03.05.1955
Efri deild: 78. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 662 í B-deild Alþingistíðinda. (815)

189. mál, íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum

Frsm. minni hl. (Haraldur Guðmundsson):

Herra forseti. Ég hef ekki getað orðið samferða hv. meðnm. mínum í fjhn. um afgreiðslu þessa máls, enda er bersýnilegt af ummælum hv. frsm., að allverulegur skoðanamunur er um málið milli mín og hans.

Þetta frv. er borið fram af hæstv. ríkisstj. og er eitt af þremur frv. um vaxtahækkun á ákveðnum tegundum lána hjá ákveðnum stofnunum. Það er gert ráð fyrir því í þessu frv., að útlánsvextir byggingarsjóðs verkamanna, sem nú eru aðeins 2%, verði hækkaðir upp í 31/2%, eða um 75%. Rökstuðningurinn fyrir þessu er sá, að almennir vextir í landinu séu stórum hærri en þetta og því sé ekki eðlilegt að veita þeim, sem þessara lána njóta, svona hagkvæm kjör.

Þessi sjóður var stofnaður í því skyni að veita því fólki, sem er eignalítið eða eignalaust, hefur lágar tekjur og þess vegna engin skilyrði til að koma sér upp húsnæði með venjulegum láns- eða vaxtakjörum, kleift að eignast sómasamlega íbúð. Einmitt með tilliti til þessa var í lögunum um sjóðinn ákveðið, að vextirnir skyldu vera miklum mun lægri en almennir útlánsvextir, að lánstími skyldi vera lengri en tíðkaðist hjá fasteignalánsstofnunum og að hærri hluti kostnaðarverðs yrði lánaður út á íbúðirnar en almennt var og fáanlegt í öðrum lánsstofnunum. Sjóðurinn var stofnaður og til þess á fót settur að gera einmitt því fólki, sem ekki getur eignazt íbúð með venjulegum láns- og vaxtakjörum, fært að fá þak yfir höfuðið og eiga það sjálft.

Þessi sjóður hefur gert mjög verulegt gagn á undanförnum árum, og hefur hann þó stöðugt átt við mikinn fjárskort að búa, bæði vegna ónógra framlaga af hálfu hins opinbera og ekki síður — jafnvel enn fremur vegna þess, að hann hefur ekki getað aflað sér þess lánsfjár, sem nauðsynlegt er, til þess að hann geti aukið við sína starfsemi, veitt fleiri lán. Þrátt fyrir þessa örðugleika hafa þó verið byggðar fyrir fé sjóðsins eða með lánum úr honum um 900 íbúðir á öllu landinu og þar af um helmingurinn hér í Reykjavík. Þessar íbúðir eru yfirleitt mjög hentugar. Það var vandað mjög til teikninga og allrar gerðar á húsunum, og mér er óhætt að fullyrða, enda mun það almannadómur, að þessar íbúðir hafa reynzt mjög hentugar og tiltölulega ódýrar í byggingu.

Nú hefur byggingarfélag verkamanna hér í Reykjavík í smíðum eitthvað á milli 18 og 24 íbúðir. Eftir því sem áætlað er, er gert ráð fyrir, að þessar íbúðir kosti rétt í kringum 200 þús. eða nokkuð yfir 200 þús. kr., og þar er þá að sjálfsögðu miðað við þann tíma, sem áætlunin er gerð, en ekki daginn í dag. Ef hámarkslán, sem sjóðurinn veitir, fæst til slíkrar íhúðar, þá yrði það 150 þús. kr. Til þess að geta komið sér upp íbúð, þarf því maðurinn, sem vill eignast hana, að fá annars staðar frá a.m.k. 50 þús. kr. og til viðbótar það, sem á skortir, að 200 þús. kr. nægi til þess að greiða fyrir íbúðina.

Að óbreyttum lögum, með 2% vöxtum, er mánaðargreiðsla til byggingarfélagsins fyrir mann, sem skuldar 150 þús. kr., rétt í kringum 610 kr. á mánuði. Í þeirri upphæð er innifalið áætlaðir skattar til bæjarins og áætluð fasteignagjöld. Ef þessi maður leggur sjálfur fram það, sem á vantar, 50 þús. kr., og reiknar sér sparisjóðsvexti af því fé, þá má bæta við þessa mánaðargreiðslu 250 kr., þannig að hún er orðin 860 kr. eða nokkuð yfir 10 þús. kr. leiga á ári.

Samkv. þessu frv., sem hér liggur fyrir, mundi vaxtagreiðslan af þessu 150 þús. kr. láni hækka úr 3000 kr. og upp í 5250 kr. á ári, eða um rösklega 180 kr. á mánuði. Nú eru lánin greidd til byggingarsjóðsins með jafnaðargreiðslu í 42 ár. Mánaðarjafnaðargreiðslan til félagsins með því inniföldu, sem ég taldi upp áðan, hækkar því vegna vaxtahækkunarinnar og annars, sem af því leiðir, um rétt í kringum 200 kr. á mánuði. Það kann að vera, að hv. þm. virðist þetta ekki ýkja há upphæð, en það þýðir, að í staðinn fyrir 860 kr., sem er lágmarksmánaðargreiðsla, yrði hún 1060 kr. á mánuði fyrir íbúðina fyrir utan það, sem maðurinn hefur lagt sjálfur fram. Sé við þetta bætt afborgunum af 50 þús. kr. láni, ef hann tekur einhvern hluta af því að láni, þá bætast þar við nokkur hundruð króna á mánuði, svo að leigan getur þá hækkað upp í 12, 13 eða 14 hundruð kr. eftir því, hvað afborganirnar eru lágar. En við skulum bara miða við, að hann greiði venjulega sparisjóðsvexti af þeim 50 þús. kr., sem vantar á, þegar lánið hjá sjóðnum er tekið, og þá yrði mánaðargreiðslan rétt í kringum 1060 kr., eða rösklega 12700 — nærri 13 þús. kr. — á ári. Eftir þá kaupsamninga, sem nú hafa tekizt, er talið, að meðalkaup Dagsbrúnarmanns muni vera í kringum 3300 kr. eða jafnvel innan við það eða árstekjurnar allar nálægt 39 þús. kr., ef enginn dagur fellur úr. Ef af því á að taka 10—12 þús. kr. til húsaleigu, þá er það milli 25% og 30% af öllum tekjunum, og eru þetta þó langódýrustu lánin, sem nokkurs staðar er völ á.

Ég álit, að eins og nú er háttað hag sjóðsins, sé ekki verjandi að hækka vextina. Þeir, sem njóta lána úr þessum sjóði, eru yfirleitt fólk, sem getur ekki á nokkurn hátt hagnýtt sér þau lánskjör, sem gert er ráð fyrir í frv. ríkisstj. um húsnæðismál, sem liggur fyrir þessu þingi, og mun ég víkja að því síðar.

Ef þetta frv. verður samþ., þá þýðir það, að menn, sem nú ráðast í að eignast íbúðir með aðstoð sjóðsins, fá hækkun á mánaðargreiðslu, sem svarar rétt í kringum 200 kr. Sú kauphækkun, sem Dagsbrúnarmenn fengu í sambandi við samningana síðustu, nemur, að því er talið er, um 300 kr. á mánuði. Með þessari einu lagabreytingu, sem hér er um að ræða, eru aftur teknir af þeim manni, sem lögin taka til, í hækkuðum greiðslum fyrir húsnæði 2/3 af þeirri launahækkun, sem fékkst með samningunum síðast.

Ég sagði áðan, að þó að samþ. verði frv. hæstv. ríkisstj. um húsnæðismálin, þá sé augljóst, að það bætir ekki úr erfiðleikum lágtekjufólks, eignalítils eða eignalauss, til þess að eignast húsnæði. Til þess er upphæð lánanna of lág, lánstíminn of stuttur og vextirnir allt of háir. Það er alveg bersýnilegt, að undir slíkum lánskjörum geta ekki risið nema þeir menn, sem annað hvort hafa nú mjög ríflegar tekjur eða eiga fé sjálfir að leggja fram til að greiða mikinn hluta af íbúðarkostnaðinum. Þess vegna er alveg nauðsynlegt, þó að það frv. verði samþ., að til sé önnur lánsstofnun, sem veiti lán því fólki, sem nauðsyn er á húsnæði, en ekki getur eignazt húsnæði með þeim kjörum, sem áðurnefnt frv. gerir ráð fyrir. Þetta hefur líka hæstv. ríkisstj. bersýnilega verið ljóst, því að í sambandi við meðferð húsnæðismálafrv. í Nd. hefur hæstv. ríkisstj. lýst því yfir, að af lánsfé, sem þar er gert ráð fyrir að aflað verði, skuli leggja að minnsta kosti 24 millj. kr. til byggingarsjóðs sveitanna, sem er aukið starfsfé fyrir hann og lánað út til þess að byggja íbúðir í sveitum. Það er alveg augljóst, að hæstv. ríkisstj. hefur því séð, að úr húsnæðisþörfinni þar var ekki bætt með húsnæðismálafrv.

Nú er enginn efi á því, að þörfin fyrir aðstoð til þeirra kaupstaðarbúa, sem hafa ekki gagn af húsnæðismálafrv. ríkisstj., er enn þá ríkari, ef tekið er tillit til fólksfjöldans og skortsins á íbúðum, heldur en í sveitunum, þannig að fyllsta ástæða væri til að taka ekki jafnháa upphæð, heldur hærri upphæð frá sérstaklega af því fé, sem á að afla samkv. húsnæðismálafrv., og leggja til byggingarsjóðs verkamanna til að hjálpa þeim, sem mesta hafa þörfina og geta ekki notað sér þau lánskjör, sem boðið er upp á í húsnæðismálafrv.

Mig furðar ekki svo ákaflega mikið á því, þó að ýmsir hv. framsóknarmenn, sem telja sig sérstaklega til þess á þing kjörna að gæta hagsmuna þeirra, sem í sveitunum búa, og gefa um það þráfaldlega yfirlýsingar, hafi ekki séð nauðsyn þeirra, sem ætlað er að fá lán úr byggingarsjóði verkamanna, jafnglögglega og nauðsyn hinna, sem ætlazt er til að fái lán úr byggingarsjóði sveitanna. En mig furðar á því, að fulltrúar kaupstaðanna, þ. á m. hv. þm. Seyðf., sem var mjög hneykslaður á ummælum mínum í nál. hér áðan, skuli ekki hafa látið til sín taka í þessu máli. Er nokkur snefill af sanngirni t því að taka 12 millj. af því fé, sem ætlað er til almennra húsnæðisumbóta samkv. frv. stjórnarinnar, til byggingarsjóðs sveitanna án þess um leið að gera nokkra minnstu tilraun, sýna nokkra minnstu viðleitni til þess að tryggja á svipaðan eða hliðstæðan hátt kjör þess fólks, sem býr við alveg sambærilegar ástæður eða enn meiri skort, en á heima í kaupstöðunum? Ég hef leyft mér að kalla það furðulega sljóskyggni hjá hv. fulltrúum stjórnarflokkanna, sem eru þm. kaupstaðanna, að hafa látið sér sjást yfir þetta. Það er ekki til neins að reyna að mæla því í gegn, að með þessu er mismunað stéttunum eftir því, hvort fólkið býr í sveitunum og nýtur aðstoðar byggingarsjóðs sveitanna eða kaupstöðunum og nýtur aðstoðar byggingarsjóðs verkamanna.

Hv. þm. Seyðf. (LJóh), frsm. meiri hl., sagði, að það mundi sýna sig, að hann og hans flokksbræður sýndu áhuga sinn með aðgerðum í því að bæta húsnæðismál lágtekjufólksins í kaupstöðunum. Ég vil vona, að þetta verði sannmæli. (Forseti: Hv. þm. talar um annað mál nú en fyrir liggur.) Þetta er alveg misskilningur hjá forseta. (Forseti: Það er aðeins um vaxtakjör að ræða; ekki heildarlög.) Það er alveg rétt, þetta er einn flötur á stóru máli. — Ég vona, að það sýni sig, áður en þetta mál og húsnæðismálafrv. stjórnarinnar fá fullnaðarafgreiðslu, að hv. þm. sjái sig um hönd og ljái því lið, að ekki minni upphæð en lögð er í byggingarsjóð sveitanna verði tryggð sem lágmark byggingarsjóði verkamanna til sömu framkvæmda.

Að ég drep á þetta, hæstv. forseti, er af því, að ég skal fullkomlega játa það, að ef aukið er starfsfé sjóðsins, byggingarsjóðs verkamanna; á þann veg, sem ég hef drepið hér á, þá er meiri ástæða til þess að athuga, hvort ástæða er til að breyta útlánsvöxtum sjóðsins, vegna þess að þá vex að sjálfsögðu sú upphæð af öðrum tekjum sjóðsins, sem til þess gengur að greiða mismun vaxta á þeim lánum, sem sjóðurinn tekur, og þeim lánum, sem hann veitir. Með því takmarkaða fé, sem sjóðurinn hefur haft yfir að ráða til þessa, hefur þessi vaxtamunur ekki orðið slíkur, að hann hafi hamlað tilfinnanlega þroska sjóðsins. En því meira starfsfé sem sjóðurinn fær til umráða, því meiri yrði þessi vaxtamunur að öðru óbreyttu, og þá gæfi það tilefni einmitt til þess að athuga möguleika á breytingum á útlánsvöxtunum.

Af þessum sökum álít ég, að meðan svo mjög er í tvísýnu um framtíðarstarfsskilyrði byggingarsjóðs verkamanna og hann nær ekki til víðari hóps með starfsemi sína en hann gerir nú, sé ekki nokkur ástæða til þess að breyta vaxtakjörunum. Annað mál væri að athuga það, ef honum er séð fyrir það auknu starfsfé, að hann geti fært stórkostlega út sín verkefni og hjálpað fleiri mönnum en hann getur nú.

Ég legg því til, að frv. verði fellt og að vextirnir haldist óbreyttir eins og þeir hafa verið.