07.02.1955
Sameinað þing: 33. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 1993 í B-deild Alþingistíðinda. (3213)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Haraldur Guðmundsson:

Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir þær upplýsingar, sem hann hefur veitt, og vil bara bæta því við, að ég vænti þess, að hæstv. ríkisstj. fylgi þessu máli eftir og hlutist til um, eftir því sem í hennar valdi stendur, að brezkum almenningi verði kunnugt um, hvernig í raun og veru liggur í þessum málum.