28.03.1955
Neðri deild: 66. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2018 í B-deild Alþingistíðinda. (3233)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Einar Olgeirsson:

Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þær upplýsingar, sem hann hefur gefið. Hann sagði sem sé, að nær allar þessar 12 millj., sem reiknað hefði verið með, ef 7% grunnkaupshækkun færi fram til verkamanna, væru laun til starfsmanna ríkisins. Hæstv. forsrh. vissi ekki um þetta, þegar hann svaraði mér á síðasta fundi. Honum var þetta ekki ljóst. Hæstv. fjmrh. verður nefnilega að gá að því, að það eru ekki allir jafnglöggir á tölurnar og reikningana og hann er sjálfur í þessum efnum. Og þetta bendir til þess, að það sé hæstv. fjmrh., sem hefur nú útbúið þessa reikninga og látið hæstv. forsrh. lesa þá upp, en forsrh. ekki verið alveg eins glöggur á því, hvernig þetta væri samsett. Hann gat ekki gefið mér þá betri svör en það, að þegar ég talaði á eftir honum, hafði ég farið í einn mjög fróðan þingmann í þessum efnum, hv. 4. þm. Reykv. (HG), til þess að fá að vita hjá honum, hvað starfsmenn ríkisins hefðu mikið í laun til samans. Og þannig var ég að reyna að gizka á, hvað mikill hluti af þessu væri til starfsmanna ríkisins, og var þess vegna í minni síðustu ræðu hér að gizka á 8 og 9 millj. En nú upplýsir hæstv. fjmrh., að nær allar þessar 12 millj. séu laun til starfsmanna ríkisins, og setur þar með þessa kröfu sem algera raunverulega kaupkröfu af hálfu ráðherranna og starfsmanna ríkisins til þjóðarinnar: Svo framarlega sem þið ætlið að láta Dagsbrúnarmenn og aðra verkamenn fá uppbót, þá komum við á eftir, við ráðherrarnir og aðrir hálaunamenn, og heimtum þetta. — Og hér segir kaupkröfumaðurinn Eysteinn Jónsson: Það verður að gera ráð fyrir samsvarandi kauphækkunum.

Ég verð að segja það, að það fer að verða ódýrara fyrir okkur, svo að ég tali frá sjónarmiði ríkisins, að lofa opinberum starfsmönnum að fá sinn verkfallsrétt og láta þá sjálfa standa í verkfalli, heldur en að gera það og það hér af hálfu æðstu starfsmanna ríkisins að samantvinnuðum kröfum, að svo framarlega sem Dagsbrúnarverkamenn og aðrir verkamenn fara fram á að fá meira en 3000 kr. á mánuði og ef konurnar, sem vinna í iðnaðinum hérna, fara fram á að fá meira en 2000 kr. á mánuði, þá sé þar með orðin skylda að veita öllum starfsmönnum ríkisins og það líka þeim hæst launuðu sömu uppbætur og þeim. Þetta getur ekki gengið, að keðja þetta svona saman, og þetta er í fyrsta skiptið, sem það er gert á þennan hátt, að ríkisstj. lýsir því yfir, að þetta verkfall Dagsbrúnarmanna og annarra verkamanna skuli hér með vera verkfall opinberra starfsmanna, bara þannig, að opinberir starfsmenn standa ekki sjálfir í verkfalli, heldur láta þeir Dagsbrúnarmenn og aðra verkamenn heyja það fyrir sig. Þessi samankeðjun getur ekki gengið. Þetta er verkfallsyfirlýsing ráðherranna, samúðarverkfall frá þeim, án þess að þurfa samt að hætta að vinna sjálfir, sem hefði verið mjög heppilegt, heldur bara hitt: Við ætlum að taka launin, á meðan verkamenn standa í verkfalli, en þegar verkamenn eru búnir að sigra okkur, þá hækkum við launin hjá okkur. — Það er „mórall“ í þessu! Ég held, að opinberir starfsmenn og ráðherrarnir líka verði að fara að vinna sjálfir fyrir sínum kauphækkunum með verkföllum og ekki hnýta sér aftan í Dagsbrúnarmenn og aðra verkamenn.

Ég þakka svo hæstv. fjmrh. fyrir þessar upplýsingar, og ég vil eindregið óska þess, vegna þess að ég veit, að hæstv. ráðh. hefur ekki sjálfur borið þetta fram í blekkingaskyni, að hann láti tilkynna það í ríkisútvarpinu, að í þessum tölum, sem þarna voru fluttar, sé fyrst og fremst reiknað með launahækkunum til starfsmanna ríkisins og nær allar þessar 12 millj. eða 26 millj., ef það væri hitt, séu laun til starfsmanna ríkisins.