25.03.1955
Neðri deild: 65. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2006 í B-deild Alþingistíðinda. (3226)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég vil líka þakka hæstv. forsrh. fyrir þær upplýsingar, sem hann gaf þingheimi og lutu aðallega að áhrifum væntanlegrar kaupgjaldshækkunar á fjárhag ríkissjóðs.

Þetta er önnur skýrslan, sem hæstv. ríkisstj. lætur frá sér fara og talin er snerta vinnudeilur þær, sem nú standa yfir. Hin fyrri var sem kunnugt er athugun hagstofustjórans, Klemenzar Tryggvasonar, og Ólafs prófessors Björnssonar á kaupmætti verkamannalauna eða tímakaups s. l. 2 ár. Nú kemur þessi skýrsla, sem er allmiklu ýtarlegri og fjallar um nokkuð önnur atriði.

Ég efast ekki um, að tölur þær, sem frá var greint í skýrslunni, séu réttar, eins réttar og frekast er unnt að búast við, enda sýnist mér margt benda til þess, að þær séu unnar af þar til bærum mönnum, sem vanir eru að haga verkum sínum mjög samvizkusamlega. En ég vil í þessu sambandi vekja athygli á einu atriði. Fyrst hæstv. ríkisstj. virðist hafa sérstakan áhuga á því að upplýsa almenning um ýmis atriði, sem máli skipta í sambandi við lausn vinnudeilunnar, þá vil ég spyrja hæstv. ríkisstj., hvers vegna henni hefur ekki dottið í hug að biðja sérfróða menn um að upplýsa það, sem þó verður að teljast grundvallaratriði í sambandi við lausn vinnudeilunnar, hvaða breyting hefur orðið á þjóðartekjum Íslendinga undanfarin ár, t. d. s. l. 2 ár eða s. l. 5 ár, svo að ekki sé tekinn lengri tími. Beinast lægi auðvitað við að athuga þá breytingu, sem orðið hefur á þjóðartekjunum s.l. 2 ár eða frá því að síðast var hér háð hörð vinnudeila og gerðir voru samningar um kaup og kjör, sem náðu raunverulega til flestra stétta þjóðfélagsins. Um það getur auðvitað ekki verið ágreiningur, að kjarni málsins í launadeilu sem þessari hlýtur að vera sá, hver breyting hefur raunverulega orðið á tekjum þjóðarbúsins sem heildar. Um það liggja því miður ekki fyrir upplýsingar, þannig að á því verður að gera sérstaka athugun. Þær athuganir, sem á þessu hafa verið gerðar þegar og liggja fyrir, þó að í lauslegu formi sé, og taka til ársins 1953, sýna, að á því ári var um 12–13% aukningu að ræða á þjóðartekjunum, að því er talið er af færustu mönnum, miðað við árið 1952. Mjög margt bendir til þess, að svipuð aukning, þó kannske ívið minni, hafi átt sér stað á þjóðartekjunum 1954, miðað við árið 1953. Á árunum 1952–54 hefur því orðið aukning á þjóðartekjum Íslendinga, að því er bezt verður vitað, einhvers staðar á milli 25% og 30%. Þess er auðvitað að geta í þessu sambandi, að verulegur hluti þessarar þjóðartekjuaukningar á rót sína að rekja til þess, að vinnudagurinn hefur lengzt mikið, þ. e. a. s. að mjög mikið hefur kveðið að yfirvinnu. Að hversu miklu leyti tekjuaukningin á rót sína að rekja til þess arna, verður ekki vitað, og ekki verður gizkað á það nema með sérstakri athugun á málinu. En þó bendir margt til þess, að þjóðartekjuaukningin eigi líka rót sína að rekja til aukinna afkasta þeirra framleiðsluþátta, sem starfa að myndun þjóðarteknanna, vinnunnar og fjármagnsins fyrst og fremst. Ef svo er, að afköst vinnunnar og fjármagnsins hafi aukizt, er sjálfsagt, — um það ætti ekki að geta verið ágreiningur, — að það komi eigendum þessara framleiðsluþátta í vil, helzt í lækkuðu verðlagi, eða ef ekki er kostur á því, þá í auknum kaupmætti tímakaupsins.

Nú er það sannað, m. a. með athugun þeirra tveggja ágætu hagfræðinga, sem ég nefndi áðan, hagstofustjórans og Ólafs prófessors Björnssonar, að á undanförnum tveim árum hefur kaupmáttur tímakaupsins fremur farið minnkandi, og sé tekinn lengri tími, eins og í athugun þeirra hagfræðinga, sem Alþýðusambandið leitaði til, þ. e. a. s. miðað við árið 1947, þá hefur rýrnunin orðið enn meiri. En á þessum tveim athugunum er enginn verulegur munur, ef þær eru skoðaðar í réttu ljósi. Milli þessa tvenns virðist því vera ósamræmi. Það hefur átt sér stað minnkun á raunverulegum kaupmætti tímakaups verkamanna, samtímis því sem ýmislegt bendir til þess, að afköst í þjóðarbúinu hafi aukizt. Þetta er auðvitað kjarni málsins.

Kjarni þessarar launadeilu hlýtur að teljast sá að leiðrétta tekjuskiptinguna hinum lægra launuðu og þá sérstaklega hinum lægst launuðu í vil. Ef raunverulegur vilji er fyrir því að leysa þetta verkefni réttlátlega og sanngjarnlega, virðist fyrsta ráðstöfunin, sem gera þarf, vera sú að gera athugun á þjóðartekjunum og breytingunni á þeim, að hve miklu leyti hún á rót sína að rekja til yfirvinnunnar og að hversu miklu leyti hún á rót sína að rekja til aukinna afkasta, sem sjálfsagt er að launastéttirnar og þó einkum þær lægst launuðu fái hlutdeild sína í. Þetta hefur hæstv. ríkisstj. fram til þessa því miður vanrækt. Hún hefur látið gera tvær ýtarlegar og svo langt sem þær ná ágætar hagfræðilegar athuganir, sem sumpart liggja fyrir almenningi og sumpart munu nú verða lagðar fyrir almenning. En þriðju og mikilvægustu athugunina vantar enn, sem er á breytingunni á þjóðartekjunum. Ég vona, að hæstv. ríkisstj. láti það ekki dragast of lengi úr þessu að stuðla að því, að þessi athugun verði gerð.