29.04.1955
Neðri deild: 81. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 800 í B-deild Alþingistíðinda. (937)
191. mál, Ræktunarsjóður Íslands
Landbrh. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Það hafa verið til meðferðar hér í hv. d. þrjú frv. hliðstæð. Það er það frv., sem hér liggur fyrir til umr., um breyt. á l. um Ræktunarsjóð Íslands, hreyt. á l. um verkamannabústaði eða verkamannabústaðasjóði og breyt. á l. um landnám og nýbyggðir. Öll eru þessi frv., eins og ég tók hér fram við 1. umr. þeirra, samhljóða um það, að hækkaðir eru nokkuð vextir af lánum þeirra sjóða, sem þarna eiga hlut að máli. Tvö þessi frv. munu nú vera komin til Ed. og vera til meðferðar þar, og þetta er siðasta frv., sem fer hér út úr hv. Nd. Ég hef ekki tekið þátt í umr. um hin frv., en tel rétt að segja hér aðeins örfá orð um þetta frv., um leið og það fer hér út úr d., en það, sem ég í raun og veru segi um þetta frv., gildir jafnt um hin tvö frv.
Ég skal taka fram, að ég er meiri hl. fjhn. þakklátur fyrir afgreiðslu hans á frv. þessum og tel það nál., sem meiri hl. fjhn. hefur birt á þskj. 623, vera svo glögg rök í þessu máli, að við það þurfi á engan hátt að bæta, auk þess sem framsöguræða hv. frsm. fjhn., þm. V-Húnv. (SkG), skýrði þetta enn betur áðan.
Ég ætti náttúrlega að vera þakklátur sem landbrh. þeim hv. þm., sem hér hafa talað, 1. landsk. þm. (GÞG) og 9. landsk þm. (KGuðj), fyrir þeirra miklu umhyggju fyrir velferð landbúnaðarins og allt, er það snertir. Það lá við, að a.m.k. í ummælum hv. 9. landsk. kæmi fram klökkvi — ég veit ekki, hvort hann hefur beint tárazt, ég held, að það hafi jafnvel nálgazt það — yfir því, hve við, t.d. ég sem landbrh. og aðrir fulltrúar sveitakjördæma, værum slæmir og illir og nú værum við að svíkja, eins og ég held að hann hafi orðað það eða gefið a. m. k. mjög rækilega í skyn, sveitabúa. (Gripið fram í.) Nei, ég segi það ekki, en gefið það í skyn; það er ekki of mikið sagt. Ég býst nú kannske ekki við, að þessir góðu þm., sem ég met mikils báða tvo eins og alla hv. þm., væru svo mjög óánægðir yfir því, ef þeir héldu, að við værum hér að gera eitthvert herhlaup á sveitirnar og ætluðum að eyðileggja aðstöðu þeirra, sem byggð hefur verið upp á undanförnum árum.
Það var nú að öllu leyti óþarft fyrir hv. 9. landsk. að tala um það, að ræktunarsjóður hefði eiginlega fyrst orðið til á dögum nýsköpunarstjórnarinnar, vegna þess að hv. frsm. meiri hl. fjhn. hafði lýst því réttilega áður, að þessi sjóður er jafngamall og öldin okkar er gömul nú í dag. En á honum hafa verið gerðar breytingar oft, og það er rétt, að það voru gerðar breytingar og það mikilvægar breytingar á lögum ræktunarsjóðs 1947, og skal ég ekkert úr því draga, að þar hafi verið byggt ofan á þá undirstöðu, sem áður var búið að gera um að byggja upp þessa lánsstofnun. En það hafa verið mjög breytileg vaxtakjör í þessari lánsstofnun frá upphafi eins og gefur að skilja. Ég leyfi mér að leggja áherzlu á það sama og hv. frsm. meiri hl. fjhn. gerði, að það, sem sveitamönnunum, bændum landsins, ræktunarmönnunum, ríður mest á, er, að þeir geti fengið fé til þess að leggja í nauðsynlegar ræktunarframkvæmdir, í nauðsynlegar byggingar og annað slíkt. Vitanlega er gott og ágætt, að slíkt fé sé sem vaxtalægst. En ef um það er að ræða, að hægt sé að fá nokkru hærri upphæð til slíkra framkvæmda með eitthvað hærri vöxtum frekar en lægri upphæð með lægri vöxtum, þá þori ég að fullyrða fyrir hönd bændastéttar landsins og ég skal mæta þar hverjum sem er og hvar sem er, að bændur væru fljótir að velja um, hvort þeir vildu heldur. Þeir vilja hærri upphæðina, þó að vextirnir séu eitthvað hærri.
Það er auðfundið, að þessir hv. þm., sem hér hafa talað áður um þessi mál og tekið að sér málstað bændastéttarinnar og talið, að hér væri verið að vega að henni með einhverjum ráðum, eru að einhverju leyti utanveltu við það líf, sem lifað er í sveitunum. Kemur mér það í raun og veru ekki á óvart, og ég segi það ekki á neinn hátt til þess að hallmæla þeim. Hver maður er i sínu umhverfi og hlýtur að meta hlutina fyrst og fremst eftir því. En mér fannst, að þau ákveðnu ummæli, sem hv. 9. landsk. hafði um það, hvað þetta væri fráleitt og til trafala fyrir áframhaldandi framkvæmdir í sveitum, væri gott sýnishorn af því, hve illa hann þekkti til innan landbúnaðarins hvað þetta atriði snerti. Það var eins og það hefði komið honum alveg á óvart, að fulltrúar landbúnaðarins gætu sætt sig við þetta, sem fljótt á litið getur litið út þannig, að þarna sé verið að þrengja kjör bændastéttarinnar um lánsmöguleika og lánskjör. En ég vil aðeins taka fram, að ég hef alltaf í mínu starfi, frá því að ég hóf pólitíska starfsemi, leitazt við, eftir því sem mín litla skynsemi hefur leyft, að fylgja hverju máli eftir því, sem ég hef talið að bezt mundi henta þeim umbjóðendum, sem ég er umboðsmaður fyrir hér á Alþ., og það hef ég gert einnig í þessu máli. Ég mun ábyggilega gera þeim grein fyrir því, hvers vegna ég hef borið þetta mál hér fram á Alþ. og hvers vegna ég tel það rétt og sjálfsagt og hvers vegna það muni verða bændastéttinni bezt að taka við því eins og það nú er og fylgja því eftir. (Gripið fram í.) Hvað segir hv. þm.? (Gripið fram í: Ég sagði, að það væri þá sýnilega bezt fyrir bændur að beygja sig.) Það er ekki að beygja sig. Þetta er gert í samráði við bændastéttina, eins og hv. þm. mun áreiðanlega reka sig á síðar meir. Hún mun skilja það, hvað liggur til grundvallar fyrir því, sem hér er verið að gera.
Það voru aðeins þessi atriði, sem ég vildi leyfa mér að taka hér fram, um leið og þetta síðasta frv. af þessum þremur fer út úr deildinni, um leið og ég vil leyfa mér að þakka aftur hv. meiri hl. fjhn. fyrir hans afgreiðslu og sömuleiðis, ef ég væri alveg viss um, að það væri mælt af heilum huga, þann áhuga, sem ég hef orðið var við frá öðrum hv. þm. um það að samþykkja ekki frv. eins og það liggur fyrir.