18.03.1955
Efri deild: 59. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í B-deild Alþingistíðinda. (464)
5. mál, bifreiðalög
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Mér þykir gott að heyra, að hæstv. dómsmrh. upplýsir hér, að n. muni verða falið að endurskoða bifreiðalögin í heild. Ég álít, að þess sé fyllsta þörf.
Í sambandi við þetta frv. vildi ég mega benda á, að samkv. 43. gr., eins og fram er tekið, eru reiðhjól með hjálparvél undanþegin ökumannstryggingu, þ.e.a.s. bæði skyldutryggingu gagnvart þriðja manni og persónutryggingu þess, sem stýrir hjólinu. (Gripið fram í.) Er það ekki gagnvart þriðja manni? Er það aðeins persónutrygging ökumannsins sjálfs tvímælalaust? Er þá skyldutrygging gagnvart tjóni á þriðja manni? (LJóh: Ég hef rannsakað það sérstaklega.) — Þingmaðurinn segist hafa rannsakað það sérstaklega, að ökumannstryggingin, hans sjálfs persónulega, er ekki þarna með. Ég álít, að það sé fyllsta ástæða til þess við endurskoðun bifreiðalaganna að athuga, hvort ekki sé sjálfsagt, að ökumannstrygging sé skyldutrygging einnig á þessum farartækjum, reiðhjólum með hjálparvél. Eins álít ég í sambandi við það, sem hv. 1. þm. N-M. sagði hér áðan, að fyllsta ástæða sé til að fella sérstök ákvæði um traktora og aðrar slíkar aflvélar, sem eru á hreyfingu við vinnu, undir bifreiðalögin og setja sérstök ákvæði bæði um tryggingar þeirra og tryggingar ökumanna á þeim. Því þykir mér vænt um, að hæstv. dómsmrh. veitti þær upplýsingar, sem hann gerði hérna um endurskoðun bifreiðalaganna, og geri ráð fyrir, að þetta hvort tveggja verði þá tekið til athugunar í sambandi við það.