08.12.1955
Neðri deild: 28. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1043 í B-deild Alþingistíðinda. (1064)
118. mál, ný orkuver og orkuveitur
Frsm. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Fjhn. flytur þetta frv. eftir beiðni hæstv. ríkisstj., en það er um breyt. á l. um ný orkuver og nýjar orkuveitur rafmagnsveitna ríkisins. Efni frv. er það að veita heimildir til nýrra framkvæmda á því sviði, eins og segir í fimm fyrstu greinum frv., og 6. gr. er um heimild fyrir ríkisstj. til að taka lán fyrir hönd ríkissjóðs eða ábyrgjast lán, sem rafmagnsveitur ríkisins taka, allt að 130 millj. kr., til greiðslu kostnaðar við þessar framkvæmdir.
Það er stefnt að því og hefur verið unnið að því undanfarið að stækka rafmagnsveitukerfi landsins og orkuveitusvæðin, og eftir að síðast voru sett lög um slíkar framkvæmdir, hefur komið í ljós við athuganir á þessum málum, að þörf sé fyrir nýjar heimildir samkv. því frv., sem hér liggur fyrir.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta mörg orð, en vil vísa til grg., sem frv. fylgir, og vil leggja til, að því verði vísað til 2. umr. að þessari lokinni.