14.04.1955
Efri deild: 68. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í B-deild Alþingistíðinda. (666)

139. mál, lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Forseti (GíslJ):

Út af ræðu hæstv. ráðh. vil ég leyfa mér að upplýsa, að hv. frsm., 4. þm. Reykv., var ekki viðstaddur, þegar ráðherra byrjaði að lesa bréfið, en hann er sammála efni þess, eins og komið hefur fram í hans ræðum, þótt hann hafi ekki sett sig á móti þeirri afgreiðslu, sem hér hefur verið gerð á. Hins vegar hefur meiri hl. nefndarinnar haldið fast við þetta. Og í upplýsingum, sem koma fram í bréfinu, eru margar raunverulegar villur og skakkt sagt frá, eftir því sem okkur hefur verið tjáð og við vitum. (Gripið fram í: Er þetta ræða?) Ég er að gefa hér skýringar. Mér þykir því rétt á þessu stigi málsins að taka málið út af dagskrá og gefa fjhn. tækifæri til þess að athuga bréfið. Umr. frestað.