10.02.1955
Efri deild: 45. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 435 í B-deild Alþingistíðinda. (423)

145. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1955

Forseti (GíslJ):

Að gefnu tilefni skal ég að sjálfsögðu vekja athygli hæstv. forsrh. á því, sem hefur verið sagt hér. Ég hafði nú hugsað mér að láta ljúka þessu máli hér í dag og halda annan fund að þessum fundi loknum, vænti, að hv. þm. hafi ekkert við það að athuga, en ummæli hv. 1. þm. Eyf. skulu flutt hæstv. forsrh. við allra fyrsta tækifæri.