10.05.1955
Efri deild: 88. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 2072 í B-deild Alþingistíðinda. (3325)
Starfslok deilda
forseti (GíslJ):
Störfum deildarinnar er nú að ljúka að þessu sinni. Fundargerðir síðustu tveggja funda hafa ekki legið frammi. Ég leita því heimildar til þess að undirrita þær síðar og skoða það samþykkt, ef enginn mælir því í gegn.
Þetta þing hefur staðið yfir sjö mánaða tímabil. Hafa á þessum tíma verið rædd mörg mál og afgreidd mörg merk lög, svo sem lög um húsnæðismál, jarðræktar- og landbúnaðarmál, fiskveiðasjóð, atvinnubætur, bókasöfn, skólamál og breytingar á hegningarlöggjöfinni, svo að minnzt sé nokkurra hinna merkustu, sem samþykkt hafa verið hér. Eru öll þessi lög tákn mikillar trúar á landið og framtíð þjóðarinnar. Er það von mín og bæn, að þau verði ásamt öllum öðrum störfum þingsins til mikillar blessunar í hvívetna fyrir land og þjóð.
Ég vil þakka öllum hv. dm. fyrir þá alúð, sem þeir hafa lagt í öll störf sín, bæði í nefndum og hér á deildarfundum, og fyrir prúðan og drengilegan málflutning, sem allt hefur auðveldað mér forsetastörfin, svo og hæstv. varaforsetum fyrir aðstoð þeirra, er ég hef orðið að víkja frá fundarstjórn. Skrifstofustjóra Alþingis, fulltrúum og öðru starfsliði þakka ég hvers konar aðstoð, sem í té hefur verið látin og jafnan með ljúfu geði. Þeim utanbæjarþingmönnum og öðrum, sem halda heim frá þingi, óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og vona, að við hittumst hér öll heil við setningu Alþ., þegar það kemur saman næst síðar á þessu ári.