23.03.1955
Sameinað þing: 48. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2001 í B-deild Alþingistíðinda. (3223)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Hannibal Valdimarsson:
Ég fagna því, að stjórnin, ekki aðeins verkfallsstjórnin, heldur líka ríkisstj., hefur fengið vitneskju um það, hvernig þessi mál standa, því að þetta eru alvarleg mál.
Ríkisstjórnin hefur fengið vitneskju um það, að olíufélögin þrjú, sem hafa umráð yfir allri olíu, sem hæstv. ríkisstj. hefur keypt af Rússum, ætla að selja olíufarm úr landi, og hæstv. ríkisstj. hefur líka fengið að vita það frá þessum aðilum, að ef þau selja þessa olíu úr landi, þá verður olíulaust hér um mánaðartíma, eftir að verkfallinu lýkur. Þetta tel ég vera alveg nauðsynlega vitneskju, ekki aðeins fyrir verkfallsstjórnina, heldur líka fyrir ríkisstj., þessa ágætu ríkisstj., sem við höfum núna. Og það fer ekkert á milll mála, að þessa vitneskju er hæstv. ríkisstj. búin að fá. Framhald málsins er svo aðeins það, að nú fær að sýna sig, hvort hæstv. ríkisstj. ætlar að kalla olíufélögin til ábyrgðar fyrir að hafa selt olíuna, og það teldi ég nú sanni nær eftir venjulegu réttlætismati, eða hún ætlar að kalla verkalýðssamtökin til ábyrgðar fyrir það, að olíufélögin selji olíuna úr landi. Mig langar til að vita, hvernig ríkisstj. lítur á það mál.