03.05.1955
Efri deild: 78. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í B-deild Alþingistíðinda. (819)
189. mál, íbúðarhúsabyggingar í kaupstöðum og kauptúnum
Frsm. minni hl. (Haraldur Guðmundsson) :
Herra forseti. Mér þykir nú hugmyndaflug hv. þm. Barð. í mesta lagi. Hann virðist halda því fram nú í sinni seinustu ræðu, að ég hafi talið, að lífskjör bænda væru allt of góð, og að ég væri að telja eftir það framlag, sem lofað hefur verið til byggingarsjóðs sveitanna, en þetta er hvort tveggja hinn mesti misskilningur, að ég ekki segi helber skáldskapur. Ég hef á engan hátt talið þetta eftir. Ég vil fullkomlega taka undir það, að lífskjör bænda, sem hafa 3–4 kýr og 100 ær og þurfa að kaupa mikinn aðkeyptan vinnukraft, — jafnvel þó að þeir þurfi þess nú ekki, en hv. þm. orðaði það nú svo, — hljóta að vera ákaflega bágborin og jafnvei kannske lakari en ýmissa verkamanna. Ég hef heldur á engan hátt talið eftir, þó að starfsfé byggingarsjóðs sveitanna yrði aukið. Hitt hef ég sagt, að það er ekki víðsýni eða sanngirni, sem hv. þm. taldi nú höfuðeiginleika Sjálfstfl., um leið og þessum sjóði eru lagðar 24 millj. kr. í auknu starfsfé, að koma með engar till. um að auka starfsfé byggingarsjóðs verkamanna og kolfella till. um að auka starfsfé hans um sömu upphæð, og það er það, sem verið er að ræða um hér í sambandi við vaxtabreytinguna, sem er óhjákvæmilega bundin við það, hversu miklu starfsfé sjóðurinn hefur að ráða yfir. — Þetta er það, sem um er að ræða hér.
Í raun og veru fæ ég ekki betur séð en að hv. þm. hafi verið að skopast mjög að sínum flokki, þegar hann talaði um víðsýni hans og sanngirni, því að það getur engum manni blandazt um það hugur, að það er bein misbeiting valdsins og misræmi í jöfnuðinum á milli stéttanna, þegar öðrum þessara tveggja sjóða er séð fyrir svo verulegri fjárfúlgu sem nú hefur verið lofað, en hinum neitað með öllu um tilsvarandi aukningu. Það veit hver maður, sem lokar ekki augunum fyrir staðreyndum, að ástandið í húsnæðismálum lágtekjufólks í stærri bæjunum er sízt betra, í sumum tilfellum verra, heldur en þar sem það er lakast í sveitunum, og það er miklu fleira fólk, sem um er að ræða þarna í húsnæðishraki en jafnvel í sveitunum. Þetta veit hver maður.
Ég skal nú ekki tefja tímann með því að fara að ræða hér um samningana síðustu eða áhrif þeirra á fjármála- og atvinnulífið í landinu. Mér skilst, að hv. þm. teldi, að einmitt með þeim væri stefnt inn á háskalega braut. Ég skildi orð hans svo. Það er eins og mig minni, að ég hafi séð það í Morgunblaðinu, að þessir samningar, sem komizt hafa á, hafi verið gerðir að miklu leyti fyrir tilstilli hæstv. ríkisstj. og að henni sé þar í þessu ágæta blaði þakkað fyrir það, hversu vel hún gekk fram í þessu, hversu sanngjarnlega hún miðlaði málum og hversu tiltölulega sæmilega lausn hún fékk að lökum.
Ég verð að segja, að ef álit hv. þm. er það, sem fram kom í hans ræðu hér, á niðurstöðunni af afskiptum ríkisstj. af því máli, þá fæ ég ekki séð, að hans traust á hæstv. ríkisstj. geti verið mikið til frambúðar. Hún átti vissulega ríkan þátt í því, að þetta samkomulag náðist, að brúa það bil, sem var á milli atvinnurekenda og verkamanna, og telur sig með því hafa unnið, að því er mér er sagt, eftir atvikum gott verk. Hitt blandast engum hugur um, að ríkisstj. með þeirri aðstöðu, sem hún hefur, getur ráðið ákaflega miklu um það, hvernig verðlagsþróunin verður í landinu. Hún getur það óbeint með áhrifum sínum, og hún getur beitt löggjafarvaldinu, ef hún beitir sér fyrir því, til þess að aðstoða sig í þessu efni. Ef hún óttast, að verðþróunin verði í þá átt, að til nýrrar gengislækkunar komi, þá ber henni að sjálfsögðu, svo framarlega sem hún ekki telur gengislækkun æskilega og bjargráð, að spyrna á móti því með þeim aðgerðum, sem henni er fært að inna af hendi.
Ég held því, að ádeilum sínum á niðurstöður eða úrslit vinnudeilunnar eigi hv. þm. að beina ekki síður til hæstv. ríkisstj. og sinna eigin flokksmanna en til verkalýðsfélaganna og þeirrar forustu, sem þau veittu sínum mönnum í kaupgjaldsbaráttunni.