02.05.1955
Efri deild: 77. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í B-deild Alþingistíðinda. (790)
188. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. meiri hl. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Meiri hl. fjhn. mælir með samþykkt þessa frv. Í meiri hlutanum eru fjórir af fimm mönnum, sem eiga sæti í fjhn. Fimmti nm., hv. 4. þm. Reykv., er mótfallinn frv., að nokkru leyti a.m.k. Nál. frá honum er enn ekki komið út úr þoku sköpunarinnar. (Gripið fram í.) — Það er að koma inn. — En eftir umr. þeim, sem fram fóru í n., gizka ég á, að minni hl. sé mótfallinn l. gr., að tekjuskattur félaga verði á árinu 1955 afskrifaður um 20% frá þeirri útkomu, er verður eftir útreikningi samkv. óbreyttum eldri ákvæðum, eins og gert var á árinu 1954. Aftur á móti hygg ég, að hv. minni hl. sé samþykkur 2. gr. frv., um 50% álag á eignarskatt.
Þegar breytt var ákvæðum um tekjuskatt einstaklinga á síðasta Alþingi, svo að álöguþungi hans lækkaði um 28–29% samkv. útreikningi skattstofunnar, þá var ekki lokið endurskoðun á þeim kafla tekjuskattslaganna, sem er um tekjuskatt félaga. Standa þess vegna hinar gömlu reglur óbreyttar árið 1954 um skatt félaganna, að öðru leyti en því, að hann var lækkaður um 20% til samræmis við hina fyrrnefndu lækkun tekjuskattsins á einstaklingum. Enn er ekki lokið endurskoðuninni, og samkomulag hefur enn ekki fengizt um till. til breytinga á löggjöfinni um tekjuskatt félaganna.
Lög um tekjuöflun sveitarfélaga eru í endurskoðun hjá sömu nefnd, og ákvæði um tekjuöflun sveitarfélaga snerta mjög, að því er félögin snertir, ákvörðun um till. um tekjuskattslöggjöf fyrir þau. Á ég þá sérstaklega við það, sem kallað er veltuútsvar og til þessa hefur verið lagt á þá, sem reka atvinnu, og þá fyrst og fremst félög. Þau hafa ekki veríð gerð frádráttarhæf, og getur það orðið til þess, — reynslan hefur sýnt það, — að stundum hafa verið teknar samtals meiri greiðslur af félögunum til ríkis og sveitar en þau hafa haft í tekjuafgang. Einnig má benda á það, að löggjöf um hlutafélög er í athugun, og hefur það nokkuð mikla þýðingu, hvernig lagasetningu um hlutafélögin verður breytt, við það að ákvarða álögur tekjuskatts á félögin.
Af þessum ástæðum, að endurskoðuninni er ekki lokið og till. ekki fyrir hendi um breytingar á löggjöfinni, leggur hæstv. ríkisstj. til, að ákvæðin, sem sett voru til bráðabirgða fyrir 1954, verði framlengd fyrir árið 1955.
Meiri hl. fjhn. mælir með þessu, eins og ég sagði áðan, og fyrir því að framlengja ákvæðin eru hin sömu rök og að setja ákvæðin í fyrra. Hins vegar lýsir meiri hl. nefndarinnar því yfir, að hann telur áríðandi, að lokið verði endurskoðun skattalaganna fyrir næsta þing, svo að ekki þurfi oftar til samþykktar á þessum bráðabirgðaákvæðum að koma.