðvitað ekki gengið fram hjá þeim staðreyndum, sem þar er um að ræða. Húsaleigan er ákveðin svona í vísitölunni, og þá verða þeir að taka tillit til þess í athugunum sínum. En húsaleiguliðurinn er fjarri öllu lagi. Það vita allir — og þeir auðvitað líka. Enn fremur er þess að geta, að neyzlusamsetning hefur breytzt mjög mikið undanfaríð. Almenningur er farinn að neyta annarra vara en áður var. Það vita líka allir, að það skortir algerlega verðupplýsingar um ýmsar þær vörur, sem nú er farið að gæta mjög í almennri neyzlu þeirrar fjölskyldu, sem vísitöluútreikningurinn er miðaður við. Verðlagsstjóri hefur einfaldlega aldrei safnað slíkum upplýsingum, þær eru ekki fyrir hendi, og þess vegna var ekki von, að sérfræðingarnir gætu við þær miðað.
Ég tel, að ef höfð er hliðsjón af þessu, þá megi staðhæfa, að niðurstaðan hafi sýnt, að kaupmátturinn hefur lækkað nokkuð. Þó að ég treysti mér ekki til að nefna ákveðna tölu í því sambandi, þá er staðreyndin sú, að sé höfð hliðsjón af húsaleigunni og hinum nýju neyzluvörum, sem vitað er að hafa hækkað mjög mikið í verði, bátagjaldeyrisvörunum ýmsum, sem nú eru orðnar almennar neyzluvörur, þá sé staðreyndin sú, að niðurstaða athugunarinnar hafi sýnt, að kaupmátturinn hafi lækkað eitthvað. Þó er þetta auðvitað ekki nema önnur hlið á því máli, sem þarf að athuga, þegar svona dæmi er stillt upp. Hin er sú, hvort þjóðartekjurnar hafi aukizt eða minnkað. Eigi maður að gera sér grein fyrir, hvort eðlilegt sé, að tímakaup launþega hækki eða lækki, þá má gera það frá tveim sjónarmiðum. Annars vegar má athuga, hvort tímakaupið skili auknum eða lækkuðum raunverulegum tekjum, eins og þarna var leitazt við að gera á ófullkominn hátt, og svo hins vegar, hvort þjóðartekjurnar í heild hafi vaxið eða minnkað, því að hafi þjóðartekjurnar í heild vaxið, þá er auðvitað eðlilegt, að það komi m. a. fram í því, að tímakaupið hækki, af það kemur ekki fram í hinu, að verðlagið lækki. Það er búið að sanna, að það hefur ekki komið fram í því, að verðlagið lækki, það sýnir athugun hagfræðinganna. Verkamenn hafa m. ö. o. ekki fengið raunverulega kjarabót í lækkuðu verðlagi, raunverulegar tekjur þeirra hafa ekki aukizt þannig, og þá er spurningin: Er þróun þjóðarteknanna þannig, að engin ástæða sé til slíks? Hver skyldi sannleikurinn vera um þetta? Mér finnst mjög eðlilegt, að næsta spor hæstv. ríkisstj. verði að fela þessum mönnum eða einhverjum öðrum að athuga það. Ég veit, að um það eru ekki til fullkomnar skýrslur. Þó veit ég það samkvæmt sæmilega áreiðanlegri athugun, að 1952–53 má telja, að þjóðartekjurnar hafi vaxið um 10–15%, og ég þori að staðhæfa, eins og allar aðstæður eru, að þær hafa ekki vaxið um minna á árunum 1953–54, þannig að óhætt muni vera að segja, að þjóðartekjurnar á s. l. tveimur árum hafi vaxið einhvers staðar á milli 20 og 30%. (Gripið fram í.) Auðvitað, ég ætlaði einmitt að koma að því. Hlutdeild í þessari aukningu hafa launþegar sumpart fengið á þann hátt, að yfirvinna hefur vaxið, en það þarf að athuga, hvort allur tekjuaukinn sé í því falinn. Ég leyfi mér mjög að draga í efa, að svo sé, en þetta þyrfti að athuga. Ef þessum hliðum á málinn er sleppt, þá er aðeins verið að ræða um aðra hliðina, en hin, sem er ekki síður mikilsverð, algerlega vanrækt. Það er um ófullnægjandi, ef ekki beinlínis villandi málflutning að ræða.