17.12.1954
Neðri deild: 37. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 428 í B-deild Alþingistíðinda. (396)
95. mál, almannatryggingar
Pétur Ottesen:
Ég get ekki séð annað en að þessi brtt. mín, þó að samþ. yrði, geti mjög vel fallið saman við þær breytingar, sem í frv. þessu felast. Ég held þess vegna, að hæstv. félmrh. hafi lagt allt of mikið upp úr efni hennar. Þessi till. hefur ekki í sér fólgin nein útgjöld fyrir tryggingarnar, fjarri fer því, því að meðan tryggingarnar höfðu þessa innheimtu, þá innheimtist þetta fé. Og það er líka tilgangur l., að þau eiga að tryggja þeim mæðrum, sem eiga að njóta þessara bóta, að þær fáí þetta fé. Þess vegna get ég ekki séð, að það þurfi að valda neinum straumhvörfum í þessu máli, þó að þessi lagfæring yrði sett í þær bráðabirgðasamþykktir, sem hér liggja nú fyrir. Hins vegar mundi þessi brtt. mín, ef samþ. væri, koma í veg fyrir, að einstöku mæður óskilgetinna barna misstu algerlega af þeim fríðindum, sem löggjöfin á að tryggja þeim.
Það er síður en svo, að ég vilji leggja neinn stein í götu fyrir eðlilegan framgang þessa máls nú og skjóta afgreiðslu þess á þingi, og ég held við gaumgæfilega athugun á þessari till. minni, að þá verði alls ekki sú raunin á. Ég fyrir mitt leyti mundi ekki greiða atkvæði með neinni till., sem fæli í sér aukin útgjöld hjá tryggingunum fram yfir það, sem gert var við afgreiðslu fjárl. hér í dag, því að þeim upphótum, sem þar var um að ræða, fylgja að sjálfsögðu allveruleg útgjöld fyrir þá aðila, sem standa undir tryggingunum, en það eru ríkissjóður, sveitarfélögin, einstaklingarnir og svo atvinnurekendur í landinu.
Ég held þess vegna, að þessi tillaga mín sé algerlega meinlaus að því er þetta snertir og falli mjög vel saman við það bráðabirgðafyrirkomulag, sem verið er að framlengja með því frv., sem hér liggur fyrir. En hins vegar er mikil nauðsyn á þessari bragarbót; það sýnir fengin reynsla.