29.04.1955
Neðri deild: 81. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 798 í B-deild Alþingistíðinda. (936)

191. mál, Ræktunarsjóður Íslands

Frsm. 1. minni hl. (Karl Guðjónsson):

Herra forseti. Frv. þetta gerir ráð fyrir því, að útlánsvextir ræktunarsjóðs séu hækkaðir úr 21/2% í 4%.

Ef litið er á það, hvert hlutverk ræktunarsjóðs er, liggur það í augum uppi, að það er mjög örlagaríkt spor, sem hér á að stíga, að hækka útlánsvexti þessa sjóðs. Við búum í viðlendu og lítt ræktuðu landi, en hlutverk þessa sjóðs á að vera það að stuðla að ræktun landsins og afkomu þess fólks, sem leggur vinnu sína í það að rækta okkar land.

Löggjöfin um vexti sjóðsins var samin fyrir atbeina nýsköpunarstj., og vegna þessarar löggjafar hefur komizt verulegur skriður á ræktunarmál Íslendinga. Nýbyggðir hafa risið upp, og þetta hefur fært að vissu marki töluvert líf í íslenzkan landbúnað. Þess vegna er mér það mikil ráðgáta, hvernig þeir fulltrúar á Alþ., sem telja sig fyrst og fremst vera fulltrúa bændastéttarinnar, geta með köldu blóði lagt til, að svona vaxtahækkun sé samþ. Ég hef að vísu hlýtt á rök hv. frsm. meiri hl. fjhn., þm. V-Húnv. (SkG), þar sem hann heldur því fram, að þessi vaxtahækkun geri búreksturinn ekki erfiðari, heldur þvert á móti, og hans rök eru þau, að enn þá verra mundi vera, ef sjóður þessi eyddist upp í vaxtatap.

Nú get ég að sjálfsögðu fallizt á það, að það má ekki ske, að ræktunarsjóður eyðist upp og verði að engu fyrir vaxtatöp. En ég sé alls ekki, að af hálfu ríkisstj., sem flytur þetta frv., hafi verið gerð gangskör að því að finna aðrar leiðir til þess, að sjóðurinn geti starfað og sinnt sínu hlutverki.

Ég vil benda á það, að í grg. með frv. liggur að vísu fyrir útreikningur á því, að sjóðurinn ber þegar nokkurt vaxtatap, og líkur eru til þess, að það vaxtatap fari hækkandi, eftir því sem sjóðurinn kann að þurfa að taka meira af lánum. En það er fleira, sem þarf að reikna út í sambandi við afgreiðslu þessa máls. Það þarf að reikna út, hvaða vexti þeir geta borið, sem taka lán úr sjóðnum. Sá meiri hl. hv. fjhn., sem mælir með afgreiðslu þessa frv., er skipaður þannig, að í honum eru tveir bændur og einn bankastjóri. Nú er það út af fyrir sig ekki nema tiltölulega skiljanlegt mál, að bankastjóri, sem eyðir sínum lífdögum í að fylgjast með talnadálkum og reikna út tap og gróða af vöxtum, finni út, að einfaldasta ráðið sé að hækka útlánsvexti sjóðsins, en það er ekki jafnauðvelt að sjá, í hverju það liggur, að bændurnir í n. skuli kingja þessu bankasjónarmiði án þess að gera nokkra tilraun til þess að leita annarra og raunhæfari ráða til þess að koma landbúnaðinum að haldi.

Ég skal benda á það, að einmitt þessir sömu hv. þm. og bændur sem hér eiga hlut að máli, þm. Húnv., hafa tekið þátt í því nú síðast hér áðan fyrir fáum mínútum að samþ., að hlutafélag eitt, sem á s.l. ári hafði 12 millj. kr. gróða á sínum reikningum, eftir að það var búið að draga af sínum tekjum og afskrifa eins og lög frekast leyfa, skyldi vera undanþegið skattgreiðslum. Það virðist nú ekki liggja langt undan að láta sér detta í hug, að það væri hægt að láta slíkt félag borga eðlilegan skatt til ríkissjóðs og að ríkissjóður greiddi síðan nokkuð aukið framlag til dæmis til ræktunarsjóðs, til þess að sá sjóður þurfi ekki að gufa upp í vaxtatöpum. Þetta virðast hv. samnefndarmenn mínir ekki hafa komið auga á.

Ég vil einnig benda á, að þeir eru einnig nýbúnir í þessari hv. d. að taka þátt í lagasetningu um það, að gróðafélögum landsins sé yfirleitt gefinn 20% afsláttur af skatti. Það þarf nú ekki heldur ákaflega mikið ímyndunarafl til þess að láta sér detta í hug, að hægt hefði verið að skatta þessi félög eftir skattalögum, gera ekki frávík frá skattalögum þeim til hagræðis, heldur nota þann skatt, sem þeim verður nú gefinn eftir, til þess að ræktun landsins geti gengið greiðlega. En þessir hv. bændafulltrúar virðast ekki hafa komið auga á þessa möguleika né heldur neina aðra, sem ég þó ekki dreg í efa að hljóti að vera margir og margvíslegir, og vilja nú ganga að því að hækka útlánsvexti ræktunarsjóðs. Á þetta höfum við tveir nm. ekki getað fallizt.

Við hv. 1. landsk. (GÞG) höfum lagt til, að frv. í þeirri mynd, sem það nú liggur fyrir, verði fellt. Við leggjum sem sagt til, að Alþ. reyni nú að koma vitinu fyrir þá, sem annars hefðu reyndar átt að hafa vit fyrir sér sjálfir, um það að traðka ekki þannig á lífsmöguleikum

bændastéttarinnar og standa ekki þannig í vegi fyrir ræktun íslenzks lands eins og þeir eru að gera með framferði sínu í þessu máli og stuðningi sínum við vaxtahækkun ræktunarsjóðs.

Hv. 11. landsk. þm. (LJós) hefur borið fram brtt. við þetta frv., sem gerbreytir efni þess og mundi, ef samþ. yrði, koma í veg fyrir vaxtahækkun á útlánsvöxtum ræktunarsjóðs, en sjá sjóðnum hins vegar fyrir fé til þess að mæta vaxtatöpum með auknu framlagi úr ríkissjóði. Í þessari brtt. á þskj. 641 er lagt til, að framlag ríkisins til ræktunarsjóðs verði hækkað úr millj. í 11/2 millj. Þessari till. er ég algerlega samþykkur og sé ekki annað en að sá ríkissjóður, sem hefur efni á því að gefa eftir hluta af skatti helztu gróðafélaga landsins, hefur efni á því að láta félag eins og Eimskipafélag Íslands vera undanþegið skatti, geti vel þolað slíka aukna fjárveitingu til ræktunarsjóðs.

Ég vil einnig benda á það, að ríkissjóður hefur að undanförnu komið út með allverulegan greiðsluafgang. Samt sem áður virðist það ekki vera ríkjandi skoðun hjá þeim, sem að þessu frv. standa, að neitt af gróða ríkisins megi fara til þess að efla þann sjóð, sem þetta frv. er um, Ræktunarsjóð Íslands.

Ég vil að lokum taka fram, að ég er samþykkur og mun greiða atkv. með brtt. hv. 11. landsk. þm., en náist ekki fram breytingar á frv. frá því, sem það nú er, hef ég lagt til, að það verði fellt.