18.10.1954
Efri deild: 5. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í B-deild Alþingistíðinda. (4)
9. mál, gjaldaviðauki
Frsm. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Með frv. þessu um heimild handa ríkisstj. til þess að innheimta á næsta ári ýmis gjöld fyrir ríkíssjóðinn með viðauka er ekki verið að stofna til nýrra álagna. Viðauki þessi hefur viðgengizt í mörg undanfarandi ár, óbreyttur að prósentu. Hins vegar má segja, að hann hafi létzt sem álag fyrir þá landsmenn, — og þeir eru nokkuð margir, — sem hafa fengið hækkað kaup eða hækkað verð fyrir afurðir sínar á gildistíma þessarar lagasetningar.
Sú eina breyting, sem orðið hefur frá frv. því um þennan viðauka, sem síðasta Alþingi samþykkti, er, að nú er, svo sem vera ber, niður felld heimild til viðauka á leyfisgjöld, sem sett voru í fulla hæð með aukatekjulögunum á síðasta þingi.
Allir fjhn.-menn, sem á fundi voru, þegar frv. var athugað í n., mæla með því, að það verði samþykkt óbreytt.
Ég sé enga ástæðu til að fara um svo gamalkunnugt mál fleiri orðum.