20.04.1955
Sameinað þing: 53. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2049 í B-deild Alþingistíðinda. (3254)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir o.fl.

Forseti (JörB):

Eins og hv. 2. þm. Reykv. (EOl) vitnaði til um bréf það, er forsetar sendu þingflokkunum, óskuðum við eftir svörum af hálfu flokkanna við þessu erindi. Frá þremur flokkum hafa borizt svör, en það vantar svör frá tveimur flokkum.

Ég vil nú mega vænta þess, að það geti fljótlega orðið, að svör af hálfu þeirra, sem vantar enn þá, berist, og ég mun fyrir mitt leyti minnast á það við formenn þingflokkanna, að þeir beiti sér fyrir því.