26.04.1955
Neðri deild: 78. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 659 í B-deild Alþingistíðinda. (806)
189. mál, íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum
Frsm. minni hl. (Gylfi Þ. Gylfason):
Herra forseti. Hv. fjhn. klofnaði í afstöðu sinni til þessa máls, og urðum við hv. 9. landsk. þm. (KGuðj) í minni hluta og leggjum til, að frv. verði fellt.
Í frv. er lagt til, að vextir af lánum úr byggingarsjóði verkamanna verði hækkaðir úr 2% upp í 31/2%.
Það er kunnara hv. þm. en frá þurfi að segja, að síðan sjóður þessi var stofnaður árið 1929 hefur hann lánað efnalitlu fólki mjög verulegt fé til byggingar ódýrra og hentugra íbúða og að hin hagstæðu lánskjör, sem gert er ráð fyrir í l. og hafa verið óbreytt frá upphafi, hafa gert ýmsu efnalitlu fólki kleift að búa í þeim íbúðum, sem reistar hafa verið með lánsfé þessa sjóðs. Hin síðari ár hefur þó fjárskortur mjög hamlað starfsemi sjóðsins, þannig að hann hefur ekki getað veitt svo mikil lán sem stjórn hans hefði viljað og félagar í byggingarfélögum verkamanna hafa óskað eftir.
Ýmsir munu hafa gert sér von um, að úr mundi rætast fyrir húsbyggjendum, þegar frv. ríkisstj. um húsnæðismál sá dagsins ljós fyrir skömmu í þessari hv. d. Þær vonir eru nú að svo að segja engu orðnar. Sérstaklega eru vonir hins tekjulága fólks um það, að þetta frv. mundi verða því til einhverrar hjálpar í húsbyggingarfyrirætlunum sínum, algerlega að engu orðnar, því að lánskjörin, sem gert er ráð fyrir í frv., eru svo óhagstæð, að ekki verður gert ráð fyrir því, að nokkur tekjulágur maður muni geta hagnýtt sér aðstoð þess frv. að fullu. Tilraunir voru gerðar til þess, bæði við 2. og 3. umr., að láta frv. þetta verða til þess að efla byggingarsjóð verkamanna, en þær hafa allar verið felldar, nú síðast fyrir um það bil stundu.
Það er skoðun mín, að ef byggingarsjóði verkamanna hefði verið séð fyrir verulega auknu lánsfé, þannig að honum hefði verið gert kleifara að sinna lánbeiðnum en honum er nú og hefur verið undanfarið, þá hefði ekki verið nein frágangssök að hækka vextina af lánum úr sjóðnum, því að svo mikið mundu menn hafa lagt upp úr því að geta fengið fyrirgreiðslu að því er lánsfé snerti, að menn mundu hafa sætt sig við að þurfa að borga af því nokkru hærri vexti. Einkum ef vaxtahækkunin hefði getað orðið til að greiða fyrir að útvega hið aukna lánsfé, var það þeim mun réttlætanlegra. Eins og málin horfa nú, hefur byggingarsjóði verkamanna ekki verið tryggt lánsfé til viðbótar við það, sem hann nú hefur og er sáralítið, svo að byggingarsjóður verkamanna horfir enn fram á mjög erfiða tíma, horfir enn fram á að verða að synja langmestum hluta þeirra manna, sem leita á náðir hans og eygja lánveitingar úr honum sem einu von sína til þess að geta komið sómasamlegri íbúð yfir höfuð sér.
Undir þessum kringumstæðum getum við hv. 9. landsk. þm. ekki fallizt á neina vaxtahækkun á útlánum úr þessum sjóði. Vaxtahækkunin úr honum undir þessum kringumstæðum mundi verða til þess eins að torvelda enn efnalitlu fólki að eignast sómasamlega íbúð. Þess vegna getum við ekki á hana fallizt og leggjum því til, að frv. verði fellt.