25.03.1955
Efri deild: 63. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 513 í B-deild Alþingistíðinda. (574)
25. mál, læknaskipunarlög
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Þegar þetta mál var hér til meðferðar fyrr í hv. d., þá hafði ég það helzt við frv. að athuga, að sú skipting í læknishéruð, sem frv. gerir ráð fyrir, er ekki að öllu leyti raunveruleg. Ég gerði tilraun til þess að laga þetta nokkuð að því er skipti milli tveggja læknishéraða snerti, og náði það ekki fram að ganga. Nú virðist mér þessi brtt. hér ganga í sömu átt, að hafa skiptinguna á milli tveggja læknishéraða á Austurlandi aðeins á pappírnum. Ég álít, að það sé miklu réttara, úr því að viðurkennt er, að þessir menn, sem hér um ræðir, eiga hægra með að sækja lækni í sitt gamla hérað, að þeir tilheyri þá því héraði, og segi nei.