03.05.1955
Efri deild: 78. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í B-deild Alþingistíðinda. (920)

94. mál, iðnskólar

Forseti (BSt):

Hv. frsm. óskar úrskurðar um það, hvort brtt. á þskj. 712 megi berast undir atkv., þar sem sams konar ákvæði hafi verið felld áður hér í hv. deild.

Þessi ákvæði, sem í till. eru, hafa aldrei verið felld sérstaklega, heldur voru svipuð ákvæði í brtt., sem fjallaði um margt fleira. Þar af leiðandi tel ég, að till. geti borizt undir atkvæði, og verður svo gert.