29.04.1955
Neðri deild: 81. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 808 í B-deild Alþingistíðinda. (941)

191. mál, Ræktunarsjóður Íslands

Frsm. 1. minni hl. (Karl Guðjónsson):

Herra forseti. Við höfum nú hlýtt á allmargar ræður um málið, og ég vil þakka m.a. mínum hv. andstæðingum í málinn fyrir það, að þeir hafa rætt hér málið og lagt fram það, sem þeir telja rök, enda þótt ég geti ekki á það allt fallizt. En það er í alla staði gagnlegt að fá umræður í öllu bróðerni um eðli máls sem þessa.

Ég skal aðeins víkja að ummælum hæstv. landbrh. um málið, að því leyti sem hann telur, að þessar breytingar séu lagðar til hér í samráði við bændastéttina. Þetta leyfi ég mér að draga í efa. Það hlýtur a.m.k. að vera ákaflega lauslegt samráð, sem við bændastéttina hefur verið haft um þetta, og þætti mér æskilegt, að ráðherra skýrði nánar frá því, með hverjum hætti það samráð hefur verið. Annars er vist hæstv. ráðh. farinn héðan úr d., en mér hefði þótt mjög æskilegt, ef tök hefðu verið á því, að við alþm. fengjum að heyra það, með hverjum hætti slíkt samráð við bændastéttina er haft. Er þetta rætt á almennum bændafundum úti um sveitir? Eða hefur hæstv. landbrh. talað við einhverja sína flokksmenn og framámenn í sínu kjördæmi um þetta og telur það vera fulltrúa bændastéttarinnar? Ég get líka aðeins að því víkið, að hann dregur í efa, að við hv. 1. landsk. þm. höfum nema mjög takmarkað samband við bændastéttina. Þetta er alveg rétt hjá honum. En þó geri ég ráð fyrir því, að svo sé komið málum, að okkar samband við bændastéttina sé nú kannske ekki öllu minna en hans. Þar af leiðandi verð ég að láta í ljós þá skoðun mína, að það sé alls ekki einhlítt, sem hann heldur fram, að slíkt frv. sé borið fram í samráði við bændastéttina. Að svo miklu leyti sem mín takmörkuðu sambönd við bændastéttina gefa mér hugmyndir um, þá mun slíkt samráð ekki hafa verið haft við hana og efni frv. vera í andstöðu við það, sem er álit bænda.

Bæði hæstv. landbrh. og einnig hv. þm. A-Húnv. viku hér mjög að því, að í nál. hv. meiri hl. fjhn. væru færð svo ýtarleg rök fyrir því, að nauðsyn væri á að samþykkja þetta frv., að fleiri orð þyrfti ekki þar um. Það er einmitt þetta, sem ég kom að í minni fyrri ræðu, að þeir hafa fært að vissu marki rök fyrir því, að þetta sé nauðsynlegt, þ.e.a.s., þeir hafa fært þau rök, sem eru sjónarmið lánsstofnunar, bankasjónarmið. Ég gat mér þess líka til, að það væri ekki ólíklegt, að þessi sjónarmið væru ekki runnin frá bændafulltrúunum í nefndinni, heldur frá bankastjóra þeim, sem í n. á sæti. Ég hefði talið miklu eðlilegra, að bændafulltrúarnir hefðu lagt fram allt önnur rök í málinu, þeir hefðu gert útreikninga á því, hvað kostar að rækta svo eða svo marga hektara lands, hvað viðkomandi bóndi þarf mikið fé til þess að gera það, hvað hann fær mikinn afrakstur af landinu og hvað hann er efnahagslega maður til að standa undir miklum vöxtum af sínum lánum. Ekkert af þessu kemur fram í nál. hv. meiri hl. fjhn. Mér þætti ekki ólíklegt, að hefðu bændafulltrúarnir í n. gert slíkan útreikning, þá hefðu þeir getað sýnt sinni virðulegu ríkisstjórn, sem ber fram þetta frv., fram á það, að hér væri um að ræða hærri vexti en hægt væri að greiða af ræktun á Íslandi. Og hefðu þeir nú gert þetta og ekki látið ánetjast af bankasjónarmiðunum, heldur haldið sínum bændasjónarmiðum, þá tel ég ekkert líklegra en að sú hæstv. ríkisstj., sem þetta frv. flytur, hefði orðið að beygja sig fyrir þeim rökum og leita annarra ráða, til þess að ræktunarsjóður gæti haldið áfram eðlilegri starfsemi sinni, heldur en þeirra að hækka útlánsvexti sjóðsins. (Gripið fram í.) Það gleður mig, að ráðh. skuli ekki vera alveg áhugalausir um málið, og það er sannast að segja ekki svo lítils virði fyrir okkur hér, óbrotna þm. í d., að heyra þann tón úr ráðherrastólum, að það mundi e.t.v. verða tekið eitthvert tillit til þess, ef við færðum fram töluleg rök fyrir okkar máli. En þetta er hins vegar alveg nýtt sjónarmið, því að hingað til höfum við átt því að venjast, að hversu glöggar tölur og hversu skýr rök sem við höfum fært fram fyrir okkar máli, þá hefur ríkisstjórn Íslands blásið á það og ekki talið sér að skyldara að fara eftir því, þótt sannað væri. Ég fagna því sem sagt, ef hæstv. forsrh. tekur framvegis upp þau vinnubrögð að meta rök, einnig þótt þau komi frá stjórnarandstöðunni. Ég skal játa það, að stundum spörum við okkur — a.m.k. ég, og ég geri ráð fyrir, að gegni svipuðu máli um ýmsa fleiri í stjórnarandstöðunni — e.t.v. um of að leggja vinnu í að gera útreikninga um hluti, sem við höfum hingað til getað talið nokkurn veginn vist að ekki yrði á hlýtt af hv. stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar, þó að lagðir væru fram. Verði reynslan hins vegar önnur í framtíðinni, þá vil ég fyrir mína hönd heita því, að ég mun leggja meiri vinnu í það en ég hef hingað til gert að leggja fram þau rök, sem t.d. hefði verið eðlilegt að í þessu máli væri gert. Ég vil hins vegar leiðrétta þann misskilning hæstv. forsrh., að ég telji mig hafa betri sambönd við bændur en t.d. landbrh., en ég hef dregið í efa, að hans sambönd séu betri, og á því er nokkur eðlismunur.

Ég vil einnig koma að því, sem hæstv. landbrh. og hv. þm. V-Húnv. héldu fram eða létu a.m.k. í skína, að það væri nokkuð í efa dragandi, hver heilindi lægju á bak við það, sem við 1. landsk., sem skipum minni hl. í þessu máli, höfum sagt. Ég skal heita þessum hæstv. ráðh. og þessum hv. þm. því, að því er snertir atvinnuvegi Íslendinga, þá sem eru undirstaða okkar þjóðfélags, að framkoma mín gagnvart þeim muni ekki verða sú, að þeir hafi neina ástæðu til þess að draga í efa heilindi mín við það, að þeir atvinnuvegir verði studdir með ráðum og dáðum. Og af þeirri meginröksemd eru þær ályktanir, sem ég hef dregið um þetta frv., fram komnar. Ég leyfi mér þar á móti að halda því fram, að hv. meiri hl. fjhn. og hæstv. landbrh. hafi nokkuð glapizt af réttri leið í þessum efnum. Ég hef ekki haldið því fram, að þeir hafi framið svík við bændastéttina; þeir hafa að vísu haft frammi hugleiðingar um það héðan úr ræðustóli, en það eru sjálfsagt fremur raddir þeirra eigin samvizku en mín orð. Hins vegar vil ég benda þeim á það, án þess að það þurfi að teljast svík að yfirlögðu ráði, að hugsazt gæti, að þeir hefðu velt öllu meira fyrir sér og fært öllu hærra til reiknings sjónarmið annarra aðila en bænda í þessum málum, og það þykist ég hafa bent hér á, að í þeirra röksemdum gæti meira bankaútreiknings á því, hvað séu hæfilegir vextir, heldur en að þeir hafi gert sjónarmið bænda og möguleika bændastéttarinnar til ræktunar að sínum sjónarmiðum og lagt þau til grundvallar sínum útreikningum.

Hv. frsm. meiri hl., þm. V-Húnv., hefur nokkuð gert að umtalsefni það, sem ég sagði hér um skattgreiðslu Eimskipafélagsins og eftirgjöf af skatti félaga í sambandi við þetta mál, þar sem ég hélt því fram, að hugsanlegt hefði verið að nota eitthvað af því fé, sem ríkissjóður hefði fengið, hefði hann ekki undanþegið Eimskipafélagið skatti og hefði hann ekki gefið 20% afslátt af skatti félaga í ár, til þess að greiða upp vaxtatöp ræktunarsjóðs. Í þessu sambandi finnst honum, að við stjórnarandstæðingar gerum stundum margar till. um að ráðstafa sömu krónunni.

Þetta getur vel verið rétt hjá honum. En það er á engan hátt óeðlilegt, að við gerum till. um, að fé ríkissjóðs sé varið á þennan hátt í dag, og þegar stjórnarliðið er búið að fella að gera þetta, þá getum við gert aðrar till. um ráðstöfun á fé ríkisins. Það er þess vegna ekki alveg áfellislaust að flytja mál sitt á þann hátt, sem hv. frsm. gerði. Það er ekkert slæmt við það eða óeðlilegt, þótt gerðar séu margar till. um ráðstafanir á sama fé, þegar hin fyrri till. hefur verið felld, áður en hin síðari kemur fram, og þannig er ekki óhugsandi, að við gerum till. um að ráðstafa fé á einn hátt í dag og á annan hátt á morgun. En hitt held ég að hv. fylgjendur ríkisstj. þurfi ekki að saka okkur um, að við raunverulega leggjum til, að sömu krónunni sé varið til tveggja hluta.

Í sambandi við það, sem hv. frsm. meiri hl. sagði um nýsköpunarstjórnina og vaxtakjör í ræktunarsjóði, þá er það rétt hjá honum, að í tíð nýsköpunarstjórnarinnar voru vextirnir nokkru hærri en þeir nú eru samkv. lögum, en

það var sá arfur, sem nýsköpunarstjórnin tók við af þeirri stjórn, sem á undan henni sat, og raunar ekki þeirri, er síðast sat á undan henni, — en sem sagt, sá arfur um hærri vexti í sjóðnum er kominn frá stjórnartíð flokksmanna þessa hv. þm. Það má ef til vill segja, að nýsköpunarstj. hefði átt að vera dálítið viðbragðsfljótari um að reyna að leiðrétta þau vaxtakjör og lækka þau til hagræðis fyrir bændur landsins. En það var nú svo, að hún var ekki búin að koma þeirri löggjöf í kring á sínum fáu árum, en sú löggjöf tók hins vegar gildi sama árið og nýsköpunarstjórnin lagði niður völd. Ég leyfi mér þess vegna að halda virðingu minni fyrir nýsköpunarstjórninni gersamlega óskertri þrátt fyrir þau ummæli, sem hv. frsm. meiri hl. hefur viðhaft í þessu máli, og bendi honum á, að einmitt hans ummæli gætu verið nokkurt umhugsunarefni í hans flokki, ekki sízt nú, þegar hann og fleiri góðir menn, sem ég efast ekkert um að vilja bændastéttinni vel, hafa glapizt til þess að flytja frv. og styðja frv. eins og það, sem hér liggur fyrir. Ég vil í fullri vinsemd benda bæði hv. frsm. meiri hl. og þeim öðrum, sem að þessu frv. standa, á það, að ekki er nema mannlegt að gera þá yfirsjón að leggja það bankalega sjónarmið, sem hér kemur fram í frv., til grundvallar, áður en aðrar hliðar málsins hafa verið athugaðar. Enn fremur bendi ég þeim á það, að málið er enn á því stigi, að þeir hafa á því fullkomin tök, ef vilji væri fyrir hendi, að endurskoða afstöðu sína til málsins eftir þær glöggu umr., sem hér hafa fram farið, og væri þá vel, ef þeir vildu taka hið raunverulega sjónarmið bændastéttarinnar til athugunar í þessu máli svo og það, hvað íslenzku þjóðfélagi er fyrir beztu. Ætla ég, að þeir muni, þegar þeir hugleiða þau mál alvarlega, komast að raun um, að íslenzku þjóðfélagi er það meira virði, að íslenzkt land sé brotið til ræktunar, heldur en hitt, að talnadálkar í bönkum og sjóðum, hvort heldur er um að ræða ræktunarsjóðinn sjálfan eða ríkissjóð, séu endilega með þeim hætti, sem yfirmönnum þeirra stofnana þykir ákjósanlegast.