03.05.1955
Efri deild: 78. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 669 í B-deild Alþingistíðinda. (818)
189. mál, íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins mótmæla enn þeirri fullyrðingu hjá hv. 4. þm. Reykv. (HG), að hér sé verið að mismuna tveimur stéttum, annarri, sem býr í sveit og hinni, sem býr í kaupstað eða kauptúnum, þó að látnar séu 12 millj. kr. í byggingarsjóð sveitanna, en á sama tíma sé ekki látið jafnmikið fé í byggingarsjóð verkamanna. Mismunurinn ætti ekki að koma fram í því, hversu mikið er látið í sjóðina út af fyrir sig, því að þar kemur ýmislegt annað til greina. Þar . kemur m.a. fyrst til greina, hversu miklu fé þessir sjóðir hafa yfir að ráða hvor um sig og hve margir aðilar það eru, sem þurfa að sækja lán til að byggja yfir sig í hvorn sjóðinn um sig, og meðan þessar upplýsingar liggja ekki fyrir, þá er ekki hægt að hafa þetta sem mælikvarða. Það, hvað mikið hafi verið hlúð að hvorum sjóðnum um sig að undanförnu, er svo allt annað atriði.
Eini samanburðurinn, sem gera á, er það, hvort bóndinn í sveit fær meira fé með þessum lágu vöxtum en verkamaður í kaupstað, og það hef ég sýnt fram á, að hann fær ekki. Hann fær ekki miklu meira en 1/3 af því fé, sem verkamaðurinn fær í kaupstað eða kauptúni til sams konar byggingar, og það er að mismuna þessum tveimur stéttum á annan veg en hv. 4. þm. Reykv. hefur haldið fram. Það er að ganga á rétt bóndans og halda fram meiri rétti verkamannsins, því að þar fær bóndinn engan veginn eins stóran hlut til sinna þarfa og verkamaðurinn. Ég er þar með ekki að sjá eftir þeim hluta, sem hér um ræðir, til verkamannsins. En ég vil ekki þola það, að því sé jafnframt haldið fram, að það sé verið að níðast á þeim mönnum í þjóðfélaginu, sem miklu betur er gert við en hina, sem minna fá, eins og sýnt hefur verið fram á. — Þetta þótti mér rétt að láta koma skýrt fram hér.
Þá er það alger misskilningur hjá hv. 4. þm. Reykv., að bóndinn geti notað sér eigin vinnukraft, eins og vinnukraftur bóndans sé ekki jafndýr, hvort sem hann notar hann við framleiðslu eða notar hann við að byggja. Það mætti á sama hátt halda því fram, að verkamaðurinn geti notað eigin vinnukraft, ef hann vildi fara úr vinnunni til þess að byggja sér hús og koma ekki nálægt annarri vinnu á meðan.
Sannleikurinn er sá, að verkamaðurinn hefur haft möguleika til þess að loknum átta tíma vinnudegi að leggja mikið af sinni vinnu í að koma sér upp húsnæði, og sá hluti kostnaðarins hefur venjulega dugað til þess að mæta því, sem sjóðurinn lánár ekki, þ.e.a.s. 1/4 hluta af kostnaðarverðinu. Þetta er öllum kunnugt um, sem þekkja þessi mál. En þessa aðstöðu hefur bóndinn ekki, því að ef hann ætlaði sér að hafa þá aðstöðu, yrði hann að vinna enn miklu lengri vinnutíma en nokkrum manni væri fært að vinná, því að afstaða hans til lífsins útheimtir það, að hann getur ekki látið sér nægja neina 8 tíma vinnu við búið á þeim tíma, sem hann þarf að byggja sér hús, heldur verður hann oft að vinna 16–18 tíma og allt upp í 20 tíma á sólarhring til þess að geta lifað á sinni framleiðslu.
Svo vildi ég að síðustu í sambandi við þetta spyrja: Telur virkilega hv. 4. þm. Reykv., að bóndinn, sem hefur ekki meira en 3–4 kýr og 100–150 ær, og með þeim kringumstæðum, sem hann á við að búa í sveit nú, kaupa dýrt vinnuafl, standa undir þungum álögum, m.a. allþungum gjöldum til Tryggingastofnunarinnar og ýmsu öðru í sambandi við hans rekstur, sé betur settur í lífinu en verkamaðurinn, sem á von á eða hefur tryggingu fyrir, ef hann hefur fulla heilsu, að geta haft 8 stunda vinnu með þeim launum, sem nú eru hér? Ég hygg, að ef þetta dæmi yrði gert upp, þá mundi jafnsanngjarn óg greinagóður maður og hv. 4. þm. Reykv. komast að þeirri niðurstöðu, að þau kjör eru engan veginn betri, nema síður sé.
Bóndinn hefur ekki þurft að leita meira til annarra en gert er vegna þess, að hann hefur orðið að hafa miklu lengri vinnudag en verkamaðurinn almennt og neita sér um miklu meiri þægindi en verkamaðurinn almennt, m.a. í húsakynnum, sem eru svo léleg viðast hvar, að það er ekkert sambærilegt við það; sem verkamennirnir búa við í kaupstöðum og kauptúnum.
Auk þess kemur hér eitt enn til greina. Það er vitanlegt, að ef verkamaðurinn getur eitthvað misst af íbúð sinni, sem hann er að byggja fyrir 200 þús. kr., og hann getur áreiðanlega misst stærri hluta af henni en bóndinn getur við sams konar byggingu, ef hann á að uppfylla þau skilyrði, sem hann þarf að uppfylla í sambandi við búskapinn, þá hefur hann þó möguleika til þess að geta aflað tekna fyrir þann hluta, en sá möguleiki er gersamlega útilokaður fyrir sveitabóndann: Hann hefur engan mann, sem vill leigja af honum húsnæði úti á landi og borga fyrir það háa húsa]eigu, eins óg gert er hér í Reykjavík.
Og að síðustu er það alveg sýnilegt, að þegar verkamaðurinn þarf að koma þessari eign í fé, þá hefur hann alla möguleika til þess, á meðan bóndinn hefur engan möguleika til þess að gera það vegna flóttans frá sveitinni í kaupstaðina.
Komist hv. 4. þm. Reykv. að annarri niðurstöðu en ég hef komizt að í þessu máli, þá ætti hann að leggja vinnu í það að fá verkamennina til þess að flytja frá þessum óskaplegu kjörum, sem þeir hafa hér, inn í þessi ágætu kjör, sem þeir hafa í sveitunum.
Þá sagði hv. þm., að það væri á valdi stjórnarvaldanna, hvort sú þjónusta hækkaði eða ekki, sem hér yrði í té látin, eftir að verðlagið í landinu hefur allt hækkað, og sagði enn fremur, að ef rétt væri reiknuð út vísítala, þá kæmi þetta fram í hækkandi vísitölu í landinu og hækkandi kaupgjaldi fólksins. Þetta er alveg rétt, að það kemur fram í því. En er það bót fyrir fólkið? Er það bót fyrir fólkið, að launin hækki þannig annan daginn, þjónustan og það, sem það þarf að kaupa, hinn daginn, og hvar endar sú hringrás? Við, sem höfum verið hér á þingi og höfum verið að glíma við þetta, höfum séð, að það hefur sannarlega ekki verið stéttunum til blessunar, að þessu hefur verið haldið áfram.
Mælikvarðinn fyrir kaupþoll verður vitanlega alltaf útflutningsverðmætið, hann getur aldrei orðið neitt annað. Ef kaupgjaldið í einu landi er meira en útflutningsverðmætið á hverjum tíma, þá verður mismunurinn að leggjast á bak þeirra þegna, sem eru í landinu sjálfu. Það er hægt að þola það um stund, ef til er nóg fjármagn. Ef ekki er til nóg fjármagn, þá vitanlega stöðvast þetta, nema því aðeins að smækka gjaldeyrinn. Þetta er öllum mönnum ljóst, og þarf ekki að eyða miklum tíma til að ræða það hér.
Ég vil svo aðeins að síðustu taka það fram að gefnu tilefni, að hér er ekki um neinn reiðilestur að ræða frá minni hálfu. Hér er aðeins um að ræða rök í máli, sem er eitt af stærstu málum þjóðarinnar, og mótmæli gegn fölskum rökum, sem haldið hefur verið frem af hv. þm. hér í þessu máli.