28.03.1955
Neðri deild: 66. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2030 í B-deild Alþingistíðinda. (3239)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.
Viðskmrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Hv. 11. landsk. (LJós) kom hér upp til þess að mótmæla því, að togaraútgerðarmenn hefðu óskað eftir því að hafa svartolíuna utan verðlagsákvæða og talið sér hagkvæmara að semja sjálfir við olíufélögin heldur en að verðið væri ákveðið með valdboði. Og hann var að mótmæla þessu, en gerði það mjög linlega, sem vonlegt var, og í staðinn fyrir að neita þessu algerlega, spyr hann: Er líklegt, að útgerðarmenn hafi óskað eftir því, að þessi hluti olíunnar væri utan verðlagsákvæða? Mig undrar ekkert, þótt hann væri linur í sinni neitun, því að hann veit ósköp vel, að þessi eina tegund olíunnar er utan verðlagsákvæða vegna óska útgerðarmanna sjálfra. Og ég spyr þá eins og hv. 11. landsk.: Er það líklegt, að aðeins þessi hluti olíunnar væri utan verðlagsákvæða, ef útgerðarmenn sjálfir hefðu óskað eftir öðru? Það þarf ekki að spyrja. Það er ekki aðeins líklegt, það vita allir, að það er af einhverri slíkri ástæðu. Og ég hef fyrir mér í þessu alveg fulla vissu. Það er ekki neitt verið að fara með blekkingar hér, og ég tek það ekki gilt, að hv. 11. landsk. komi hér og segi, að ég fari með ósannindi í málinu.
Hv. 11. landsk. er enn að tala um bréfið, þar sem farið er fram á að hækka olíuverðið um 60 kr., og segir sem svo, að það væri framlag í málið nú, ef það lægi fyrir loforð um, að þessu bréfi yrði svarað neitandi. Það, sem ég sagði áðan, var, að verðgæzlustjóri er núna í óða önn að athuga grundvöllinn undir olíuverðinu, og ég get endurtekið það, sem ég sagði áðan við þennan hv. þm., að það verður athugað rækilega, hvort ekki verður hægt að neita þessu bréfi, og það verður áreiðanlega gert, svo framarlega sem ekki þarf að taka tillit til þeirrar hækkunar, sem hefur orðið á farmgjöldunum, og ég kem þá aftur að því, sem ég sagði hér áðan í sambandi við skipið, sem bíður uppi í Hvalfirði og kostar nokkuð háar upphæðir daglega. Er það til þess að lækka olíuverðið og stuðla að lækkuðu olíuverði að halda skipinu þarna föstu? Hvers vegna leyfa ekki verkfallsmenn að losa skipið? Það eru áreiðanlega miklu meiri líkur til þess, að olíuverðið geti lækkað, ef það væri gert. Hv. 11. landsk. mótmælti því ekki hér áðan, enda ekki hægt; hann mótmælti því ekki hér áðan, að það hefði ekki haft nein áhrif á gang verkfallsins, þótt skipið hefði verið losað.
Hv. 2. þm. Reykv. var að hafa það eftir mér áðan, að ég væri að tala um samúð verkamönnum til handa. Ég var ekkert að spyrja að því, hvort verkamenn hefðu samúð í þessu verkfalli eða ekki, ég veit, að þeir hafa samúð margra. En ég sagði: Það hefur ekki samúð sú fjarstæða og sú vitleysa, sem er gerð, að halda skipinu föstu, það hefur ekki samúð, og það er ekki þjóðhollusta að gera sér leik að því að leggja í þann kostnað, sem kostar erlendan gjaldeyri, að halda skipinu föstu í marga daga eða kannske vikur, á meðan verkfallið er. Hv. 2. þm. Reykv. mun ekki heldur geta fært rök fyrir því, að þótt skipið verði losað, hafi það áhrif á gang verkfallsins. Og hvers vegna þá að vera með þessa stífni? Hvers vegna ekki að leyfa losun skipsins, ef það hefur engin áhrif á verkfallið? Er það af einhverri misskilinni mikilmennsku til þess að sýna valdið? Valdið geta verkalýðsfélögin vissulega sýnt með öðru móti og hafa gert og nóg tækifæri, þó að þessu væri sleppt.