31.03.1955
Neðri deild: 68. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2043 í B-deild Alþingistíðinda. (3250)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Það er ekkert undarlegt, þó að mönnum finnist það vera nokkuð auðvelt að verða við beiðni um undanþágu, ef hægt sé að skjóta stoðum sanngirni undir þá beiðni. En bara í morgun, frá því að ég lauk setu á fundi fjvn. og þangað til ég fór til miðdegisverðar, munu hafa legið fyrir mér milli 10 og 20 undanþágubeiðnir í einu og öðru formi frá, reglum verkfallsins. Og þegar við erum „bombarderaðir“ með slíkum sífelldum beiðnum frá morgni til kvölds alla daga síðan verkfallið hófst, gerist nokkuð erfitt fyrir verkfallsmenn að veita allar undanþágur, sem beðið er um, þó að góðum og gildum ástæðum séu studdar. Það var nú fyrir nokkrum mínútum verið að biðja um undanþágu fyrir því að senda flugvél og fá hana afgreidda með benzín hérna af flugvellinum til þess að fara vestur í Reykjanes til að sækja nemendur, þar sem einum skóla er lokið og annar skóli á að taka til starfa á morgun o. s. frv. Undanþágurnar eru svo margar, að það þyrfti í raun og veru að hafa benzínafgreiðslumenn t. d. á Reykjavíkurflugvelli til þess að afgreiða undanþágubenzín vegna ýmiss konar nauðsynja, sem kalla að og æskilegt væri að geta orðið við. Og hér er til umr. utan dagskrár einmitt undanþágubeiðni, sem mönnum finnst sumum hverjum, jafnvel hérna í ráðherrastólunum, ekki nema meinsemi af verkalýðsfélögunum að samþykkja ekki. Það er góður aðili, sem þar á hlut að máli, Loftleiðir, sem heldur uppi flugi milli Evrópuhafna og Ameríku, en þarf að hafa vegna flugferðasamnings síns viðkomu á Íslandi.

Rétt um það leyti, sem verkfallið hófst, var flugvél frá Loftleiðum á leið hér um Reykjavíkurflugvöll vestur um haf. Hún fór sína leið, þó að allt væri í óvissu um það, hvernig hún kæmist til baka aftur austur yfir haf til Noregs. Það hefur verið á allra fyrstu dögum verkfallsins, sem þá kom undanþágubeiðni frá Loftleiðum um það, að þessi flugvél gæti komizt aftur austur yfir haf og fengið viðkomu hér á Reykjavíkurflugvelli og afgreitt benzín, það væri búið að tilkynna áður, að þessi flugferð mundi falla að vestan, og farþegar væru nú reiðubúnir til að stíga upp í þessa flugvél Loftleiða, en ef Alþýðusambandið neitaði um þessa undanþágu, þá yrðu þessir farþegar að snúa sér beint til keppinautar síns, SAS, og taka sér flugfar þar austur um haf. Þessi undanþágubeiðni var veitt. Það voru gerðar ráðstafanir til þess, að benzínafgreiðslumenn á Reykjavíkurflugvelli afgreiddu þessa flugvél með benzín, og hún fékk tilkynningu um það, að hún fengi þannig undanþágu frá verkfallsmönnum til þess að fara sína leið frá Ameríku og til Noregs.

Við höfum líka afgreitt aðra undanþágu frá Loftleiðum um það, hvort þetta millilandaflug félagsins gæti haldið áfram, ef félagið gæti gert ráðstafanir til, að það flygi um Prestwick, en ekki um Ísland. Alþýðusambandið hafði afgreitt þá beiðni á þann hátt, að verkfallið mundi ekki láta sig það neinu skipta, ef flugfélagið gæti haldið uppi þessu millilandaflugi á þann veg. En þegar flugfélagið sjálft fór að athuga nánar framkvæmdamöguleika á þessu, þá kom í ljós, að SAS sat um færi til þess að stefna félaginu, ef það héldi uppi flugferðum í þessu formi, þar sem það hefði aðeins flugferðaleyfi bundið við viðkomu á Íslandi. Það sem sé hafa þannig verið veittar tvær undanþágur að því er snertir Loftleiðir, og ætla ég, að það eigi að nægja hv. þm. til þess að dæma um það, að gerðir Alþýðusambandsins og verkalýðsfélaganna, sem í verkfalli eiga, hafa ekki stjórnazt af hatri til Loftleiða eða vilja til þess að drepa félagið.

Þegar við höfðum veitt þessar tvær undanþágur, sem ég hef nú getið um, þá er það sannast sagna, að félagið sá, að tilveru þess mundi verða hætt, ef verkfallið drægist á langinn og það yrði að fella niður flugferðir um langan tíma, viðskiptamenn mundu snúa sér til höfuðkeppinauts þess á báðum endastöðvunum, og það gæti tekið félagið langan tíma að vinna upp þau viðskipti aftur, sem það er nú búið að vinna upp með ærnum tilkostnaði. Það skorti engan skilning af hendi Alþýðusambandsins og verkalýðsfélaganna í sambandi við það, að það gæti valdið lífi eða dauða Loftleiða að leggja niður flug lengri eða skemmri tíma. Og þá var það, sem mjög var eftir því gengið, hvort það væri engin leið, að Loftleiðir gætu þá samið og þannig tryggt ótruflaðan rekstur sinn að því er snerti millilandaflugið, og ég verð að segja það, að ég stóð á tímabili í þeirri meiningu, að það mundi vera eina lausnin á þessu, að Loftleiðir semdu og það mjög fljótlega með einhverjum hætti. Þá mun hafa verið fundur með hæstv. flugmrh., og ég verð að segja það, að eftir að sá fundur hafði verið haldinn, tel ég að hafi orðið veðrabrigði í þessu máli. Ég tel, að þá hafi forráðamenn Loftleiða sannfærzt um með einhverjum hætti, annaðhvort af beinum ummælum eða á annan hátt, að þeim yrðu ekki göturnar greiðar til að halda millilandafluginu áfram, þó að þeir semdu við alþýðusamtökin. Einhvern veginn mun þeim hafa skilizt það.

Ég hlustaði svo á nokkurn hluta af ræðu hæstv. ráðh. áðan, og þá sagði hann: Ja, einhverjir mundu segja: Það er auðvelt að leysa þetta, það er bara með því, að flugfélagið Loftleiðir semji. En það þýðir ekki, sagði hann. Af hverju þýðir það ekki? Væru ekki flugmöguleikar félagsins milli landa tryggðir, ef það hefði samið við verkalýðsfélögin, sem eiga nú í verkfalli? Það eru tvö stéttarfélög þarna, sem er um að ræða, félag atvinnuflugmannanna og félag flugvirkjanna, sem eiga í verkfalli og eiga ekki gott með að ganga út úr þeim samtökum, sem þau eru í, í framkvæmd verkfalls, sem þau hafa byrjað, fyrr en samningum þeirra er lokið. Það er ekkert auðvelt mál fyrir þau.

En af hverju þýðir það ekki, hæstv. ráðh., ef félagið fær samninga? Er þá einhver stöðvun að fengnum samningum? Mundi ekki hæstv. ríkisstj. geta fengið það tryggt, að félagið fengi benzín? Ef það væri búið að semja, þá væri a. m. k. séð um það af verkalýðsfélaganna hendi, að benzín yrði afgreitt. Þá er bara spurningin hin: Mundi ekki ríkisvaldið vera þess megnugt að sjá um, að olíufélögin með einhverjum hætti létu þennan aðila, sem er í millilandaþjónustu, nauðsynlegri og þýðingarmikilli, fá benzín? Ég trúi ekki öðru.

Ég held þess vegna, að það hljóti að vera á valdi ríkisstj. að tryggja það, að flugfélagið Loftleiðir lifi og að flugfélagið Loftleiðir haldi áfram þessu millilandaflugi, svo framarlega sem það á þess kost, að það leysi sig út úr deilunni með samningum í einhverri mynd. Ég eygi þennan möguleika. Hæstv. ráðh. virðist hins vegar ekki eygja neinn annan möguleika en að alþýðusamtökin geri enn þá undanþágu.

Ráðh. sagði einnig, að hér væri um deiluatriði að ræða, sem hefði ekki nein áhrif á lausn deilunnar. E. t. v. hafa öll atriði, sem við deiluna koma, áhrif á lausn hennar. Mér er sagt, að það liggi t. d. fyrir yfirlýsing frá Vinnuveitendasambandi Íslands um, að það geti vel sætt sig við, að það yrði samið sérstaklega við Loftleiðir, ef ekki verður nein grunnkaupshækkun, ef það verður ekki samið um neina lagfæringu á kaupi. M. ö. o.: Vinnuveitendasamband Íslands virðist líta svo á, að þetta atriði deilunnar hafi þýðingu fyrir lausn deilunnar, og setur bara upp það smávægilega skilyrði, að það geti samþykkt samninga, ef bara verði ekki hækkun á grunnkaupi.

Ég álít, að það hljóti að vera hægt að ganga frá samningum í dag eins og á morgun við þennan aðila, og ég tel, að það sé betur farið um hvern þann aðila, sem getur leyst sig út úr deilunni með samningum og fengið að halda rekstri sinum ótruflað áfram. Það er við nóg að glíma samt.

En nú er málið í höndum tiltölulega fámennrar nefndar, eins og hér hefur verið upplýst, tveggja manna frá hvorum aðila, tveggja frá samninganefnd verkalýðsfélaganna og tveggja frá hvoru félagi, sem um er að ræða. Og það er ætlun þeirrar nefndar að reyna að leysa þetta mál, annaðhvort með bráðabirgðasamningum eða endanlegum samningum eða einhverjum samkomulagsleiðum. Það er enginn vafi á því, að allir nefndarmenn eru af öllum vilja gerðir um það. En samt er engan veginn víst, að þetta takist, nema með því að gengið verði frá samningum og ríkisvaldið tryggi síðan, að framkvæmd þeirra samninga verði ekki hindruð.

Það er kannske ekki auðskilið mál fyrir allan almenning og fyrir hv. þm., að það er ekki gott að koma því, að haldið er uppi verkfalli, sem þegar hefur staðið hátt á aðra viku og er farið að harðna frá hendi beggja aðila, saman við það að gefa tugi af alls konar undanþágum hvern einasta dag. Þegar fer að harðna í verkfalli, þá fer það að verða undanþágulítið, og þá verða jafnvel fleiri og fleiri atriði, sem tekin eru inn í verkfallið, og erfiðara að leysa hvert einstakt atriði út úr deilunni. Það vænti ég að menn verði að skilja.