18.02.1955
Neðri deild: 49. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í B-deild Alþingistíðinda. (873)

94. mál, iðnskólar

Frsm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Hv. þm. V-Húnv. gat um stjfrv., sem lagt hefur verið fyrir Ed., um greiðslu kostnaðar við skóla, sem reknir eru sameiginlega af ríki og sveitarfélögum, og taldi eðlilegt, að tekin væru sams konar eða svipuð ákvæði og í því frv. eru inn í frv. um iðnskóla. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar, að rétt sé að hafa iðnskólafrumvarpið áð þessu leyti í samræmi við önnur skólalög. Hins vegar mætti svo, þegar stjfrv. kemur til nánari athugunar, ræða um það, hvort ekki ætti að láta það einnig ná til iðnskólanna. En í megindráttum er þetta þannig, að í skólalögunum sjálfum er ákveðið um hlutfallið milli ríkissjóðs og annarra aðila, hvort ríkissjóður á að borga helming eða 3/4 af stofnkostnaði, en í skólalögunum er hins vegar ekki kveðið á nm greiðslutilhögunina, hvenær á að greiða þetta af hendi. Stjfrv. nýja, sem ég gat um, fjallar hins vegar um það almennt, hvernig eigi að inna af höndum þessar greiðslur. Það frv. tekur að vísu aðeins til barnaskóla, gagnfræðastigsskóla og húsmæðraskóla, en ég teldi sem sagt rétt, a.m.k. ef frv. um iðnskóla, sem hér liggur fyrir, verður að lögum, að þá séu iðnskólarnir einnig teknir inn í þetta nýja stjfrv., og teldi það eðlilegasta málsmeðferð.