31.03.1955
Neðri deild: 68. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2037 í B-deild Alþingistíðinda. (3246)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Forseti (SB):

Eins og hv. þingmönnum er kunnugt, eru allmörg mál á dagskránni, sem nauðsyn ber til að koma áfram. Þess vegna vildi ég mælast til þess við hv. þingmenn að halda ekki uppi mjög löngum umræðum utan dagskrár. En þeim hv. þm., sem þegar hafa kvatt sér hljóðs, verður gefinn kostur á því að bera fram stuttar athugasemdir.