22.04.1955
Neðri deild: 76. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 619 í B-deild Alþingistíðinda. (776)
188. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):
Ég ætla mér ekki að fara að taka hér upp deilur um skattamál við hv. 9. landsk. þm. (KGuðj) og hv. 8. landsk. þm. (BergS) nú þegar fáir eru viðstaddir og komið er fram á nótt, en ég vil þó gera lítils háttar athugasemdir við sumt af því, sem þeir sögðu.
Hv. 9. landsk. þm., frsm. minni hl. fjhn., talaði um það, að framtöl félaga til skatts mundu ekki vera örugg. Það er vafalaust rétt hjá honum, að það sé misbrestur á því. Hitt veit ég, að mörg félög, ekki síður en einstaklingar, telja samvizkusamlega fram til skatts, og ég geri ráð fyrir því, að hv. 9. landsk. þm. geti verið mér sammála um það, að ekki væri sanngjarnt að leggja óeðlilega háa skatta á þau félög með hliðsjón af því, að einhver önnur félög ef til vill reyndu að dylja eitthvað af sínum tekjum við framtöl.
Hann talaði um, að það hefði átt að mega afgreiða þann þátt um gjöld félaga, sem snýr að ríkissjóði, og taka útsvörin á eftir. Þetta höfum við athugað ásamt fleiru í skattamálanefndinni, en þetta er nú í það miklu samhengi hvað við annað, að það er nokkuð erfitt að slíta það í sundur, því að það verður að hafa í huga, að skattgreiðslurnar í heild verði hæfilegar, hvernig sem þeim svo er skipt á milli bæjar- og sveitarfélaga annars vegar og ríkisins hins vegar.
Það mun vera byggt á misskilningi hjá hv. þm., sem hann sagði um það, að stjórnin hefði ekkert lækkað skatta í fyrra. Hann var að tala um, að það hefðu verið aukin einhver gjöld á því þingi. Ekki hafði hann neinar tölur um þetta til að leggja fram eða neina útreikninga, hverju það hefði numið, en það er ég viss um, að það hefur ekki verið nema lítið brot af þeirri lækkun á tekjuskattinum, sem þá var samþykkt.
Þá virtist hv. þm. þykja það ákaflega einkennilegt, að ég hefði nokkuð gluggað í dönsk skattalög eða skattafrv. þar í landi. En ég verð að segja honum það, að skattamálanefndin hefur fengið sér ýmsar upplýsingar, meira að segja frá fleiri löndum utan Íslands en frá Danmörku. Það er nú þannig um skattamál, að það getur verið ýmislegt af því að læra. Þó að maður sé ekki að taka það allt til fyrirmyndar, sem gerist í nágrannalöndunum, þá getur verið gott í þessu vandasama máli ekki síður en öðrum að kynna sér, hvað er að gerast þar, því að ýmislegt getur verið þar að finna, sem mætti draga lærdóm af og hafa til fyrirmyndar. Ég veit það, að hv. 9. landsk. þm. kannast við það, að það er í mörgum málum og við mörg viðfangsefni, að athugað er, hvernig á þeim er tekið annars staðar, og reynt að draga af því nokkra lærdóma, og ég held, að það þurfi enginn að hneykslast á þessu. Þó að ég væri að minnast á það, benda á það út af þeim ásökunum, sem beint hefur verið til n. hér, að endurskoðun skattalaga hefði staðið mjög lengi yfir í Danmörku og væri ekki búið að ganga frá því máli enn, þá ber það ekki svo að skilja, að ég telji, að við eigum sérstaklega hér að taka það til fyrirmyndar, og æskilegt væri, að við gætum lokið því hér á skemmri tíma.
Hv. þm. talaði um það, að verið væri að gefa stærstu gróðafélögunum eftir skatta, og þetta var nú endurtekið af hv. 8. landsk. þm. En eins og ég sagði áðan, þá er það svo, að þó að félögin fái þennan afslátt nú, eins og þau höfðu s.l. ár, þá borga þau hærri skatta nú af tekjum, samanborið við það, sem einstaklingar greiða, heldur en þau áður gerðu. Um þetta gæti ég nefnt töluleg dæmi með því að taka tekjuupphæðir á vissum tekjubilum og gefa upplýsingar um það, hvað félag borgar háan hundraðshluta af tekjunum í skatt og hvað aftur einstaklingar, en ég er ekki að eyða tíma í það nú. En þetta verður skiljanlegt, þegar þess er gætt, að einstaklingar fengu að meðaltall upp undir 30% lækkun á sköttum í fyrra, en félögin aðeins 20%, en eins og ég gat um, þá var sami skattstiginn, sem gilti fyrir bæði hlutafélög og einstaklinga fram að árinu í fyrra.
Ég ætla ekki að eyða löngum tíma í að svara hv. 8. landsk. þm., því að mér virtist ræða hans sýna, að hann misskildi ýmislegt í þessum málum — eða þá að hann væri orðinn ákaflega syfjaður. Hann var að tala um það, að víssir aðilar, og átti þar víst við félög, ákvæðu sjálfum sér skatt og fái svo afslátt. Þetta er vitanlega fjarri öllum sanni, að skattgreiðendur ákveði sér sjálfum skattinn.
Þá segir hann, að það hljóti að vera sönnun þess, að því hefði verið lofað í fyrra, að nýtt frv. um skattgreiðslur félaga yrði lagt fyrir þetta þing, að fjmrh. hafi sagt, þegar hann lagði þetta mál fyrir, að það væri nú sýnilegt, að ekki væri hægt að afgreiða ný lög um félagaskattana á þessu þingi. Ég býst ekki við, að nokkur annar en þessi hv. þm. geti fundið út úr þessum ummælum hæstv. fjmrh. það, að hann hafi lofað því í fyrra, að þetta yrði gert nú.
Og ekki batnar nú, þegar kemur að bollaleggingum hans um þann afslátt, sem einstaklingar fengu í fyrra á sínum sköttum, sem var einmitt áætlað af skattstofu Reykjavíkur að væri að meðaltali 28 eða 29%. Allt var þetta, sem hv. 8. landsk. þm. sagði, á misskilningi byggt. Vitanlega fengu margir einstaklingar, einkum þeir, sem höfðu mikla fjölskyldu fram að færa, miklu meiri skattalækkun en 28 eða 29%, aðrir minna, og meðaltalið af þessu varð þetta samkvæmt útreikningum skattstofunnar.
Það er ekki einasta það, sem hv. 8. landsk. segir hér í ræðustólnum, sem er dálítið skrýtið, heldur einnig það, sem hann hefur lagt fram skriflega í brtt. á þskj. 620 ásamt hv. 8. þm. Reykv. (GilsG). Þar segir m.a., með leyfi hæstv. forseta: „Ákvæði 64. og 65. gr. sömu l. um 20% — tuttugu af hundraði — lækkun á tekjuskatti, tekjuskattsviðauka og stríðsgróðaskatti skulu falla niður.“ En hér er einmitt í frv. lagt til, að þessi ákvæði verði látin gilda fyrir árið 1955, vegna þess að þau féllu úr gildi um síðustu áramót. Sem sagt: hv. þm. koma hér með till. um það, að fella skuli niður lagaákvæði, sem féllu úr gildi um síðustu áramót.
Ég held nú satt að segja, að hv. 8. landsk. þm. ætti að fara að kynna sér eitthvað skattamálin. Hann hefur fulla þörf fyrir það. Og ég held, að hann ætti að láta sér nægja til að byrja með að lesa íslenzk skattalög, en sleppa þeim dönsku, þangað til hann væri kominn eitthvað svolítið niður í því, sem við höfum hér hjá okkur um þessi efni.