12.10.1954
Efri deild: 2. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (3348)

Kosning fastanefnda

dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti.. Vegna þess að fram hefur komið við þá atkvgr., sem nú hefur átt sér stað, að ekkert slíkt samkomulag er um kosningu nefnda sem búizt hafði verið við, þannig að úrslitum geta ráðið atkvæði manna, sem nú eru fjarstaddir, þá vildi ég fara þess á leit, að atkvgr. yrði frestað um þær nefndir, sem eftir eru, þannig að beðið yrði eftir þeim þingmanni, sem nú er veikur, þótt ekki sé beðið eftir þeim, sem fjarstaddur er og vitanlega mun ekki koma nógu snemma. En hv. þm. Seyðf. er kominn til bæjarins og mun vera lasinn, og finnst mér rétt, þar sem ljóst er, að atkv. hans muni geta ráðið úrslitum um margar kosningar hér, að beðið sé eftir því, að hann mæti.