13.10.1954
Efri deild: 3. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 452 í B-deild Alþingistíðinda. (500)

25. mál, læknaskipunarlög

Finnbogi R. Valdimarsson:

Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá líða við 1. umr. þessa máls að þakka hæstv. heilbrmrh. fyrir það, að í þetta frv. hefur nú verið tekin till. um að gera Kópavogshrepp að sérstöku læknishéraði, en ég hef ásamt hv. 10. landsk. á undanförnum þingum flutt till. um þetta hér í hv. deild. Sú till. hefur hlotið verulegt fylgi hér í hv. d., þó að hún hafi ekki náð samþykki.

Ég hef bent á það í umræðunum um þetta mál, að þeir tveir embættismenn, sem bezt þekkja til þessara mála, landlæknir og borgarlæknirinn í Rvík, sem jafnframt er héraðslæknir í Kópavogshreppi eins og nú er, hafa báðir verið mjög meðmæltir þeirri till., að Kópavogshreppur yrði fyrr en síðar gerður að sérstöku læknishéraði. Rökin fyrir þessu, sem fram hafa verið færð og fram má færa, eru fyrst og fremst þau, að íbúafjöldi í Kópavogshreppi hefur vaxið hröðum skrefum, eins og kunnugt er, á undanförnum árum, og eru nú um þrjú þúsund manns búandi þar, en um 300 hús í byggingu, og því alveg víst, að á allra næstu árum fjölgar íbúum enn um eitt til tvö þúsund. Auk þess er hreppurinn mjög viðlendur, nær allt til endimarka Árnessýslu, honum fylgja sveitabæir og með þeim nokkur byggðahverfi, sem eru nokkuð afskekkt, og bæði þar og í námunda við Reykjavík er oft ótrúlega erfitt að ná til læknis þrátt fyrir þann mikla fjölda lækna, sem er í Rvík og benda má á, að ætti að vera auðvelt að ná til.

En ég hef auk þessa bent á það, að í eins ört vaxandi þéttbýll og Kópavogshreppi er mikil nauðsyn á því, að af hálfu heilbrigðisstjórnarinnar sé frá upphafi vakað yfir því, að það séu gerðar nauðsynlegar heilbrigðisráðstafanir, um leið og byggðin vex upp. Ég veit, að borgarlæknirinn í Reykjavík, sem hefur verið okkar embættismaður í þessu efni, hefur haft fullan hug og vilja á því, svo samvizkusamur embættismaður sem hann er, að slíkar ráðstafanir væru gerðar, og honum hefur þótt það miður, að hann hefur vegna síns umfangsmikla embættis ekki getað komið því við að sinna þessum málum sem skyldi.

Í frv., sem kom hér fram á síðasta þingi um læknaskipun í heild sinni og var frá landlækni, var sú tillaga, að stofnað yrði nýtt læknishérað, Kópavogslæknishérað, með læknissetri í Kópavogi, en landlæknir lagði til, að það hérað næði einnig yfir núverandi Álafosshérað. Við hv. 10. landsk., sem erum þessum héruðum nokkuð kunnugir, lítum svo á, að þetta gæti ekki orðið nema bráðabirgðalausn á þessu máli. Slíkt læknishérað, sem næði alla leið upp í Hvalfjörð og til Þingvalla, væri allt of stórt og umfangsmikið með því þéttbýli, sem þegar er í Kópavogi. Ég er því sannfærður um, að allir, sem kynna sér málið, hljóti að sjá, að sú lausn, sem hér er lögð til, að Kópavogshreppur verði sérstakt læknishérað með læknissetri í Kópavogi, er hin eina rétta, hún er eina viðunandi lausnin, eins og nú er komið, og hin eina viturlega.

Ég vil því, eins og ég áður sagði, þakka heilbrigðismálastjórninni fyrir það, að hún hefur fallizt á þessa tillögu, og treysti því, að hv. n., sem fær þetta mál til meðferðar, fallist fullkomlega á hana.