26.04.1955
Neðri deild: 78. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í B-deild Alþingistíðinda. (805)
189. mál, íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum
Lúðvík Jósefsson Herra forseti. Ég hef flutt hér brtt. á þskj. 639 við þetta frv.
Ég hafði áður í umr. um þetta mál lýst því yfir, að ég er algerlega andvígur þeirri stefnu, sem fram kemur í frv. og miðar að því að hækka útlánsvexti hjá byggingarsjóði verkamanna úr 2% upp í 31/2%.
Því hefur verið haldið hér fram í sambandi við þetta mál, að það væri nauðsynlegt að hækka vaxtakjörin hjá þessum byggingarsjóði, vegna þess að hann mundi þurfa að taka nokkurt fé að láni til sinnar starfsemi og greiða allmiklu hærri vexti af þeim lánum en útlánsvextir eru samkvæmt lögum. Nú hygg ég það vera eigi að síður, að sjóðurinn eigi það mikið fé sjálfur, að hann hafi enn sem komið er þó nokkrar hagstæðar vaxtatekjur, svo að þess vegna er ekki enn nein ástæða til þess að fara að hækka þarna vextina. En til þess þó að mæta þessu sjónarmiði, þá legg ég til með brtt. minni, að ríkissjóður leggi byggingarsjóði verkamanna fram nokkru hærra fast árlegt framlag en gert er ráð fyrir með núgildandi lögum.
Fastaframlag ríkissjóðs til byggingarsjóðs er 150 þús. kr., en þar að auki er svo jafnhátt framlag á móti því, sem bæjar- og sveitarfélög leggja fram.
Nú legg ég til, að fastaframlag ríkissjóðs verði í staðinn fyrir 150 þús. kr. á árí 1 millj. kr. Með því að breyta á þennan hátt tekjum sjóðsins ætlast ég til, að búið sé að vega fyllilega upp á móti þeim vaxtamismun, sem kann að verða í starfsemi sjóðsins á komandi árum. Hins vegar eru þessi auknu útgjöld ríkissjóðs til þessa þarfa sjóðs svo óveruleg fyrir ríkissjóð, eða 850 þús. kr. á ári, að það getur enginn séð eftir þeirri greiðslu.
Ég vænti því, að það verði fremur horfið að því ráði, sem mín brtt. gerir ráð fyrir, heldur en þeirri vaxtahækkunarstefnu, sem frv. er byggt á.