18.04.1955
Neðri deild: 73. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 639 í B-deild Alþingistíðinda. (798)

189. mál, íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Hæstv. félmrh. sagði í sinni framsöguræðu fyrir þessu máli, að hér væri raunverulega um mjög einfalt mál að ræða, og það er á vissan hátt alveg rétt hjá honum. Það er hér um stórfellt „prinsip“-mál að ræða og að því leyti ákaflega einfalt. Það er mál, sem við getum rætt um án þess að vera nokkuð óvissir um, hvað í því felist, og komið okkur niður á, hvaða afstöðu við viljum taka til þeirrar stefnu, sem fram kemur í því.

Ég held, að það sé nauðsynlegt fyrir okkur, að við gerum okkur grein fyrir, þegar nú kemur fram hvert frv. á fætur öðru um vaxtahækkun og það hækkun á vöxtum, sem búið er að halda lágum 25 ár, — að við gerum okkur ljóst, hvaða stefna það er, sem þarna er um að ræða, og hvaða afstöðu við viljum taka til þeirrar stefnu.

Hvað eru raunverulega vextirnir, og hvað tákna þeir í þessu tilfelli sem öðrum? Vextirnir eru ákveðinn hluti af þeirri almennu gróðamyndun, sem fram fer í þjóðfélaginu. Þeir eru hluti af því almenna arðráni, sem á sér stað á vinnandi stéttum. Vextirnir eru sá hluti af slíkri gróðamyndun eða af slíku arðráni, sem fer til peningaeigendanna sem slíkra. Það er sá hluti af heildargróða auðmannastéttarinnar, sem fer til peningaeigendanna sem sérstakur skattur til þeirra, og að því leyti eru þessir vextir skattur, ekki aðeins á verkamenn og bændur eða aðrar vinnandi stéttir, heldur að nokkru leyti á atvinnurekendur líka, þ.e. þá atvinnurekendur, sem sjálfir verða að taka sitt fé að láni og nota það í atvinnulífinu. Það er sá beini gróðaskattur til þeirra, sem peningana eiga, en ekki standa sjálfir í neinum framkvæmdum. Og það er ákaflega nauðsynlegt, að hvert þjóðfélag og ekki sízt þjóðfélag, sem er í eins örum vexti og okkar, geri sér alveg ljóst og ákveði það með l., hve mikill sá hlutur á að vera, sem peningamennirnir, eigendur peninganna, í mótsetningu við ekki aðeins vinnandi stéttirnar, heldur meira að segja atvinnurekendurna líka, að svo miklu leyti sem þeir eru lántakar, eigi að vera, þ.e. peningaeigendanna gagnvart öllum öðrum aðilum þjóðfélagsins, verkamönnum, bændum og atvinnurekendum. Við skulum gera okkur ljóst, að þegar við erum að taka ákvarðanir um, hvað vextir eigi að vera háir, hvort heldur er í þessu tilfelli eða öðrum, þá erum við að skipta þeim gróða, sem myndast í þjóðfélaginu sem heild, á milli þessara aðila, ákveða, hve mikill hluti skuli haldast hjá þeim, sem skapa þennan gróða, og hve mikill hluti skuli fara til þeirra, sem venjulega eru beinlínis aðeins peningaeigendur í slíku tilfelli.

Í okkar þjóðfélagi, eins og það er skipulagt, hefur ríkið sem slíkt alveg sérstaka aðstöðu til þess að ráða þessum málum, — aðstöðu, sem mörg ríki annars í auðvaldsheiminum ekki hafa á sama hátt. Það hefur þá aðstöðu, að hér á Íslandi eru allir bankarnir ríkisbankar og seðlabankinn einvörðungu ríkisbanki, þannig að ákvörðunin um vexti og vaxtaupphæð er þess vegna háðari ákvörðunum ríkisins, þ.e. Alþingis og seðlabankans, heldur en í flestöllum öðrum kapítalistískum löndum. Ríkið hefur einnig sjálft mjög góða aðstöðu til þess að geta ráðið um þessa hluti, vegna þess að ríkið lætur seðlabankanum í té allan réttinn til seðlaútgáfunnar og þar með til mjög mikils hluta af allri þeirri peningamyndun, sem notuð er til veltu í þjóðfélaginu. Seðlabankinn notar þetta fé, sem ríkið lætur honum í té, án þess að hann sem stendur greiði nokkurn skapaðan hlut af því fé, nokkra vexti af seðlunum til ríkisins sem slíks, heldur rennur það allt saman til seðlabankans. Ríkið lætur með seðlaútgáfunni Landsbanka Íslands eða seðlabankanum í té sem stendur 250 millj. kr. eða þar í kring, — það breytist ofur lítið, fer upp í 270–280 millj. og niður fyrir 250, en almennt hefur það verið tvö síðustu árin um 250 millj. kr.

Þessar 250 millj. kr., sem seðlaútgáfan er, er sá hluti úr allri peningaveltu landsins, sem ríkið sem slíkt og Alþ. sem slíkt hefur þess vegna alveg sérstaka ástæðu, sérstakt vald og sérstaka möguleika til að ráðstafa, ekki sízt hvað vexti snertir, og af þessum seðlum, af þessum 250 millj. kr., sem ríkið setur í veitu af peningum í þjóðfélaginu, eru engir vextir teknir. M.ö.o.: Ríkísvaldið hefur það algerlega í sínum höndum að ákveða, hverjir skuli fá þessar 250 millj. kr. til útlána og með hvaða kjörum. Þar með hefur ríkíð aðstöðu til þess, ef það vill t.d. hlynna að einhverjum sérstökum sjóðum í þjóðfélaginu, að segja við seðlabankann: Af þessari seðlaútgáfu, sem þið nú hafið svo að segja að léni frá þjóðfélaginu, ákveðum við, að þið skuluð lána ákveðnum sjóðum svona og svona mikið og að þið skuluð taka fyrir það þessa og þessa vaxtaupphæð. Ég býst við, að það sé almennt reiknað með því, að sjálfur kostnaðurinn við seðlaútgáfuna, prentunina á seðlum, eftirlit með því og allt saman slíkt, sé raunverulega ekki meiri en í allra hæsta lagi 1/4 % af því fé, sem seðlarnir tákna.

Það hefur einu sinni verið nokkuð rætt við Landsbankann um, hvernig að skyldi fara, þegar Alþ. tók ákvarðanir um, hvernig hluti af seðlaveltunni skyldi notaður. Það var þegar Stofnlánadeild sjávarútvegsins var sett á stofn. Þá var ákveðið, að 100 millj. kr. af fé Landsbankans, seðlabankans, skyldu hagnýttar til að setjast í þessa stofnlánadeild.

Upprunalega var um það talað, þegar um það var rætt hér í þinginu, að vextirnir af þessu fé, sem ríkið þannig lagði til stofnlánadeildarinnar, skyldu vera kringum 1%. Það var okkar upphaflega hugmynd, sem fyrir því beittu sér. Því miður tókst ekki að fá það í gegn. Það var sett Landsbankanum í sjálfsvald, hvaða vexti hann reiknaði, og ég veit, að Landsbankinn hefur reiknað stofnlánadeild sjávarútvegsins 21/4% af því fé, þessum 100 millj. kr., — nú í kringum i0 millj. kr., — sem hann hefur lánað henni. Stofnlánadeildin hefur síðan lánað út með 21/2%. Hún hefur fengið 1/4% til þess að standast kostnaðinn við sinn rekstur og önnur útgjöld, sem hún þurfti að borga.

En þetta dæmi sýnir hins vegar, hvernig hægt er að fara að fyrir þjóðfélagið. Þess vegna hefur raunverulega ríkið getað á hverjum tíma sem það hefur viljað tekið þær ákvarðanir að segja með lögum: Svona og svona mikið af því fé, sem seðlabankinn hefur til umráða frá ríkinu, skal hagnýttur í þessu og þessu skyni. Alþ. ákveður með lögum, að t.d. 50 millj. kr. af því fé, sem seðlabankinn hefur til umráða, skuli settar í t.d. byggingarsjóð, þann byggingarsjóð, sem ætlaður er fyrir byggingu íbúðarhúsa í kaupstöðum og kauptúnum eða byggingarsjóð verkamannabústaðanna, eins og það er venjulega kallað í daglegu tali. Eða hins vegar, ef við þannig vildum hafa það: Ríkið ákveður, að svo og svo mikið af því fé, sem seðlabankinn hefur til meðferðar, t.d. 50 eða 100 millj. kr.; skuli sett í byggingarsjóð sveitanna og vextirnir, sem seðlabankinn reiknar af því fé, skuli vera t.d. 1/4%, t.d. 1/2%, t.d. 1%. Þetta er vald, sem Alþ. hefur og getur notað, hvenær sem það vill, og ég skal taka það fram, að í sumum löndum er það svo, að ríkið tekur sérstakt gjald af seðlabankanum fyrir seðlana, sem það setur í umferð.

Þess vegna hefur ríkið, þ.e.a.s. Alþ., með sínu löggjafarvaldi og með eignarvaldi þjóðarinnar á bönkunum og fyrst og fremst seðlabankanum möguleika til þess sjálft að ákveða, hvaða vextir skuli teknir, a.m.k. af öllu því fé, sem snertir sjálfa seðlaútgáfuna. Alþ. hefur það líka um annað fé, en það hefur þar þægilegasta aðstöðuna, vegna þess að það þarf ekki á neinn hátt að grípa inn í lögmál þess almenna viðskiptalífs, þegar það ákveður vexti af því fé, sem er seðlaútgáfan. Við vitum, að Alþ. grípur að vísu inn í það almenna viðskiptalíf með lögum að öðru leyti. Alþ. ákveður t.d. með lögum, að vextir, sem séu hærri en 7–8%, — það hefur farið dálítið eftir árunum, hvað við höfum ákveðið þetta hátt, — skuli teljast okur, skuli vera hannaðir, og það meira að segja þó að viðskiptalífið, það frjálsa viðskiptalíf, eins og það er kallað, á hinum ýmsu tímum, hafi máske boðið hærra í vexti af fé en 7 eða 8%. M.ö.o.: Alþ. og ríkisvaldinu hefur þótt rétt að ákveða, að þótt það frjálsa viðskiptalíf lánaði jafnvel fyrir 10%, jafnvel fyrir 12%, jafnvel hærra, þá væri það ekki löglegt, þá varðaði það við lög og menn hlytu dóma fyrir að taka hærri vexti en t.d. 7 eða 8%. Það eru ekki liðin mörg ár síðan við urðum allt í einu að fara .að framlengja hér á Alþ. brbl., sem ríkisstj. hafði sett um vaxtaupphæð, vegna þess að óvart hafði það komið í ljós, að Landsbankinn sjálfur var orðinn sekur um okur, og ríkisstj. varð að gera brbl. í hvelli og Alþ. síðan að samþykkja þau brbl. seinna til þess að forða Landsbankanum undan því að verða sekur um okur.

Þess vegna hljótum við að ræða það spursmál í sambandi við þetta mál, hvort ríkið á ekki að nota það vald, sem það hefur í sambandi við seðlaútgáfuna, til þess að gera kleift að hafa lága þá vexti, sem við erum allir sammála um, — og það heyrði ég alveg sérstaklega á hæstv. félmrh., að hann var síður en svo glaður yfir að flytja þetta frv., — að þyrftu sérstaklega að vera lágir.

Hvernig hefur það verið undanfarið í okkar þjóðfélagi um þessa afstöðu til vaxtanna? Það hafa verið þær hugmyndir uppi, og þau lög, sem við hér erum að ræða um að breyta, lög, sem upprunalega hétu um verkamannabústaði, voru sprottin upp af hugmyndum um, að það yrði að losa verkamenn, þegar þeir væru að reyna að koma sér upp íbúðum, við vaxtaþrældóminn, losa þá við að þurfa að greiða háa vexti af því fé, sem þeim væri lánað til íbúðarhúsabygginga. Og á sama tíma sem þessi hugmynd kom upp, sem liggur til grundvallar þessu frv., komu líka þær hugmyndir upp og fengu útrás í einum fyrstu og róttækustu till., sem Framsfl. þá flutti, frv. um byggingar- og landnámssjóð, að það skyldu ákveðnir til handa bændum til þeirra framkvæmda; sem þjóðfélaginu og bændastéttinni riði á að ráðizt yrði í, lægri vextir en almennt væri ákveðið í þjóðfélaginu. Á árunum 1920–30, þegar þessi l. upphaflega voru sett, var það alveg ákveðin hugsjón af hálfu verkamanna og bændahreyfingarinnar og ekki sízt Framsfl. og Alþfl. að leysa bændur og verkamenn undan þeirri kvöð, undan þeim skatti, sem hinir almennu, háu vextir viðskiptalífsins legðu á þá, svo framarlega sem þeir væru látnir verða undirorpnir þeim lögmálum, sem giltu á hinum frjálsa peningamarkaði. M.ö.o.: Þær hugsjónir, sem lágu til grundvallar ákvæðinu í l. um verkamannabústaði fyrir 25 árum og þeim öðrum frv., sem verið er að breyta með þeim l., sem hérna liggja fyrir, voru alveg ákveðnar hugsjónir róttækra verkamanna og bændaflokka um að hindra, að lífsnauðsynleg starfsemi þessara stétta lenti undir því oki, sem háir vextir í auðvaldsþjóðfélaginu eru. Það var verið að reyna að forða verkamönnum og bændum undan þeim almennu lögmálum viðskiptalífs kapítalismans, undan þeim háu vöxtum, sem viðgangast venjulega í þjóðfélagi, þar sem á annað borð er hægt að hafa allmikinn gróða af peningum eða peningaeign og af því að leggja peninga í atvinnurekstur. Þess vegna voru þessi lagaákvæði, sem Alþfl. og Framsfl. beittu sér fyrir fyrir 25 árum í fyrstu till., sem fram komu viðvíkjandi verkamannabústöðum og viðvíkjandi byggingar- og landnámssjóði, og síðan voru í ýmsum l. og á mismunandi tímabilum sett í l. alveg fram á síðustu ár, vottur um tilhneigingar til þess að láta ekki auðvaldsskipulagið og þess viðskiptalögmál verða álls ráðandi í þjóðfélaginu, til þess að skapa alveg sérstaka aðstöðu fyrir verkamenn og bændur til að vinna að því að koma upp íbúðarhúsabyggingum og gera þeim það kleift með allt öðrum og betra hætti en hið almenna lögmál viðskiptalífsins hefði gert þeim mögulegt.

Nú sagði hæstv. félmrh., að frá þeim tímum, sem þessir vextir voru ákveðnir, hefði orðið mikil breyting á. Rétt er það, að mikil breyting hefur orðið á. En hann áleit, að nú væri sérstök ástæða til þess að samlaga þau ákvæði, sem giltu um þessa sjóði, bæði í þessu frv., sem hér liggur fyrir, og þeim öðrum, sem hæstv. ráðh. minntist á, að nokkru leyti þeim háu vöxtum, sem nú væru orðnir. En er þetta nú að öllu leyti rétt? Við skulum athuga. Hafa ekki á tímabilinu frá því að l. um verkamannabústaði voru sett fyrir 1930 fyrr orðið háir vextir hér á Íslandi? Ég vil aðeins minna á, að við höfum orðið að ganga í gegnum mjög erfið tímabil með mjög háum vöxtum á þessum tíma og ekki sízt vegna þess, að við vorum þá orðnir allskuldugir erlendu valdi. Ég skal t.d. minna á, að fyrir 20 árum, 1935, var svo komið hjá okkur, að þær erlendu skuldir, sem við þá stóðum í, voru samkvæmt skýrslu hagstofunnar, í janúar 1935, hvorki meira né minna en 83 millj. kr., sem þá skiptust þannig, að ríkið skuldaði erlendis um 35 millj. kr., bankarnir 21 millj., bæjar- og sveitarfélög 4 millj. og einstaklingar, þ.e.a.s. þeir einstaklingar, sem til náðist, 22 millj. Þetta þýddi alls, að landið skuldaði erlendis 83 millj. kr. Ég býst við, að væri ekki skakkt ágizkað hjá mér að segja, að 83 millj. kr. þá samsvari raunverulega um 830 millj. kr. nú. Ég býst við, að það sé alveg óhætt að segja, að tífaldazt hafi það verðmæti, sem þá var um að ræða. Meginið af þeim lánum t.d., sem bankarnir höfðu þá erlendis, var með 5–5 1/2% vöxtum og þar í kring. M.ö.o.: Á þeim tíma urðu bankarnir aðeins að greiða fyrir það fé, sem þeir fengu að láni erlendís, um 5% í vexti. Það þýddi þá um 4 millj. kr. á ári, sem við urðum að greiða út úr landinu eingöngu í vexti og var enginn smáræðis skattur fyrir okkur þá. En þessi skattur hækkaði þó náttúrlega í meðförunum hérna heima, bankarnir lögðu á þetta. Og hvað voru raunverulegir vextir hér á Íslandi orðnir á tímabilinu 1930–40? Hvað voru t.d. þeir vextir, sem togaraútgerðin á Íslandi varð raunverulega að borga á tímabilinu 1930–39? Það vita allir, hve illa togaraútgerðin stóð þá, það vita allir, hve mikið hún var farin að skulda og að meginið af hennar víxlum varð venjulega að framlengjast með alls konar vöxtum og dráttarvöxtum, og ég held, að það sé ekki of mikið fullyrt, þó að sagt sé, að sú vaxtaupphæð, sem togaraútgerðin þá varð að borga, hafi mjög almennt verið 9 og 91/2%. Ég veit um t.d. bæjarútgerð Hafnarfjarðar, og ég man eftir, að Sjálfstfl. var á þeim tíma oft að vitna í, að það væri ekki rétt gott með þessar bæjarútgerðir, þær væru alltaf að tapa, en ég man, að það lá þá fyrir heildaruppgjör fyrir þau 9 ár, frá 1930–39, um bæjarútgerð Hafnarfjarðar, þar sem það stóðst alveg á tapið, sem bæjarútgerð Hafnarfjarðar hafði orðið fyrir á þessum 9 árum, og vextirnir, sem hún hafði orðið að borga til bankanna. Og það var frá vinstri flokkunum þá ekki síður oft vitnað í tap Kveldúlfs og skuldir hans, og mér er nær að halda, að það mundi e.t.v. hafa komið út eitthvað ekki ósvipað dæmi, ef það hefði verið tekið fyrir.

En þó að togaraútgerðin, sem þá eins og nú var einn höfuðgrundvöllur atvinnulífs landsins, yrði að borga svona háa vexti, var þá látið undan og var farið að hækka vextina, sem verkamannabústaðirnir og þeirra byggingarsjóður varð að borga? Þó að sjálfur Landsbankinn og bankarnir tækju svona háa vexti og þeir væru vafalaust þá mjög algengir í viðskiptalífinu og máske hærri vextir, var látið undan og var farið að hækka þá 21/2% vexti, sem þá voru í l. um byggingarsjóði verkamannabústaðanna og annarra? Nei, það var ekki farið að hækka þá. Þeir flokkar, sem í upphafi höfðu beitt sér fyrir því að hafa lága vexti við byggingar handa verkamönnum og víð byggingar og framkvæmdir í sveitunum, stóðust alla þessa eldraun, stóðust alla þessa vaxtahækkun í þjóðfélaginu í kringum þá, héldu áfram að hafa vextina lága til byggingarsjóðanna. Og ekki aðeins það. 1944, þegar farið var að ræða um að kaupa nýjan togaraflota til landsins og byggja ný fiskiðjuver, þá var vaxtaspursmálið eitt af því fyrsta, sem kom á dagskrá hjá þeim, sem beittu sér fyrir þessu. Þegar rætt var um það, hvort hægt mundi vera að fá einstaklinga og félög, bæjarfélög þar á meðal, til þess að kaupa slíka togara, þá þótti öllum þeim, sem vildu tryggja, að landsmenn gætu eignazt þessa togara, alveg sjálfsagt að ákveða með sérstökum l. og það jafnvel þó að það kostaði þá nokkur átök við Landsbankann, að stofnlánin til þessara togara skyldu ekki vera með nema 21/2% vöxtum, jafnvel var lengi talað um 2%, og það var jafnvel rætt um, að það mundi e.t.v. vera heppilegast, að ekki aðeins stofnlánin, heldur líka meira að segja rekstrarlánin ættu helzt ekki heldur að vera hærri. M.ö.o.: Þrátt fyrir alla þá háu vexti, sem greiddir vorn á árunum 1930–40 í því almenna viðskiptalífi og af hendi bankanna, þótti ekki aðeins ekki ástæða til þess að fara að breyta l. um verkamannabústaði og þeim l., sem þá enn þá giltu víðvíkjandi sveitunum í þessum efnum, heldur þvert á móti ástæða til þess að tryggja meira að segja þeim tilvonandi togaraeigendum samsvarandi lága vexti eins og verkamönnum og bændum hafði verið tryggt áður. Og þetta var alveg tvímælalaust rétt stefna. Þetta var sú stefna að reyna að halda því, sem mest þjóðþrif væru að, því, sem væri önnur eins lífsnauðsyn og byggingarnar fyrir verkamenn og bændur og framkvæmdirnar fyrir framtíðina í sveitinni og öflun togaranna til hinna ýmsu bæja landsins, og þeim miklu lánum, sem til þess voru veitt, utan við þau almennu lögmál viðskiptalífsins, utan við hin svokölluðu frjálsu viðskipti peningamarkaðsins, girða þau af, tryggja þau með sérstöku móti, þannig að vextirnir gætu verið 2 eða 21/2 %, hvað svo sem vextirnir annars í þjóðfélaginu yrðu. Nú er hins vegar allt í einu komið fram með frumvörp um að breyta þessu, um að hækka þessa vexti í þessu tilfelli, sem við hér ræðum viðvíkjandi verkamannabústöðunum og þeirra byggingarsjóðum, úr 2% upp í 31/2%, og það er rökstutt með því, að það þurfi að samlaga þetta ástandinu á peningamarkaðinum.

Ég vil strax taka það fram, að ég álít þetta ranga pólitík, ranga vaxtapólitík, ranga þjóðfélagslega pólitík. Og mér er alveg ljóst, hvaðan kemur þessi gífurlegi þrýstingur, sem nú er smám saman að eyðileggja endurbætur, sem staðizt hafa í 25 ár alla storma kreppna og okurs hér á Íslandi. Við sáum það mjög greinilega í þeirri litlu grg., sem fylgdi gengislækkunarfrv. 1950, að það var lögð sérstök áherzla á það af þeim, sem þá grg. ritaði, dr. Benjamín Eiríkssyni, að vextirnir af fé því, sem Íslendingum áskotnaðist, yrðu reiknaðir allháir, þegar ríkið lánaði þá út, og við vitum, að til þess hefur leitt sá þrýstingur, sem þar kom fram frá ameríska auðvaldinu sem gefandanum í þessu efni, að ríkið hefur út úr mótvirðissjóðnum síðan lánað með 51/2% vöxtum. M.ö.o.: Þá háu vexti, sem við urðum að stynja undir frá hálfu Englands á tímabilinu eftir 1930, þegar Íslendingar urðu svo að segja þrælar til þess að geta borgað vextina til enska auðvaldsins, er nú verið að gera landlæga í okkar eigin landi undir áhrifum ameríska auðvaldshugsunarháttarins, undir áhrifum þess hugsunarháttar, að peningarnir heimti sitt og eigi kröfu á sínu, hvað svo sem öllu líði og allri velferð mannanna, sem skapa verðmætin. Öll þessi tilhneiging til vaxtahækkunar, sem nú brýzt fram í þessu frv. líka og hefur verið að ryðja sér til rúms á síðustu 5 árum á Íslandi, er áhrif þess auðvaldshugsunarháttar, sem verið er að berja inn í þjóðina, þeirrar peningadýrkunar, sem verið er að reyna að gagnsýra þjóðina með og núna er að rífa niður og eyðileggja allt, sem eftir var af umbótum þeirra ára, þegar sótt var fram í þessum efnum.

Ég skil þess vegna vel, að hæstv. félmrh., sem sjálfur er búinn að standa í baráttu í þessum málum, sérstaklega hér áður fyrr árum og áratugum saman, og eins og raunverulega allur Framsfl. hefur verið stoltur af því að geta tryggt þá lágu vexti, sem voru ákveðnir upprunalega til bændanna, sé, eins og hann komst að orði, ekki glaður yfir þessu frv., sem hér er lagt fram. Ég skil, að hann líti á þetta sem eins konar neyðarúrræði. En þetta er ekki einu sinni úrræði, þetta er því siður neyðarúrræði. Það er engin þörf á að gera þessa ráðstöfun. Það, sem er að gerast þarna, er, að gróðamyndunin í þjóðfélaginu kringum okkur er að smita út frá sér. Hún er að skapa þann hugsunarhátt, að það megi helzt hvergi vera nokkur „óasi“, nokkur vin, nokkur staður, þar sem háu vextirnir fái ekki að ryðja sér til rúms. Við sáum þetta í húsnæðisfrv. ríkisstj., þar sem farið er upp í 7%, — farið upp í takmörk þess, sem var okur fyrir nokkrum árum samkv: lögum. Og nú á sem sé að róta burt þessum gömlu ákvæðum í lögunum um verkamannabústaði og framkvæmdir, sem sveitirnar snertir.

Spurningin, sem hér liggur fyrir okkur, er þess vegna ákaflega einföld, eins og hæstv. ráðh. kom inn á. Eigum við að láta undan þessum þrýstingi frá gróðamynduninni, frá auðvaldshugsunarhættinum, frá peningadýrkuninni í kringum okkur, eða eigum við að standa gegn henni? Eigum við að segja: Það er engin ástæða fyrir Alþingi Íslendinga, það er engin ástæða fyrir þjóðfélagsheildina til þess að láta þessi lögmál, sem gilda í hinu frjálsa viðskiptalífi, gilda um þessar athafnir, sem þarna er um að ræða, — þær athafnir, að verkamenn komi sér upp bústöðum, sem standa í 100–200 ár, eða þær endurbætur, sem bændur eru að vinna fyrir komandi kynslóðir, og þær byggingar, sem þeir eru að reisa og þarf ekki að endurnýja af hverri kynslóð eins og torfbæina gömlu, a.m.k. hér á Suðurlandi, heldur geta staðið jafnvel aldaraðir? Er nokkur ástæða til þess, að þjóðfélagið fari að reikna háa vexti af þessum framkvæmdum, það þjóðfélag, sem sjálft leggur til með seðlaútgáfunni, bönkum landsins, fyrst og fremst seðlabankanum, fé, sem Alþ. raunverulega getur alveg ákveðið, hvaða vexti það vill reikna af? Ef við viljum setja inn í þessi lög, að af seðlaútgáfunni skuli ráðstafað til byggingarsjóðs verkamanna svona og svona miklu láni með svona og svona lágum vöxtum, þá er það hlutur, sem seðlabankinn verður að gera á morgun. Þetta er fullkomlega á okkar valdi. Það er ekkert spursmál um það. Alþ. verður aðeins að ákveða fyrst, hvort það vill beygja verkamenn og bændur undir það lögmál, sem auðvaldsskipulagið er að skapa í kringum okkur, eða hvort það vill tryggja verkamenn og bændur gegn afleiðingum þess frjálsa viðskiptalífs, svo að notuð séu þau orð, sem formælendum þess eru tömust, eða ef við vildum nota önnur ljótari orð: tryggja þá gegn okrinu og arðráninu, sem á sér stað í sambandi við peningaeignina og peningalánin. Ég álít, að við eigum að berjast á móti þessum tilhneigingum, og af því að ég fann á hæstv. félmrh., að hann var ekki glaður yfir þessu, þá held ég, að við eigum að gleðja hann hér, meiri hl. í hv. Nd., með því að fella þetta frv. og lofa þeim vöxtum að standa, sem nú eru, og ég veit, að hann yrði glaður yfir því. Hann mundi að vísu spyrja okkur: Ja, hvar á ég þá að taka peningana, til þess að sjóðirnir ekki tapi? — Ég mundi segja honum hvað byggingarsjóðinn snertir fyrir sveitirnar og ræktunarsjóð: T.d. gætum við lofað Búnaðarbankanum að hafa eitthvað með útlendu viðskiptin að gera, sem eru aðalgróði hinna bankanna. — Ég held, að ef það væri ákveðið, að gróðinn af gjaldeyrisviðskiptum hjá Búnaðarbankanum rynni í ræktunarsjóð eða byggingarsjóð sveitanna, þá mundi það vera margfalt meira fé en það, sem Búnaðarbankinn og þessir sjóðir tryggja sér með þessari hækkun. Og ég sé ekki nokkurn skapaðan hlut á móti því. Við höfum hér í Nd. einu sinni áður samþykkt það að gefa Búnaðarbankanum slíka heimild. Það var fellt í Fd. og varð þess vegna ekki að lögum, en við getum samþ. það einu sinni enn, og ég held, að það væri miklu betra fyrir byggingarsjóð sveitanna og fyrir ræktunarsjóð. Hvað byggingarsjóð verkamannabústaðanna snertir, þá getum við einfaldlega gert þær ráðstafanir að skylda seðlabankann til þess að lána með lágum vöxtum, alveg eins og við gerðum viðvíkjandi stofnlánadeild sjávarútvegsins, til byggingarsjóðsins ákveðna upphæð. Það gerir ekkert til, þó að seðlabankinn missi þar með af ofur litlum gróða. Hans gróði er meira en nægur fyrir og mjög óeðlilegur sem gróði seðlabanka.

Ég held þess vegna, að við höfum þarna fullan möguleika til þess að breyta til og að það sé rétt af okkur að gera það. Við eigum ekki að láta undan, og við eigum að segja ríkisstj. það, að hún þurfi ekki að láta undan í þessum efnum.

Nú vill kannske hæstv. félmrh. segja, að þetta væri þveröfugt, því að þetta viðgengist í löndunum í kringum okkur. En ég vil leyfa mér að benda honum á, að það er ekki rétt. Hann vill máske meina, að það séu bara hin sósíalistísku lönd, sem geri þannig ráðstafanir viðvíkjandi vöxtunum, en það er ekki svo. Lönd, þar sem auðvaldsskipulagið er jafnríkt og jafnvel sterkara en hjá okkur, gera líka svona ráðstafanir. Ég vil aðeins benda á þær ráðstafanir, sem núna ríkja í Danmörku og núverandi stjórnarflokkur þar, danska sósíaldemókratíið, hefur verið alveg sérstaklega stoltur af, þar sem ákveðnir eru vextir og það meira að segja til 40 ára af lánum til verkamannabústaða og fleiri bústaða, sem eru aðeins 2%, þannig að 2% vextir eru vextir, sem viðgangast í mjög svo ríkum mæli í ýmsum þjóðfélögum í kringum okkur. Hér er þess vegna spurningin um það, hvort við eigum að láta meira undan þeirri almennu tilhneigingu, sem auðvaldsskipulagið sem slíkt og hér á Íslandi alveg sérstaklega afskipti ameríska auðvaldsins og ameríska bankavaldsins hafa, — hvort við eigum að láta meira undan þeirri tilhneigingu en okkar nágrannalönd, hvort við eigum að reyna að varðveita dálitið af þessum gömlu endurbótum og standa á móti því, að vextirnir, sem með mjög róttækum ákvörðunum voru upphaflega markaðir eins lágir og raun hefur borið vitni um í þessi 25 ár, eigi nú að breytast.

Ég vil þess vegna eindregið mælast til þess, að hv. þm. gjaldi varhuga við þessu frv. ríkisstj., — þeir segi þvert á móti við hæstv. ríkisstj.: Við viljum ekki fallast á þessa ráðstöfun, en við skulum vera reiðubúnir til þess að benda ríkisstj. á aðrar leiðir til þess að tryggja fé til þeirra sjóða, sem þarna er um að ræða, og tryggja það, að þeir geti starfað án þess að tapa. — En ég álít það stórt mál og stórt „prinsip“-mál, að við stöndumst þennan þrýsting, sem þarna á sér stað, og að við reynum að halda í þessar gömlu endurbætur, sem hafa þó fengið að standast þessi 25 ár, og látum þær ekki fjúka út í þá hringiðu peningavaldsins, peningadýrkunarinnar og okursins, sem svellur nú allt í kringum okkur.