17.12.1954
Neðri deild: 36. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 418 í B-deild Alþingistíðinda. (382)

95. mál, almannatryggingar

Karl Guðjónsson:

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram brtt. við það frv., sem hér liggur fyrir. Þær eru nú reyndar ekki nema tvær talsins, till. mínar, enda þótt ég telji, að ástæða hefði verið til að leggja til fleiri breytingar á frv.

Ég hef ekki gert neinar brtt. við upphæðir ellieða örorkulífeyris að þessu sinni, og kemur það til af því, að þegar ég lagði hér fram mínar brtt., þá hafði ég fyrir mér plögg um afgreiðslu málsins í Ed., þar sem gert var ráð fyrir, að öryrkjar og ellilífeyrisþegar kæmu til með að njóta uppbótar á lífeyri sinn í samræmi við það, sem loforð hafði verið gefið af hálfu ríkisstj. um að hækkað skyldi kaup til opinberra starfsmanna. Það hefur reyndar komið í ljós, að sú hækkun, sem verður hjá öryrkjum og gamalmennum, er ákaflega lítil og alls ekki fullnægjandi, en ég hef ekki gert brtt. við þær upphæðir að þessu sinni.

Þær till., sem ég hef gert, eru í fyrsta lagi um það, að þær konur, sem njóta lífeyris með börnum sínum samkvæmt lögum um almannatryggingar, skuli halda barnalífeyrinum án tillits til þess, hvort þær ganga í hjónaband eða ekki. Nú er það svo, að ekkjur, sem eiga börn innan 16 ára aldurs, njóta barnalífeyris með börnunum, en þessi lífeyrir fellur niður, eftir að konan hefur gifzt aftur og verið gift í þrjú ár. Ég sé ekki, að nein sanngirni sé í þessu, enda sætir þetta mikilli gagnrýni meðal kvenþjóðarinnar yfirleitt og það að vonum. Það, að ríkinu beri skylda til þess að borga lífeyri með börnum í því tilfelli, þegar faðirinn er látinn, er ábyrgð, sem fallið hefur á ríkið, og sé ég ekki, að nein ástæða sé til þess, að ríkið skjóti þeirri ábyrgð fram af sér, enda þótt svo fari, að viðkomandi barnsmóðir giftist öðru sinni og öðlist ef til vill möguleika á þann hátt til þess að láta sinn nýja mann framfæra þau börn, sem hún hefur átt í fyrra hjónabandi.

Ég legg sem sagt til, að þessi ábyrgð, sem fallið hefur á ríkið við fráfall barnsföðurins, verði látin haldast, þar til viðkomandi barn hefur náð 16 ára aldri.

Í hinu tilfellinu er um að ræða fráskildar konur eða ógiftar mæður, sem taka barnalifeyri samkv. úrskurði yfirvalds. Um þær gilda nú sömu reglur, þannig að ef þær ganga í hjónaband, þá fellur skylda Tryggingastofnunar ríkisins til greiðslu á þessum barnalífeyri niður eftir þrjú ár frá giftingu. Ég sé ekki heldur, að það sé nein ástæða til þess, að Tryggingastofnun ríkisins fellí niður fyrirgreiðslu fyrir þessar mæður, enda á Tryggingastofnunin endurkröfurétt á barnsföður eða framfærslusveit barnsföður og ætti því í flestum tilfellum eða jafnvel öllum að geta endurkrafið þann barnalífeyri, sem þannig er greiddur. Það er alveg óeðlilegt, að þegar ríkisstofnun er búin að koma á fót innheimtukerfi einmitt til þessara hluta, þá sé því innheimtukerfi gefið frí, um leið og þrjú ár eru liðin frá giftingu viðkomandi barnsmóður, og henni sjálfri gerður kostur á að innheimta þetta. Sjá allir menn mismuninn á aðstöðu móður, sem ef til vill á ekki kost á því að njóta lögfræðilegrar aðstoðar nema í takmörkuðum mæli, hve hún er miklum mun lakari til þess að ná fram rétti sínum heldur en aðstaða Tryggingastofnunar ríkisins, sem hvort eð er hefur sams konar innheimtu með höndum.

Hin brtt., sem ég flyt hér á þskj. 307, gengur í þá átt, að fjölskyldubætur skuli greiðast án tillíts til þess, hvort barnalífeyrir er greiddur með hlutaðeigandi börnum eða ekki.

Ég lít svo á, að það ákvæði, sem nú gildir um börn öryrkja og ellilífeyrisþega, að þau skuli ekki njóta fjölskyldubóta, sé langsvartasti bletturinn á framkvæmd okkar tryggingalöggjafar elns og er. Það fá allar fjölskyldur í landinu, sem fleiri börn hafa á framfæri sínu en eitt, fjölskyldubætur með þeim börnum, sem umfram eru eitt, alveg án tillits til efnahags. Þar er enginn undan skilinn, — ekki nema þeir einir, sem taka barnalífeyri með börnum sínum, vegna þess að þeir eru tekjulausir. Þar er oftast nær um það að ræða, að framfærendur barnanna eru öryrkjar eða ellilífeyrisþegar, og það þjóðfélag, sem hefur efni á því að greiða fjölskyldubætur með börnum án tillits til tekna foreldra, getur ekki sýnt neitt réttlæti fyrir því að undanþiggja einungis fjölskyldubótunum börn á framfæri þeirra manna, sem hafa ekki aðrar tekjur að neinu ráði en örorku- eða ellilífeyrisframfærslu.