22.11.1954
Efri deild: 20. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 466 í B-deild Alþingistíðinda. (512)
25. mál, læknaskipunarlög
Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Hv. þm. S-Þ. hefur að mestu tekið af mér ómak og skýrt þetta einstaka atriði. Mér þykir þó rétt að benda á það, að læknaskipun landsins er yfirleitt byggð upp með það fyrir augum að verða við óskum manna í hinum einstöku byggðarlögum um rétt til skjótrar læknisþjónustu, að svo miklu leyti sem þess er framast kostur. Læknaskipunin er þannig uppbyggð nú, og frv. gerir ekki ráð fyrir breytingu á því. Það er enginn vafi, að óskir manna í þeim hluta Hálshrepps, sem hér um ræðir, hniga að þessu, að halda áfram sínum rétti til læknisvitjunar á Akureyri. Ég hef rætt þetta mál við oddvita Hálshrepps, sem hefur verið staddur hér syðra undanfarið, og fullvissað mig um, að svo er. Ég get því ekkí mælt með því, að brtt. hv. l. þm. Eyf. verði samþ. Þetta mál var rætt í n. Ég skal ekki fullyrða, að þetta einstaka atriði hafi verið rætt þar alveg til hlítar, og þori þess vegna ekki að staðhæfa neitt um afstöðu einstakra nm. í þessu sambandi. En persónulega vil ég taka það alveg skýrt fram, að ég get ekki fallizt á samþykkt þessarar tillögu.