27.10.1954
Sameinað þing: 7. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2057 í B-deild Alþingistíðinda. (3266)
Varamenn taka þingsæti
mælti forseti (JörB):
Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf :
„Reykjavík, 27. okt. 1954.
Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf frá Birni Ólafssyni, 3. þm. Reykv.:
„Sökum þess að ég mun verða fjarverandi um 3–4 vikna skeið, óska ég þess, að varamaður taki sæti í minn stað á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt. Kjörbréf varaþingmanns, frú Kristínar Sigurðardóttur, hefur áður verið samþykkt.
Sigurður Bjarnason,
forseti neðri deildar.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Samkv. þessu tekur frú Kristín Sigurðardóttir sæti á þingi.