02.05.1955
Neðri deild: 82. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (764)
167. mál, fasteignamat
Pétur Ottesen:
Þetta frv. hefur tekið nokkurri breytingu í hv. Ed., og ég vildi benda á það, að m. a. hefur verið samþ. þar ein af þeim brtt., sem ég flutti hér við þetta frv. við 3. umr. málsins, en var þá felld í þessari deild. Þessi brtt. var um það að gefa eigendum fasteigna kost á því að kæra matið, ef þeim sýndist svo, að rétti þeirra væri hallað. Þetta ákvæði hefur ávallt verið í lögum um fasteignamat og er það enn, þó að svo færi nú, að þessari till. minni væri hafnað hér í d. við 3. umr. þessa máls. Um þetta atriði farast fjhn. Ed. í því nál., sem hún gaf út um þetta mál, orð eins og hér segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Getur n. fallizt á þá skipan“ — sem í frv. felst — „að öðru leyti en því, að hún álitur skylt, að eigendum fasteigna verði gefinn kostur á því að bera fram kæru yfir samræmingarmatinu, eins og í 15. gr. laganna frá 1945 um fasteignamat er skýlaust ætlazt til að gert sé, þegar mat fer fram. Hlýtur þetta að teljast ein af grundvallarreglum laganna.“
Og það var vitanlega með sérstöku tilliti til þess, hversu þetta atriði er mikilsvert í lögunum, að ég flutti mína brtt. um þetta hér við 3. umr. málsins, sem þá var felld. Ber nú að fagna því, að þetta ákvæði hefur verið tekið upp í frv., og er þess að vænta, að nú verði snúizt betur og skynsamlegar við þessu en gert var, þegar ég flutti brtt. mína.