02.11.1954
Sameinað þing: 8. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1919 í B-deild Alþingistíðinda. (3179)

Varnarmálin, skýrsla utanríkisráðherra

Haraldur Guðmundsson:

Ég vil leyfa mér að flytja hæstv. utanrrh. þakkir fyrir þessa skýrslu, sem hann hér hefur flutt, svo langt sem hún nær.

Meðgöngutími hæstv. ráðh. er nú orðinn býsna langur, því að ég ætla, að það séu komnir nær því 13 mánuðir, síðan hann tók við starfi sínu sem utanrrh. Þegar hann tók við því starfi, gaf ríkisstj. út tilkynningu um fyrirætlanir sínar í sambandi við varnarmálin og framkvæmd samningsins við Bandaríkin.

Í desember 1953, að ég ætla, tilkynnti hæstv. ráðh. Alþ. í tilefni af þáltill., sem við Alþfl.menn bárum fram í Sþ. um endurskoðun varnarsamningsins, að hann hefði snúið sér til Bandaríkjastjórnar og óskað eftir, að samningar yrðu teknir upp um breytingar á samningnum og framkvæmd hans. Svo leið og beið fram yfir áramótin, ég ætla þangað til í byrjun febrúar, að afstöðnum bæjarstjórnarkosningum hér í Reykjavík, að þá var tilkynnt, að komnir væru hingað menn frá Bandaríkjunum til þess að hefja þessar viðræður. Þegar liðið var fram undir lok marzmánaðar, þurfti hæstv. utanrrh. að fara til útlanda í nauðsynlegum erindum, en tilkynnti Alþ., áður en hann fór, að samningaviðræðum væri nú langt komið og hann teldi vonir standa til og teldi sig raunar mega treysta því, að í öllum meginatriðum mundi verða orðið við tilmælum íslenzkra stjórnarvalda um breytingar á samningnum. Hins vegar vildi hann ekki gefa neina skýrslu þá um efnisatriði málsins eða hvað það væri, sem íslenzka ríkisstj. hefði farið fram á. Hann tilkynnti þá og, að í síðasta lagi hinn 12. apríl n. k. mundi hann gefa Alþingi skýrslu um niðurstöður samninganna, og jafnframt, að Alþ. mundi ekki verða lokið fyrr en eftir þann tíma.

Hinn 13. apríl flutti svo hæstv. utanrrh. skýrslu sína fyrir Alþ., en efni hennar var það eitt, að hann hefði ekkert að segja, samningunum væri ekki lokið og hann gæti hvorki skýrt frá því, hvað farið hefði verið fram á, né heldur við hverju hefði verið orðið af þeim tilmælum, sem ríkisstj. flutti. Leið svo enn fram í maí, ég ætla seint í maí, 26. eða 27. maí, að þá birtist tilkynning í blaði hæstv. ráðh. um niðurstöður af þessum samningaviðræðum. Og loks nú, eftir að Alþ. hefur setið á rökstólum talsvert á fjórðu viku, sér svo hæstv. ráðh. ástæðu til þess að flytja þinginu skýrslu sína.

Um þessa skýrslu hæstv. ráðh. er svipað að segja og þær skýrslur, sem hann hefur gefið hér áður, að hún segir furðu lítið. Hún segir ekkert um það, hverju hæstv. ráðh. hefur farið fram á að yrði breytt í varnarsamningnum og framkvæmd hans. Hún segir nokkuð um það, sem eigi að gera, en þó harla ónákvæmt að minni hyggju.

Hæstv. ráðh. sagði í upphafi ræðu sinnar nú, að samningarnir við Bandaríkjamenn hefðu gengið hægt. Við fórum fram á margt, segir hann, sem erfitt var að fá Bandaríkjamenn til þess að fallast á, og þeir féllust ekki á sumt. Hins vegar lét hann alveg vera að skýra frá því hvað þetta marga var, sem íslenzk stjórnarvöld fóru fram á og sumpart var erfitt að fá Bandaríkin til að fallast á og sumpart reyndist ekki kleift að fá Bandaríkin til að fallast á.

Í þáltill. þeirri, sem við Alþfl.-menn fluttum hér á síðasta þingi um endurskoðun varnarsamningsins, var drepið á allmörg atriði, sem við gerðum okkur vonir um að hæstv. ríkisstj. mundi taka upp og bera fram sem óskir og kröfur Íslendinga í sambandi við endurskoðun samninganna. Af þeim atriðum, sem þar eru talin upp, eru í raun og veru ekki nema tvö atriði, að nokkru leyti þrjú þó, sem hæstv. ráðh. drap á í skýrslu sinni nú, og veit ég ekki, hvort hann hefur hreyft öðrum í þeim viðræðum, sem hann átti við fulltrúa Bandaríkjanna, en það upplýsist væntanlega seinna.

Hæstv. ráðh. hóf mál sitt með því að segja, að mikil óánægja hefði verið meðal Íslendinga með framkvæmd samningsins og einstök atriði hans og það hefði einmitt verið ástæðan til þess, að svo röggsamlega hefði nú verið snúizt við málinu og gengið eftir því að fá breytingar á samningnum.

Fram til þessa hefur lítil breyting orðið á framkvæmd samningsins, sem landsmenn hafa orðið varir við, en hæstv. ráðh. segir, að þetta sé í vændum, og er vel, ef það sýnir sig, að svo verður sem hann segir.

Þau atriði, sem hæstv. ráðh. telur að samið hafi verið um, eru:

Í fyrsta lagi, að framkvæmdum skuli hagað þannig, að fullt tillit sé tekið til íslenzkra atvinnuvega við ráðningu starfsmanna í þjónustu herliðsins og til annarra framkvæmda á flugvellinum.

Hér er um mjög óákveðið orðalag að ræða, því að það má náttúrlega deila um það óendanlega, að hve miklu leyti þetta sé gert, þegar til framkvæmdanna kemur. Hæstv. ráðh. segir, að nú þegar hafi íslenzkum starfsmönnum á vellinum fækkað um 600 frá því, þegar þeir voru flestir. Ég vil ekki vefengja þessar tölur, en hitt er víst, að allmiklu raski hefur þessi mikla setuliðsvinna valdið fyrir íslenzka atvinnuvegi og íslenzkt fjárhagslíf á undanförnum tímum. Ég mundi mjög óska, að hægt væri að skýra nánar frá þessu atriði en gert hefur verið. Mér skilst í sambandi við það, sem síðar er upplýst, að það, hversu mikinn mannafla þarf til framkvæmdanna þarna á Keflavíkurflugvelli og annars staðar á landinu, hljóti að sjálfsögðu að fara eftir því, hve mikið er gert ráð fyrir að verði unnið að framkvæmdum hér á næstunni. Um það upplýsti hæstv. ráðh. ekki neitt.

Hann segir enn fremur, að samið hafi verið um, að Íslendingum verði gefinn kostur á ýmiss konar tækniþjálfun. En það, sem hann nefni í því efni, var fyrst og fremst það að fara með stórar vinnuvélar, stjórna þeim og beita þeim til verka; enn fremur að milli 50 og 60 ungir Íslendingar mundu fara til Vesturheims til þess að kynna sér ýmis störf í þessu sambandi. Nánar fór hæstv. ráðh. ekki inn á þetta, hvaða störf það væru, sem hægt væri að taka nú úr höndum útlendra manna og leggja í hendur íslenzkra nú þegar eða þegar þeirri tækniþjálfun væri lokið, sem hann gat um.

Loks er svo það, sem mun vera talið eitt stærsta atriðið í þessu efni, og það er, að sá erlendi aðalverktaki, sem mestar framkvæmdir hefur haft á Keflavíkurflugvelli, muni hætta algerlega nú um áramótin næstu og hverfa af landi brott. Síðan á, eftir því sem hæstv. ráðherra segir, að úthluta nýjum verkum til Íslendinga, þ. e. a. s. þeim nýjum verkum, sem Íslendingar reynast færir um að inna af hendi. Ef ágreiningur rís um það, hvort Íslendingar séu færir um að inna þessi verk af hendi, þá á ríkisstj. að leysa úr ágreiningnum, segir hæstv. ráðherra. En ef það nú kemur í ljós, að Íslendingar reynast ekki færir um að taka að sér þessi verk, hvað er þá? Eiga þá verkin að vera óunnin, eða eiga þá erlendir verktakar að taka þau, og hver dæmir um í þessu efni? Er það íslenzka ríkisstj., sem þá á að reyna að leysa úr ágreiningi, eins og hæstv. ráðh. orðaði það?

Þá taldi hæstv. ráðh., að með því að girða Keflavíkurflugvöllinn eða varnarsvæðið, eins og hann kallaði það, hefði mjög mikið áunnizt. Ég álít, að það hefði fyrir löngu átt að vera búið að girða þetta varnarsvæði. En eftir því sem mér er tjáð, er sú girðing, sem nú er verið að vinna að, að miklu leyti endurnýjun á girðingu, sem þarna var komin áður, kannske gerð eitthvað rammbyggilegri nú en hún var fyrr, og er það sízt að lasta.

Þá segir hæstv. ráðh. enn fremur, að reglur hafi nú verið settar um ferðir varnarliðsmanna út af þeim svæðum, sem þeim eru ætluð, en um nánara innihald þessara reglna segir hann hins vegar ekki neitt. Hann segir að vísu, að þær séu strangar, strangari en í flestum öðrum löndum, þar sem amerískar varnarsveitir dveljast, en um efni þeirra og innihald að öðru leyti hefur hæstv. ráðh. ekki viljað segja neitt. Hins vegar hafa verið birtar reglur um ferðir Íslendinga inn á varnarsvæðið, hið girta svæði, og þarf til þess vegabréfaskoðun og annað eftirlit, og skal ég út af fyrir sig ekki hafa neitt út á það að setja. En æskilegt væri, úr því að þær reglur eru birtar og hverjum manni gerðar kunnar, að einnig væru birtar reglurnar um ferðaleyfi varnarsveitanna út af varnarsvæðinu.

Þetta er í stuttu máli það, sem hæstv. ráðh. telur að fengizt hafi með þeim samningum, sem unnið hefur verið að óslitið að telja má frá því í desember s. l. Hitt hefur hæstv. ráðh. látið ógert að nefna, hvað umfram þetta hafi verið farið fram á af Íslendinga hálfu í þessum samningsviðræðum og hver andsvör það hafi hlotið af hálfu Bandaríkjamanna. Og það er í mínum augum mjög mikilsvert atriði. Ég vildi því freista að fá nokkur svör við þessu með því að beina nokkrum fyrirspurnum til hæstv. ráðh., og vík ég þá að þessum sömu atriðum sem ég hér hef drepið á að nokkru leyti og vona, að það varði ekki talið óviðeigandi, þó að ég víki þar aftur að einstöku atriðum.

Fyrst vildi ég í sambandi við það, sem hæstv. ráðh. sagði um, að meiningin væri að tryggja, að íslenzkir verktakar tækju í sínar hendur allar framkvæmdir á vellinum, mega spyrja: Eru nokkur ákvæði í hinu nýja samkomulagi, sem gera ráð fyrir því, að stjórn Bandaríkjanna geti falið erlendum aðilum framkvæmd verka, sem íslenzkir verktakar hafa gert boð í eða ekki verið getinn kostur á að bjóða í? Ég teldi mjög mikilsvert, að hæstv. ráðh. gæti gefið ákveðin svör við þessari spurningu. Eru nokkur ákvæði í samningunum, sem gera ráð fyrir því, að stjórn Bandaríkjanna geti falið erlendum aðilum framkvæmd verka, sem íslenzkir verktakar hafa gert boð í, kannske reynzt ófærir til að framkvæma að dómi stjórnar varnarliðsins, eða hefur ekki verið gefinn kostur á að bjóða í?

Ef fyrri spurningunni yrði svarað játandi, — ég vil taka þetta fram um leið til þess að stytta tímann, — eftir hvaða reglum getur þá stjórn Bandaríkjanna falið erlendum aðilum slíkar framkvæmdir? Geti hins vegar hæstv. ráðh. svarað þessari spurningu algerlega neitandi, þá fellur að sjálfsögðu þessi spurning niður. En ég get ekki neitað því, að mér fundust ummæli hans um trygginguna fyrir því, að íslenzkir verktakar mundu taka allar framkvæmdir í sínar hendur, vera dálítið tvíræð og sérstök áherzla lögð á, að það væri bundið við þau verk ein, sem „vér reyndumst færir um að framkvæma“, eins og hæstv. ráðh. orðaði það.

En í sambandi við þetta og í sambandi við áhrif ferða á Keflavíkurflugvöll á íslenzkt atvinnulíf þykir mér nauðsynlegt að koma enn með eina spurningu, sem lýtur að þessu, og hún er sú: Hverjum framkvæmdum er ólokið á Keflavíkurflugvelli, og hvenær er gert ráð fyrir, að ráðgerðum framkvæmdum verði að mestu lokið, eftir áætlun stjórnar varnarsveitanna? Um þetta finnst mér alveg nauðsynlegt að hæstv. ríkisstj. gefi Alþingi skýrslu, því að því aðeins er hægt að gera sér nokkra hugmynd um það, að upplýsingar um þetta liggi fyrir, hversu miklum íslenzkum vinnukrafti þarf á að halda til þess að inna þessi verk af höndum, ef gert er ráð fyrir því, að verkin séu unnin af íslenzkum verktökum og íslenzkum verkamönnum, en ekki erlendum.

Í fjórða lagi, sem er einnig í sambandi við þriðju spurninguna: Hefur stjórn Bandaríkjanna fengið leyfi ríkisstj. til hafnargerðar í Njarðvík? Ég spyr sérstaklega um þetta atriði af því, að í Tímanum 27. maí, þegar birt er skýrsla hæstv. ráðh., er tekið svo til orða: „Verði leyfð hafnargerð í Njarðvík, hafa íslenzkir og bandarískir verktakar jafnan tilboðsrétt varðandi það verk.“ Því vildi ég beina þessari spurningu sérstaklega til hæstv. ráðh.: Er búið að leyfa hafnargerð í Njarðvík, og hafa þá, eins og segir í Tímanum 27. maí, íslenzkir og bandarískir verktakar jafnan tilboðsrétt í það verk? Og hvernig kemur það heim við það, sem hæstv. ráðh. fyrr hafði sagt um tryggingu fyrir því, að íslenzkir verktakar önnuðust framkvæmdir hér á landi? Í þessari sömu grein eða yfirlýsingu í Tímanum er tekið svo til orða viðvíkjandi því, hvernig fer, þegar boðið er í verkin: „Ef á milli ber við gerð verksamnings, hefur ríkisstj. milligöngu um að leysa úr þeim ágreiningi.“ Hér er enn vægar að orði kveðið en í skýrslu ráðh. áðan. Ef á milli ber um gerð verksamnings, þ. e. hvort Íslendingar eru taldir færir til að inna verkið af hendi og með þeim kjörum, sem hinir sætta sig við, þá hefur ríkisstj. milligöngu við að leysa úr þeim ágreiningi, segir í blaði hæstv. ráðh. 27. maí, í þeirri skýrslu, sem hann þá gaf. Mér virðist þetta gefa í skyn, að ekki sé gert ráð fyrir því í samningnum, að ekki geti erlendir verktakar tekið hér að sér verk, a. m. k. þau, sem Íslendingar teljast ekki að mati þeirra, sem þar um ráða, færir um að inna af hendi.

Í fimmta lagi vildi ég svo spyrja: Hver er ábyrgur fyrir þeim vinnulaunum, sem kynnu að verða óuppgerð og ógoldin, þegar aðalverktakinn ameríski, Metcalfe Hamilton & Co., hverfur af landi burt, og hvert eiga þeir verkamenn, sem kynnu þá að eiga óuppgert, að snúa sér til að fá þá greiðslu?

Þá vil ég víkja að því, sem hæstv. ráðh. sagði um þjálfun Íslendinga. Það eina, sem hann nefndi af sérþjálfun, sérmenntun, sérhæfni í því sambandi, var, að gert væri ráð fyrir því, að þeir skyldu læra að stjórna stórum vinnuvélum og beita þeim til verka og að nokkrir menn mundu fara til Ameríku til að læra þar ýmis störf, en hann lét vera að upplýsa, hvaða störf það væru. Í þessu sambandi vildi ég spyrja hæstv. ráðh.: Hver var afstaða stjórnar Bandaríkjanna til þess, að Íslendingar önnuðust rekstur radarstöðva og önnur slík störf? Ég veit ekki betur en að Íslendingar eigi nú þegar allstóran hóp manna, sem vinnur að alls konar loftskeytaþjónustu og öðru slíku og að því er ég bezt veit með sæmilegum árangri. Ég tel alveg fullvíst, að hæstv. ríkisstj. hafi leitað eftir því, að íslenzkir menn yrðu æfðir til þess að annast störf á varnarstöðvunum, læra þau til fullnustu, þannig að þeir gætu tekið þau störf að sér, sem á þessum stöðum er ætlað að inna af hendi. Hæstv. ráðh. drap ekki á það í sinni ræðu, að nokkrir Íslendingar væru þjálfaðir til þessara verka. Ég vona, að það hafi verið gleymska, hann hafi talið það svo sjálfsagt, að hann hafi ekki talið ástæðu til þess að nefna þá sérstaklega. En þetta gefur mér tilefni til þess að spyrjast fyrir um, hvort undir þessa þjálfun, sem hann hefur talað um, falli ekki einmitt þessi störf á radarstöðvunum víðs vegar um land. — Í framhaldi af því: Hvaða ráðstafanir hefur ríkisstj. gert til þess að þjálfa Íslendinga til þess að taka að sér rekstur og gæzlu þeirra mannvirkja, sem varnarliðið hefur gert hér? Fyrst eru radarstöðvarnar, sem ég hef nú sérstaklega drepið á, í öðru lagi fjarskiptastöðvarnar í Grindavík og á Miðnesi og loftskeytastöðin á Stapanum og aðrar slíkar stöðvar, sem hafa ekki beinlínis unnið að hernaðarlegum störfum eða í þjónustu hernaðarlegra athugana. Ég spyr um þetta sérstaklega með hinar þrjár síðasttöldu, vegna þess að mér virðist sem leikmanni, að það sé ekki víst, að þeim beri að skipa í sama flokk og radarstöðvunum úti um land. Ef það skyldi vera rétt, þá gefst hæstv. ráðh. tilefni til að skýra frá því.

Þá vík ég að reglunum um takmörkun á ferðum varnarsveitamanna út fyrir varnarsvæði. Hæstv. ráðh. gaf í skyn — fannst mér — í ræðu sinni, að þessar reglur hefðu verið settar sem algerlega íslenzkt mál og heyrandi undir íslenzka aðila einhliða af íslenzkum stjórnarvöldum. Í margnefndu Tímablaði frá 27. maí 1954 er nokkuð skýrt frá þessu á annan veg. Þar er sagt, að samtímis því sem aðrar breytingar eru gerðar, hafi verið gert samkomulag milli íslenzku ríkisstj. og yfirmanna varnarliðsins um, á hvern hátt ferðir varnarliðsmanna út af samningssvæðum og ferðir Íslendinga inn á svæðið skuli takmarkaðar framvegis, og gengur það samkomulag í gildi nú þegar. Mér virðist þá eftir þessu, að tekin séu öll tvímæli af um það, að þessar reglur hafi ekki verið settar af íslenzkum stjórnarvöldum einhliða, eins og mér skildist af ræðu hæstv. ráðh. nú, heldur hafi þetta verið samkomulag milli íslenzku ríkisstj. og yfirmanna varnarliðsins, eins og það er orðað í yfirlýsingunni frá 27. maí. Enn fremur segir: „Hafa íslenzk yfirvöld aðstöðu til þess að sjá um, að eftir þessum reglum sé farið.“ M. ö. o.: Þann 27. maí ganga þessar reglur í gildi, og íslenzk yfirvöld hafa þá þegar frá þeim degi aðstöðu til þess að sjá um, að eftir þessum reglum sé farið, og þess er að vænta, að þau hafi gert það. Nú veit ég ekki, hvort hv. þm., sem hér sitja, og aðrir landsmenn hafi orðið varir við stórfellda breytingu frá 27. maí í þessum efnum. Ég hygg, að það sé mjög vafasamt, að menn almennt hafi orðið hennar varir. En einmitt í þessu sambandi og í sambandi við þessi ummæli Tímans frá 27. maí þykir mér rétt að spyrja hæstv. ráðh.: Hvenær var íslenzkum löggæzlumönnum gert kunnugt um efni þeirra reglna, sem frá er greint þann 27. maí að settar hefðu verið um ferðir varnarliðsmanna út af samningssvæðunum og ráðh. sagði að hefðu gengið í gildi þá þegar og íslenzk yfirvöld hefðu aðstæður til að sjá um að hlýtt væri? Hvenær var íslenzkum löggæzlumönnum gert kunnugt um efni þessara reglna, spyr ég um í fyrsta lagi, og hver íslenzk yfirvöld þekkja þessar reglur? Þekkir lögreglan á Keflavíkurflugvelli þessar reglur, hefur hún fengið þær og fyrirmæli um að fara eftir þeim, og þekkja lögreglumennirnir í Reykjavík, þar sem mest er sótt til af varnarliðsmönnum, þessar reglur, og hafa þeir fengið fyrirmæli um að fara eftir þeim?

Þetta, sem ég spyr hér um og ég vænti að hæstv. ráðh. gefi fullnægjandi upplýsingar um, snertir allt þau atriði, sem hæstv. ráðh. telur að um hafi verið samið og samkomulag náðst um. En til viðbótar því vildi ég mega spyrja hæstv. ráðh. enn á ný: Hvað var það, sem íslenzk stjórnarvöld fóru fram á og ekki fékkst samkomulag um við Bandaríkjastjórn? Í fyrsta lagi þá: Var farið fram á það af Íslendinga hálfu, að þegar Íslendingar væru orðnir færir um að taka í sínar hendur gæzlu og umsjón þeirra mannvirkja, sem hér eru, þá yrði uppsagnarfrestur samningsins styttur? Í öðru lagi: Var farið fram á það, að þjónustan á radarstöðvunum væri lögð í hendur íslenzkra manna?

Til viðbótar þessu vildi ég enn fremur spyrja hæstv. ráðh.: Var í sambandi við breytingar á samningunum rætt nokkuð um eða farið fram á af Íslendinga hálfu, að tekið væri fyrir tollfrjálsan innflutning á áfengi, tóbaki og annarri slíkri munaðarvöru til hersins og þeirra útlendinga, sem dveljast við störf á. flugvellinum? Hefur ríkisstj. ekki leitað eftir því að fá þetta afnumið og að sama regla gildi um innflutning á þessum vörum til varnarliðsins og um innflutning á slíkum vörum til landsmanna sjálfra? Ég nefni þessar vörur sérstaklega af því, að engum manni getur dottið í hug, að þessar vörur séu nauðsynlegar til þeirra framkvæmda, sem ráðgert er að vinna á Keflavíkurflugvelli og íslenzku stjórnarvöldin hafa fallizt á. Hins vegar stafar af því mikil hætta, þegar þessar vörur flytjast tollfrjálsar inn í landið, og getur gefið undirstöðu að miklu gróðabraski í sambandi við tollsmygl og annað slíkt, eins og reyndar hæstv. ráðh. drap nokkuð á í sinni ræðu, þar sem hann gerði ráð fyrir því, að girðingin mundi bæta mjög úr misfellum í því efni.

Í öðru lagi — og það er sérstaklega af tilefni blaðaskrifa nú upp á síðkastið — vil ég beina þeirri fyrirspurn til hæstv. ráðh.: Er það rétt, að Hamiltonfélagið krefjist þess af íslenzkum starfsmönnum, að þeir gangi úr ákveðnum stéttarfélögum, og sé svo, hvaða ráðstafanir hefur hæstv. utanrrh. gert í þessu efni, eða hvaða ráðstafanir hyggst hann að gera? Enginn vafi er á því, að í íslenzkum lögum er réttur verkamanna alveg tvímælalaus til þess að ganga í verkalýðsfélög, og ef það er rétt, að Hamiltonfélagið hafi krafizt annars af verkamönnum sínum eða bannað þeim að neyta þessa réttar, þá eru þar beinlínis brotin íslenzk lög.

Í þriðja lagi vildi ég spyrja að því: Hefur verið samið við varnarliðið um framlag þess til vegaviðhalds, og hvaða framlag hefur þá verið samið um og með hverjum hætti verður það greitt?

Ég vona, að hæstv. ráðh. taki þessum spurningum mínum vel og veiti þær upplýsingar, sem um er beðið. Ég tel víst, að hann hafi þær allar á reiðum höndum, því að þetta er allt mál, sem hefur margsinnis verið rætt um hér.

En að lokum vildi ég svo bera fram þau tilmæli til hæstv. ráðh., að hann birti þær reglur, sem settar hafa verið um ferðir varnarliðsmanna út fyrir varnarsvæðin, — að hann birti þessar reglur öllum almenningi, þannig að vitað sé, hverjar þær eru, ekki aðeins af einhverjum fáum löggæzlumönnum, heldur öllum almenningi í landinu. Í öðru lagi vildi ég óska þess, að samningarnir um verklegar framkvæmdir, sem eiga að tryggja það, að Íslendingar, en ekki útlendir verktakar, annist þessi verk, verði einnig birtir, því að um þetta hljóta að vera sérstakir samningar. Í þriðja lagi, að samningar eða reglur eða samkomulag það, sem um er að ræða, um þjálfun Íslendinga til starfa í sambandi við gæzlu mannvirkja og framkvæmdir og annað slíkt verði birt að efni til, þannig að vitað sé með fullri vissu, hvaða störf það eru, sem ætlazt er til að Íslendingar taki, og hvaða störf það eru, sem er ekki talið fært að leggja í hendur Íslendinga, heldur verða að vera í erlendum höndum, að sjálfsögðu annað en það, sem beint lýtur að hernaðarstörfum. Einnig vildi ég óska þess, að aðrir þeir sérsamningar, sem kynnu að hafa verið gerðir í sambandi við þessa endurskoðun samninganna, yrðu einnig birtir.

Mér er óskiljanlegt, hvers vegna þarf að vera leynd yfir þessum efnum. Mér er óskiljanlegt, hvers vegna ekki má birta reglurnar um ferðir varnarliðsmanna út af varnarsvæðunum. Hvað getur verið því til fyrirstöðu, ef til er samningur um það, að Íslendingar skuli annast framkvæmdir þarna á vellinum, að sá samningur sé birtur og gerður almenningi kunnur? Og hvað getur verið því til fyrirstöðu, að almenningur fái að vita það nú þegar, hvaða störf í sambandi við flugvöllinn og stöðvarnar þarna er að ætlun hæstv. ríkisstjórnar hægt að leggja í hendur Íslendinga — að sjálfsögðu ekki hernaðarstörf — og hvaða störf það eru, sem Íslendingar geta ekki unnið og þarf endilega að fá útlenda menn til að vinna?

Ég efast ekki um, að hæstv. utanrrh. sé ljúft að verða við tilmælum mínum um birtingu þessara skjala.

Í Tímanum þann 27. marz 1953 er ályktun 10. flokksþings framsóknarmanna um öryggismálin.

Í 4. lið þessarar ályktunar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Þingið leggur áherzlu á eftirfarandi atriði (og hér kemur 4. atriði):

Að varnarmálin verði rædd meira opinberlega en verið hefur og þjóðinni veittar upplýsingar um þan, eftir því sem unnt er, til þess að koma í veg fyrir kviksögur og óheiðarlegan áróður.“

Þetta er krafa flokksþings framsóknarmanna í marz 1953, að þjóðinni verði veittar upplýsingar um varnarmálin, eftir því sem unnt er, og jafnframt bent á, hversu óheppilegt það sé, að slíkar upplýsingar séu ekki veittar, því að það gefur tilefni til, að upp komi alls konar kviksögur og óheiðarlegur áróður.

Um leið og ég ítreka tilmæli mín til hæstv. ráðh. um að birta þessar reglur, sem ég hef hér drepið á, og skírskota til þessarar ályktunar flokksþingsins, leyfi ég mér mjög að vænta þess, að hæstv. ráðh. og ríkisstj. í heild sjái um, að þessar nýju reglur og breytingar verði birtar alþjóð, ekki aðeins í lauslegri frásögn, eins og hér hefur verið gert, heldur eins og þær eru upp settar og samið er um þær í því samkomulagi, sem gert hefur verið.