07.03.1955
Sameinað þing: 43. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1881 í B-deild Alþingistíðinda. (3170)
Bráðabirgðayfirlit um rekstrarafkomu ríkisjóðs á árinu 1954
Viðskmrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Ég hafði nú ekki ætlað mér að blanda mér inn í þær löngu umræður, sem hafa orðið um þetta mál hér í þinginu. Ég tel, að þær hafi orðið til góðs. Ég tel það mikils virði, að menn fást til þess að ræða um þessi mál af fullri hreinskilni, eins og gert hefur verið oft í þessum umræðum, og ég tel það mikla framför hjá foringjum verkalýðsins, að í stað þess að hefja verkfall á tilsettum tíma, gefa þeir sér tíma til að ræða þessi mál í fullu bróðerni. Það verður að fyrirgefast, þó að þeim sé gjarnt á öfgar oft og tíðum, eins og t. d. hv. 2. þm. Reykv., sem talaði hér áðan langt mál. Ég veit, að sá hv. þm. meinar það, að hann vill verkalýðnum vel, en honum hættir við því að tala sig upp í æsing og segja stundum það, sem hann sjálfur jafnvel ekki meinar. Ég hygg, að ég og hv. 2. þm. Reykv. eigum það sameiginlegt að vilja gera okkar bezta fyrir vinnandi fólk í þessu landi.
Ég kem hingað aðallega til að leiðrétta misskilning, sem kom fram hjá hv. þm. og byggist á því, að hann hefur ekki kynnt sér nógu rækilega það plagg, sem hann byrjaði á að ræða hér í upphafi máls síns. Það er álit hagstofustjórans og prófessors Ólafs Björnssonar. Hann hefur ekki kynnt sér það frá grunni, ekki það, á hverju þessir hagfræðingar byggja álit sitt. Hv. þm. byrjaði að ræða um það, að 1939, þegar vísitölugrundvöllurinn var fenginn, hafi verið svo mikil fátækt hér í landi og sú neyzla, sem fólki þá var ætluð, svo lítil, að það væri engin sanngirni að byggja á slíku nú, þegar verið væri að reikna út kaupmátt launanna. Og þessu er ég alveg samþykkur, því að það er mikill munur á kjörum fólks nú og 1939. Menn leyfa sér nú í neyzlu það, sem þeir gátu ekki leyft sér þá. Þess vegna er það, að það var ekki við þann útreikning, sem nú var gerður á kaupmætti launa, 1. jan. 1953 og 1. jan. 1955, byggt á þeim grundvelli, gamla vísitölugrundvellinum, heldur var byggt á nýjum grundvelli, sem verið er að vinna að og reikna út og ég vænti að hv. 2. þm. Reykv. hafi hugmynd um. Kauplagsnefnd hefur undanfarið unnið að útreikningum á nýjum vísitölugrundvelli og hefur sérstaklega falið fulltrúa Alþýðusambandsins að finna út þennan grundvöll. Niðurstöðurnar á þessum grundvelli eru þegar fengnar að mestu leyti, þannig að hagfræðingarnir treystu sér til þess að byggja á honum. Og þar er sannarlega gert ráð fyrir meiri neyzlu heldur en 1939. Þar er gert ráð fyrir þeirri neyzlu, sem almenningur í dag lætur eftir sér. Það er þess vegna, að álit þessara hagfræðinga er meira virði en ef það hefði verið byggt á gamla grundvellinum, sem hvorki ég né hv. 2. þm. Reykv. viljum í dag viðurkenna, vegna þess að við vitum, að lífskjörin eru betri en 1939, og við viljum hafa þau betri en þau voru 1939. Þessu áliti hagfræðinganna var heldur þunglega tekið, þegar það kom. Ríkisstj. vildi gera sér grein fyrir því fyllilega, hvernig væri varið með kaupmátt launanna í dag. Var því þannig varið, að kaupmáttur launanna hafi rýrnað verulega undanfarin 2 ár, þannig að það væri ólíklegt, að almenningur í þessu landi gæti í dag lifað á þeim launum, sem hann fær? Ríkisstj. fannst sér skylt að rannsaka þetta. Hún gat ekki leitað að betri stað en til hagstofustjóra og annars góðs hagfræðings, og mér finnst, að ummælin í Þjóðviljanum í garð okkar ágætu stofnunar, hagstofunnar, og þessara hagfræðinga séu ómakleg með öllu. Það er áreiðanlegt, að þeir hafa unnið sitt starf af þekkingu og óhlutdrægni. Að útkoman í álitinu er eins og raun ber vitni, stafar af því, að kaupmáttur launanna hefur ekki rýrnað á þessum tíma.
Hv. 2. þm. Reykv. talaði hér áðan um húsaleiguna og húsaleiguokrið og vildi sérstaklega halda því fram, að húsaleigan hafi hækkað mikið. Hagfræðingarnir gera ráð fyrir tveimur möguleikum: að húsaleigan hafi hækkað um 3% og ef til vill 6%. Nú vitum við, að mikill meiri hluti býr í sama húsnæði nú og með sama tilkostnaði og fyrir 2 árum, og þegar reiknað er út jafnaðarverð, jafnaðarhækkun á húsaleigu, þá er það vitanlega geysileg hækkun á nýjasta húsnæðinu, ef á að fá út úr því 3–6% hækkun. Og í dag býr stór meiri hluti verkamanna og launþega í sama húsnæði og hann bjó fyrir 2 árum og í ekki dýrara húsnæði. Tölurnar, sem hagfræðingarnir komu með um húsaleiguna, eru þess vegna mjög nærri sanni. Þeir telja til þess að vera sanngjarnir og réttlátir, að það megi alveg eins fara upp undir 6% eins og 3%.
Svo getum við hv. 2. þm. Reykv. verið sammála um, að það væri mjög æskilegt að hækka launin í dag, þrátt fyrir það að kaupmáttur þeirra hafi ekki rýrnað frá því í desember 1952. Við óskum eftir því, að lífskjör fólksins í dag megi vera betri en fyrir 2 árum, og við teljum, að þróunin í íslenzku þjóðlífi sé á réttri leið, ef svo má verða, og viljum að því keppa. En það er ekki nóg að eiga sér óskir. Við verðum líka að gera okkur grein fyrir hinum kalda veruleika, fyrir staðreyndunum, og því er nú verr, að staðreyndirnar sýna það, að okkar höfuðatvinnuvegir hafa nú að undanförnu verið reknir með tapi, og raunhæfir menn telja, að þessir atvinnuvegir þoli ekki að bæta á sig, eins og nú er komið, þyngri böggum; það hljóti að leiða til stærri taprekstrar og til þess, að það verði að innheimta af fólkinu hærri upphæðir til þess að borga töpin. Og til hvers leiðir þá kauphækkunin? Er hún þá til gagns, eða þarf að taka hana alla aftur með nýjum sköttum? Hv. 2. þm. Reykv. skilur og veit, að þetta er ekki til gagns fyrir verkamenn eða launþega. Við höfum stundum látið í ljós, að okkar land væri land möguleikanna, og það er alveg rétt. En ef við viljum vera raunhæfir, verðum við eigi að síður að viðurkenna, að okkar land er að litlu leyti betra en nágrannalöndin. Ef okkar land er ekki betra en nágrannalöndin og býður ekki betri lífskjör en þau, þá er tæplega við því að búast, að fólkið í þessu landi geti búið við betri lífskjör en hjá nágrannaþjóðunum, þar sem lífskjörin eru talin vera sæmileg. Og sé gerður samanburður á lífskjörum Íslendinga og nágrannaþjóðanna, menningarþjóðanna, sem við köllum, þá stenzt Ísland þann samanburð.
Það hefur stundum verið sagt og hv. 2. þm. Reykv. sagði hér áðan, að það væru vissar stéttir þjóðfélagsins, sem hefðu hagnazt meira á undanförnum árum en fyrr, og þessar stéttir gætu greitt — hann sagði það ekki berum orðum, en mátti skilja það — aukin töp atvinnutækjanna eða greitt verkalýðnum uppbætur á það, sem hann nú ber úr býtum. Það má vel vera, að ýmsir græði, einstaklingar og fyrirtæki græði, og ég býst við, að í landi, sem vantar eins margt og Ísland, verði erfitt að lifa, ef gróðamyndun eða fjármagnsmyndun er með öllu útilokuð. Ég býst við því, að í okkar kalda landi, þar sem svo mikið er ógert, megum við ekki haga okkur eins og hinar frumstæðu þjóðir í Suðurlöndum, sem þurfa ekki að hugsa fyrir morgundeginum til þess að geta lifað og deila öllu, sem þær afla, út fyrir neyzluvörur. Það var sagt frá því í Þjóðviljanum í vetur, hversu þjóðartekjur Íslendinga væru miklar, og ef deilt væri í upphæðina með þeirri tölu, sem fjögurra manna fjölskylda á Íslandi gaf tilefni til, þá kom út talan 87. Af því var dregin sú ályktun, að tekjur hverrar fjögurra manna fjölskyldu á Íslandi væru 87 þús. kr. eða gætu verið það. Þá var reiknað með öllu, tekjum bæjar- og sveitarfélaga og fyrirtækja, og ég býst ekki við, að hv. 2. þm. Reykv. meini það, að hann teldi eðlilegt að úthluta öllum þessum tekjum til neyzlu- og eyðsluvarnings. Hvað hefðum við þá til þess að byggja fyrir brýr, vegi og leggja rafmagn og gera annað, sem við eigum ógert í okkar hálfnumda landi? Það verður að vera fjármagnsmyndun í landinu, sem er notuð á réttan hátt til uppbyggingar atvinnulífinu og til þess að bæta lífskjör fólksins. Það er eina ráðið til þess, að fólkið í þessu landi geti lifað góðu lífi, þ. e., að hér sé öruggur atvinnurekstur, sem gefur einhvern arð.
Ég ætlaði mér ekki að tala langt mál, en ég vil aðeins drepa hér á tvö atriði, sem ræðumaður gerði að umtalsefni. Hann var að tala um álagninguna á sementi. Af því að margur, sem á hann hlustaði, hefði getað ímyndað sér, að hér væri um okurálagningu að ræða, þá vil ég upplýsa það, að það er stutt síðan ég sá verðlagsútreikning yfir sement, og þar er álagningin 3% í heildsölu, og verðgæzlustjóri getur staðfest þetta, ef hv. 2. þm. Reykv. finnst þörf á því eða et hann vill rengja mig. Hann talaði um afnám verðlagseftirlits og að gróðamyndunin hefði verið meiri síðan, en það var óheppilegt, að hann gerði það á sama tíma og hann minntist á, að stór verzlunarfyrirtæki væru að fara á höfuðið, eins og það er kallað. Þessi hv. 2. þm. Reykv. getur ekki nefnt eitt einasta verzlunarfyrirtæki, sem fór á höfuðið, á meðan verðlagseftirlitið var í algleymingi. Þá döfnuðu allar verzlanir. Þær fylgdu þeirri álagningu, sem verðlagseftirlitið leyfði, og þá fór engin yfir um. Það var ekki fyrr en hin frjálsa verðmyndun kom og samkeppni myndaðist, sem það reyndi á kappann að reka verzlun, og þá var það, að þegar hin frjálsa verðmyndun hafði staðið í þrjú til fjögur ár, var ein stærsta verzlun í miðbænum í Reykjavík að falli komin og meira en það. Og það er haft eftir einum stjórnmálamanni, að það séu margar verzlanir hér í Rvík að falli komnar, vegna þess að þær hafi ekki þolað samkeppnina. Hver vill nú halda því fram, að slæmt sé fyrir fólkið í landinu að hafa fengið vöruna á þessu samkeppnisverði? Hver vill halda því fram, að það sé slæmt fyrir fólkið í Rvík að hafa átt þess kost í allan vetur að kaupa vörur á innkaupsverði og jafnvel fyrir neðan það á útsölum ? Hefði verið betra, að það hefði verið hámarksálagning á þessum vörum með verðlagseftirliti og að enginn hefði selt undir því, sem verðlagseftirlitið leyfði? Og er ekki líklegt, að með þeirri samkeppni, sem þannig hefur verið rekin núna undanfarið í verzluninni, heltist þeir úr lestinni, sem eiga ekki að fást við verzlun, heldur finna sér einhverja aðra atvinnu? Og er ekki þá einnig líklegt, að sá fjöldi manna, sem sækist eftir því að reka verzlun, verði minni en áður var, þegar það sýnir sig, að það er áhættusamt og það er aðeins fyrir þá, sem einhvern kraft hafa, að leggja út í slíkt? Mig minnir, að ég hafi heyrt hv. 2. þm. Reykv. halda því fram, að verzlanir væru of margar. En það er eina ráðið til að tryggja það, að verzlanir séu ekki of margar, að gera verzlunina með samkeppninni það erfiða, að aðeins þeir, sem skara fram úr, geti staðizt samkeppnina, aðeins þeir, sem bjóða fólkinu góð kjör, góðar vörur með sanngjörnu verði, en ekki fúskararnir, sem eru verndaðir með verðlagseftirliti og hámarksálagningu.
Við erum sammála um það, hv. 2. þm. Reykv. og ég, að atvinnulífið eigi að efla, það eigi að auka framleiðsluna og að það eitt geti verndað krónuna. Ég skrifaði upp áðan, þegar þessi hv. þm. var að tala um krónuna og hvað þyrfti að gera til þess að halda henni uppi, setningu innan gæsalappa, sem er eftir honum: „Gengið byggist á útflutningsframleiðslunni og því verði, sem fæst á erlendum markaði.“ Þetta er alveg rétt. Gengið byggist á þessu. En ef gengið byggist á þessu og ef þjóðartekjurnar byggjast á því, hvað við fáum á erlendum markaði, þá er arðurinn og það, sem við höfum að úthluta á milli þeirra, sem vinna að framleiðslunni, undir því komið, hvað það er, sem við fáum á erlendum markaði. Ég vil leyfa mér að taka dæmi, sem ég skrifaði líka upp undir hans ræðu: Tíu menn vinna að framleiðslu á útflutningsvöru, og þeir selja þessa vöru fyrir 1000 pund, sem er hér um bil 45400 kr. Nú á að skipta þessum þúsund pundum jafnt á milli þessara tíu manna. En þeir segja: Ég vil ekki sætta mig við það að fá 4540 kr., ég vil fá 5400 kr. — Það sjá allir, að ef þeir sætta sig ekki við 4540 kr., sem er 1/10 af þúsund pundum með því gengi, sem núna er, þá verða þeir að sætta sig við að fá minni krónur. Og það er þetta, sem gengið byggist á, eins og hv. 2. þm. Reykv. sagði áðan. Það byggist á því verði, sem fæst fyrir framleiðsluna. Og ef menn vilja ekki sætta sig við staðreyndirnar og byggja á þeim, sætta sig við það, sem er til í raunveruleikanum til að skipta á milli manna, þá leiðir það til þess, að það verða verðminni krónur, sem hver einstaklingur getur fengið, því að það eru aðeins þúsund pund til þess að skipta upp. Og það er það, sem hér er verið að ræða um dag eftir dag, að þrátt fyrir það að útflutningsframleiðslan sé rekin með tapi, þá koma hér menn, skynsamir menn eins og hv. 2. þm. Reykv., og segja: Við sættum okkur alls ekki við það, sem fæst fyrir útflutningsframleiðsluna. Við viljum fá meira. — En vegna þess að það er ekki hægt að fá meira en þúsund pundin og hv. 2. þm. Reykv. ætlar samt að heimta meira, þá er ekkert annað til í dæminu en að fjölga krónunum og smækka þær, úthluta sama verðmæti í öðru formi en áður hafði verið. Og það er enginn sælli fyrir það, þó að hann fái hlutnum skipt á þann veg. Mig undrar það, af því að hv. 2. þm. Reykv. þekkir grundvöllinn að því að gera krónuna sterka, sbr. setninguna, sem ég las eftir honum áðan, að hann skuli samt sem áður halda fram öðru í sömu ræðunni, sem stangast alveg við þennan grundvöll og þessa staðreynd.
Ég þarf ekki að hafa þessa ræðu öllu lengri. Ég vil þó aðeins minna á það, sem hefur verið bent á hér, að það væri nauðsynlegt að skipa nefnd hlutlausra, fróðra og velviljaðra manna til þess að rannsaka greiðslugetu atvinnuveganna. Og það hefur verið sagt hér af flestum, sem til máls hafa tekið, að það sé eðlilegt og sjálfsagt, að verkamenn og þeir, sem lægst eru launaðir, fái sinn hlut af aukningu framleiðslunnar, af aukningu arðsins. Og ég vil undirstrika það. Ég vil láta vinnandi fólkið fá sinn hlut af aukningu arðsins. Ef hv. 2. þm. Reykv. og þeir, sem halda fram hans skoðun, telja víst, að það sé grundvöllur í dag fyrir kauphækkunum, þá eiga þeir að taka með fögnuði þeirri till., að það sé skipuð hlutlaus nefnd til þess að rannsaka málið, því að ef þeir eru vissir í sinni sök, þá hlýtur niðurstaðan að verða þeim í vil. Og vegna þess að mér virðist þessir menn vera í mikilli framför, þar sem þeir í stað þess að skella á verkfalli gefa tíma til athugunar og umræðna um þessi mál, þá vænti ég þess, að það verði samkomulag um slíka nefnd og að þetta verði rannsakað á hlutlausan hátt og með því tryggt, að verkamenn og launþegar fáí sinn hlut af auknum arði, ef hann er fyrir hendi. En ef hann er ekki fyrir hendi, þá er augljóst, að það er ekki neitt til til þess að skipta upp fram yfir það, sem gert hefur verið.