22.03.1955
Efri deild: 61. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (561)

25. mál, læknaskipunarlög

Forseti (GíslJ):

Ég vil í sambandi við þetta mál leyfa mér að benda á, að ég tók málið út af dagskrá í gær vegna þeirra breytinga, sem orðið höfðu í Nd., svo að hv. þm. gætu athugað þær breytingar. Nú sé ég, að undir tölulið 40 og 41 eru komnar inn breytingar, sem raska þeirri stefnu, sem mörkuð var í frv. hér í þessari hv. deild áður, þ.e. að skipta læknishéruðum eftir heilum hreppum. Ég tel því rétt að fresta þessari umr. og óska mjög eftir því, að hv. formaður n. taki málið til athugunar til þess að sjá, hvort annaðhvort sé hægt að fá samkomulag við viðkomandi hv. þm. Nd., sem hefur fengið brtt. inn þannig samþ., eða þá að athugað verði um brtt. hér í þessari hv. deild, sem beinlínis voru gerðar á frv. í upphafi vegna þessarar stefnu, sem talið var að væri nauðsynlegt að halda til verkhagnaðar fyrir hagstofuna. — Umræðum er frestað og málið tekið út af dagskrá. Ég vil biðja hv. formann um að athuga þetta svo fljótt sem hægt er.