11.11.1954
Neðri deild: 16. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2050 í B-deild Alþingistíðinda. (3255)
Afgreiðsla mála úr nefndum
mælti forseti (SB):
Ég vildi leyfa mér að beina þeim tilmælum til hv. nefnda þd., að þær leggi áherzlu á það að afgreiða eins fljótt og kostur er á þau mál, sem til þeirra hefur verið vísað. Vil ég leyfa mér að lesa upp lista yfir þau mál, sem vísað hefur verið til hverrar einstakrar nefndar.
Til allshn. hefur verið vísað og eru enn óafgreidd: 1) Ríkisborgararéttur, frv. 2) Bifreiðalög, frv. 3) Réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, frv. 4) Kosningar til Alþingis, frv. 5) Útsvör, frv.
Hjá fjhn. eru: 1) Brúagjald af benzíni, frv. 2) Áburðarverksmiðja, frv. 3) Tollskrá, frv. 4) Togarasmíði innanlands o. fl., frv. 5) Atvinnuframkvæmdir bæjar- og sveitarfélaga, frv. 6) Olíueinkasala, frv. 7) Atvinnujöfnun, frv. 8) Tekjuskattur og eignarskattur, frv.
Hjá heilbr.- og félmn. eru eftirtalin mál: 1) Lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, frv. 2) Sömu laun karla og kvenna, frv. 3) Orlof, frv. 4) Orlof, frv. 5) Framfærslulög, frv. 6) Byggingarsjóður kauptúna, frv.
Hjá hv. iðnn. eru: 1) Iðnaðarmálastofnun Íslands, frv. 2) Brotajárn, frv. 3) Iðnlánasjóður, frv.
Hjá hv. menntmn. eru: 1) Prófessorsembætti. við læknadeild háskólans, frv. 2) Félagsheimili, frv. 3) Menntun kennara, frv. 4) Gagnfræðanám, frv. 5) Útvarpsrekstur ríkisins, frv.
Hjá samgmn. eru: 1) Vegalög, frv. 2) Gistihús á Þingvöllum, þáltill.
Hjá sjútvn. eru: 1) Aðstoð við togaraútgerðina, frv. 2) Fiskveiðasjóður Íslands, frv. 3) Hvíldartími háseta, frv. 4) Fiskveiðalandhelgi Íslands. frv. 5) Togaraútgerð ríkisins, frv. 6) Aðstoð við togaraútgerðina, þáltill.
Ég endurtek tilmæli mín til hv. þingnefnda um að afgreiða þessi mál hið fyrsta.