28.03.1955
Neðri deild: 66. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2033 í B-deild Alþingistíðinda. (3243)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Bergur Sigurbjörnsson:

Herra forseti. Ég vil ekki sætta mig við það, að forseti sé að halda þrumuræðu hér út af því, þó að ég kveðji mér hljóðs í þessum umr. Hér hafa margir fengið að taka til máls, sumir oftar en einu sinni. Ég hef ekki tekið til máls í þessum umr. og kann ekki við, að það sé haldin einhver þrumuræða sem formáli að því, þó að ég óski að bera hér upp stutta fyrirspurn. Og ég kann ekki heldur við það, að hæstv. forseti sé að loka fyrir það, að ég fái þessari fyrirspurn svarað, því að ég tel mjög nauðsynlegt að fá henni svarað, og eigi ég það á hættu að fá henni ekki svarað vegna aðgerða forseta, þá mun ég að sjálfsögðu ekki bera hana upp; vil ég fá úr því skorið. (Forseti: Frekari umr. verða ekki leyfðar). Þá ætla ég ekki að bera mína fyrirspurn upp.