04.02.1955
Sameinað þing: 32. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1980 í B-deild Alþingistíðinda. (3202)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Hér hafa verið gerðar að umtalsefni tvær vinnudeilur, sem full ástæða er til að ríkisstj. og Alþingi gefi auga og fylgist með, sérstaklega annarri þeirra, er snýst um það stór mál, að það er ástæða til að bera nokkurn ugg í brjósti út af þróun málanna að því er hana snertir, þ. e. deiluna í Vestmannaeyjum.
Það má segja, að það hafi nú þegar skapazt vandræðaástand í þessari stærstu verstöð landsins, og það ástand er afleiðing af því, að útgerðarmenn í Vestmannaeyjum gripu til þess óvenjulega tiltækis fyrir um það bil mánuði að leggja bann við því, að afgreidd yrði beita til þeirra, sem á sjó vildu fara í bæjarfélaginu. Þetta beitubann er búið að standa síðan, en þann 1. þ. m. hófst þar löglegt verkfall, sem að standa sjómannafélagið Jötunn í Vestmannaeyjum og vélstjórafélagið í Vestmannaeyjum.
Það verkfall — má kannske segja — er því á byrjunarstigi, en verkfallsástand eða öllu réttara verkbannsástand hefur ríkt núna í fullan mánuð í þessum kaupstað, og nú er svo komið, að allt viðskipta- og atvinnulíf er þar lamað. Mér er sagt, að Útvegsbankinn hafi þar lokað reikningum og viðskipti séu mjög dauf í verzlunum. Atvinnulífið er sem sé í rúst, og fjöldi aðkomufólks reikar þar fram og aftur og veit ekki, hvað það á af sér að gera, og margir af aðkomufólkinu, sem ætluðu að stunda þar atvinnu í sambandi við sjóróðra á vertíðinni, hafa þegar horfið frá aftur og leitað á aðra staði.
Að því er gang vinnudeilunnar snertir, þá er ekki hægt að segja annað en það hefur gengið sinn reglulega og venjulega gang, að það hefur verið leitað samninga. Samningar hafa ekki náðst til þessa. Sáttasemjari ríkisins hefur tekið deiluna að sér, ekki haft ástæður til þess að fara sjálfur þangað, en sett þar umboðsmann fyrir sig, og sáttaumleitun hefur farið fram og miðlunartillaga verið felld af báðum aðilum. Nú hefur sáttasemjari ríkisins óskað þess, að þeir, sem verkfallinu stjórna í Vestmannaeyjum, en það snýst eins og kunnugt er um fiskverðið og bátagjaldeyrisfríðindin, komi til Reykjavíkur, og ég veit ekki annað en það standi nú fyrir dyrum, að fulltrúar frá sjómannafélaginu Jötni og Vélstjórafélagi Vestmannaeyja komi til Rvíkur til stuttra viðræðna við sáttasemjara ríkisins í dag eða á morgun eða nú sem allra fyrst. Þykir mér það nokkuð miklu varða, hvort talast kunni að leysa málin með þeim viðræðum, sem þá hefjast. Ef til vill gæti hæstv. ríkisstj. í sambandi við það haft áhrif á lausn málsins. En það er mín skoðun, að ef þessi för deiluaðilanna í Vestmannaeyjum á fund sáttasemjara ríkisins her ekki árangur, þá væri ástæða til að taka það til íhugunar, hvort ekki væri nauðsynlegt og rétt að ríkisstj. hlutaðist til um, að skipuð verði sáttanefnd í þessa deilu. Ég tel hana það þýðingarmikla, og það er aðgerð, sem ríkisstj. hefur oft gripið til án þess að leita sérstakra heimilda Alþingis til þess, og er úrræði, sem sjálfsagt er að reyna, áður en aðrar leiðir eru farnar.
Að því er snertir kaupdeiluna á farskipaflotanum, þá vil ég nú segja það, að það mál er allt smærra í sniðum, þó að það sé nú búið að fá allafdrífaríkar afleiðingar. Þarna er í löglegri kjaradeilu fámennt stéttarfélag, sem boðaði að öllu leyti löglega til þessa verkfalls, og hefur þannig stuðning Alþýðusambandsins. Samningar voru reyndir, nefndir skipaðar og undirnefndir til þess að athuga málin, og síðan kom sáttasemjari í deiluna. Nokkrir fundir hafa verið haldnir, en þó að mínu áliti allt of strjált, og fulltrúar framreiðslumanna og matreiðslumanna hafa borið fram tvær till. til tilslökunar frá sínu upphaflega tilboði, en ekkert tilslökunarsvar hefur komið frá skipafélögunum, því miður. Og ég vil láta í ljós hér, að það lítur út fyrir, að eitthvað búi á bak við, þar sem um svo lítil verðmæti er deilt eins og kauphækkun 20–30 manna hjá þremur allstórum skipafélögum, manna, sem óneitanlega höfðu dregizt aftur úr, höfðu lengri vinnutíma og lægri laun en aðrar stéttir á skipunum og þurftu þannig óumdeilanlega að fá lagfæringu á sínum kjörum. Ég trúi því ekki, að menn vilji stöðva 15–20 skip stórskipaflota vegna ágreinings um kaup og kjör 20–30 manna, og hef það á tilfinningunni, að umboðsmenn skipafélaganna séu ekki alveg frjálsir menn við samningaborðið, og það nást aldrei samningar, ef báðir aðilar eru ekki frjálsir menn og geta gert það, sem þeim finnst skynsamlegt, eins og viðhorfin eru hverju sinni. Ég vil vona, að það sé ekki neitt sterkt afl þarna á bak við, sem segi skipafélögunum: Þið megið ekki semja. — En þannig lítur það út frá mínu sjónarmiði. Ég trúi því ekki, að nótt eftir nótt hefði liðið á sátta- og samningafundum, ef báðir aðilar hefðu verið frjálsir gerða sinna, þegar um svona lítil verðmæti var annars vegar að semja, en stórkostleg truflun á þjóðfélaginu og stórkostleg verðmæti fyrir skipafélögin með hverjum sólarhring sem leið, án þess að deilan yrði leyst.
Alvarlegasta hliðin á þessu máli er nú orðin sú, að úti um landið eru heil byggðarlög olíulaus. Það hefur legið við, að rafstöðvar stöðvuðust vegna olíuleysis, og til húsahitunar er mjög lítið um olíubirgðir úti um land líka. Það var leitað til þeirra, sem verkfallinu stjórna, og beðið um undanþágu, og undanþága var veitt fyrir það eina olíuflutningaskip, sem verkfallið hafði tekið til. Hin voru og eru í gangi, og meðan skipið er í þeirri för að leysa þann vanda, sem þar var fyrir hendi, kom fram önnur beiðni frá olíufélögunum öllum sameiginlega um undanþágu að því er snertir rekstur a. m. k. eins eða tveggja og helzt allra olíuflutningaskipanna, og er ekki búið að taka þá beiðni til athugunar. Yfir vofir, að matvælaskortur verði víða úti um land, þar sem birgðir voru litlar, ef deilan dregst á langinn. En hversu langt verkfallsmenn vilja teygja sig til að veita undanþágu á undanþágu ofan, sem vitanlega dregur til þess, að verkfallið verður langvinnara, treysti ég mér ekki til að segja neitt um á þeirri stundu, þegar ekkert liggur fyrir, að ein einasta tilslökun hafi komið á móti tilboðum verkfallsmanna frá hendi hinna sterku skipafélaga, sem þarna eiga tiltölulega mjög litlum útgjöldum að mæta, þó að gengið væri að þeirri kröfu, sem nú liggur fyrir af hendi matsveina og framreiðslumanna. Ég óttast sem sé, að þetta sé ekki að öllu leyti eðlilegt, hversu treglega gengur þarna að semja. Ég er hræddur um, að einhvers konar bann við samningum liggi sem mara á höndum annars aðilans, og það er illa farið.
Annað tel ég ekki ástæðu til að segja að svo komnu máli, en tel Vestmannaeyjadeiluna þess eðlis, að ástæða sé til, að ríkisstj., ef ekki tekst samkomulag nú, þegar Vestmanneyingarnir koma hingað, skipi sáttanefnd í þá deilu.
Það er rétt, sem forsrh. sagði hér áðan, að hann hefur bæði í viðtali við miðstjórn Alþýðusambandsins og síðar með bréfi til Alþýðusambandsins tilkynnt, að samningar séu að hefjast við hina nýju aðila, sem áhrif geti haft á verðlag í landinu, og ríkisstj. hyggist þannig að taka upp á raunhæfan hátt efni þeirrar þáltill., sem hv. 4. þm. Reykv. spurðist hér fyrir um áðan. Ég læt mér í léttu rúmi liggja, úr því sem komið er, hvort Alþingi tekur till. fyrir og afgreiðir hana jákvætt og ríkisstj. síðan fer eftir þeim fyrirmælum, sem Alþingi þannig gefur, eða ríkisstj. fylgir málinu fast eftir núna í febrúarmánuði, og ég fyrir mitt leyti tel það ekki einskis vert, hversu ötullega ríkisstj. vinnur að því máli og hvaða árangri hún gæti skilað af því fyrir næstu mánaðamót.