01.03.1955
Neðri deild: 54. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 709 í B-deild Alþingistíðinda. (881)
94. mál, iðnskólar
Frsm. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forsetl. Iðnn. þessarar hv. d. flytur þrjár brtt. við frv. á þskj. 408.
1. brtt. er við 1. gr., og er hún til samræmis við till. mþn. í skólamálum, sem á sínum tíma samdi frv. til laga um iðnskóla. Nú segir í frv., eins og það liggur fyrir: „Iðnskólar veita fræðslu þeim nemendum, sem iðnmeistarar eða iðnfyrirtæki hafa tekið til náms samkvæmt lögum um iðnfræðslu.“ Till. nefndarinnar er, að hér bætist við: „og þeim, sem nema vilja iðn til sveinsprófs í vinnustöðvum, er skólarnir hafa ráð á.“ Eins og ég gat um, þá var þetta ákvæði, sem nú er lagt til að bæta inn, í till. skólamálanefndarinnar, og leggur iðnn: nú til, að þessu sé bætt við.
2. brtt. n. er við 7. gr. Þar er sagt frá því, hvernig stofna eigi til iðnskólahalds. Í 1. og 2. tölulið er gert ráð fyrir, að stofna megi sjálfstæða iðnskóla því aðeins að tala nemenda sé 60 eða fleiri. Séu nemendur hins vegar færri en 60, skuli iðnskólinn vera sérstök deild innan gagnfræðaskóla. Við umræður innan n. og viðræður við kunnuga menn á þessum sviðum hefur n. komizt að þeirri niðurstöðu, að rétt sé að hafa þetta í heimildarformi, en ekki eins fortakslaust og í frv. segir, þannig að 1. liður yrði svo hljóðandi: „Stofna má sjálfstæða iðnskóla“, en 2. liður, að „þegar nemendur eru færri en 60, er ráðh. helmilt að ákveða, að iðnskólinn skuli vera sérstök deild innan gagnfræðaskóla“.
Eftir ákvæðum frv., eins og þau liggja fyrir, mundi ekki heimilt að stofna iðnskóla nema í Reykjavík og á Akureyri. Á öllum öðrum stöðum, þar sem iðnskólar hafa verið starfandi eða til mála kemur að stofna þá, væri því skylt að hafa iðnskólana sem sérstaka deild í gagnfræðaskóla. Nú má vera, að betur hendi og ástæða sé til á sumum þessara staða að hafa sjálfstæða iðnskóla, og er ætlun nefndarinnar, að þetta sé heimilt, — ákvæðin séu í heimildarformi og sé því í höndum ráðh. að ákveða, hvorn háttinn skuli á hafa, ef nemendur eru færri en 60.
Þá er 3. brtt., við 17. gr., um gildistöku laganna. N. telur rétt að miða við upphaf næsta skólaárs og leggur því til, að lögin öðlist ekki þegar gildi, eins og segir nú í gr., heldur 1. okt. 1955.
Ég vænti þess, að hv. deildarmenn fallist á þessar brtt. og afgr. frv. þannig áfram.