16.12.1955
Efri deild: 30. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í B-deild Alþingistíðinda. (117)
11. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Frsm. minni hl. (Haraldur Guðmundsson):
Herra forseti. Það er fullkomlega rétt, sem hv. frsm. meiri hl. sagði hér áðan, að rökin með og móti söluskattinum eru svo alþekkt, að óþarft er að eyða mjög löngum tíma í að gera grein fyrir þeim. Þau rök, sem fram eru borin fyrir álagningu söluskattsins, eru í fæstum orðum þau, að þörf ríkissjóðs til tekna sé svo mikil, að ekki verði komizt hjá að halda þessum skatti. Ég vil ekki neita því, að eins og nú stendur á, er bersýnilegt, að þörf ríkissjóðs fyrir tekjur er brýnni en hún hefur verið á undanförnum árum. Þá hefði mátt sleppa söluskattinum að miklu leyti án þess að baka sérstaka erfiðleika fyrir ríkissjóðinn, en nú er augljóst, að það mundi baka honum mikla fjárhagslega örðugleika. Það réttlætir þó ekki að halda söluskattinum í því horfi, sem nú er.
Annars staðar, þar sem söluskattur er á lagður, er hann víða mismunandi eftir því, á hverjar vörur hann er lagður. Hann er hærri á vörum, sem eru miður nauðsynlegar, og lægstur á þeim, sem er alveg óhjákvæmilegt að nota. Einnig mun það vera einsdæmi, ætla ég, að á sömu vöruna og það jafnalgenga nauðsynjavöru fyrir allan almenning og brauðvörur skuli skatturinn lagður jafnoft og gert er hér, því að einmitt á slíka vöru, almenn matbrauð, er skatturinn lagður a. m. k. tvisvar sinnum og stundum þrisvar sinnum og getur komizt upp í 12–13%, eins og kunnugt er. Mig furðar á þeim, sem vilja halda þessum tekjustofni fyrir ríkissjóðinn, að gera ekki leiðréttingar á þessu ranglæti, leggja skattinn á aðeins einu sinni og hafa hann nokkuð mismunandi eftir nauðsyn þeirrar vöru, sem skatturinn er á lagður.
Eins og skatturinn er á lagður, er ég algerlega andvígur því, að ríkissjóði sé aflað tekna með þessum hætti.
Gert er ráð fyrir því, að söluskatturinn sjái ríkissjóði fyrir 120 millj. kr. tekjum á næsta ári, og er þar stuðzt við útkomuna á undanförnum tveimur árum og upphæðin ákveðin með hliðsjón af því og þó varlega. En nú er það öllum kunnugt, að verðlag hefur farið og virðist enn fara mjög hækkandi, en með hækkuðu verðlagi á vörum, sem söluskatturinn er lagður á, hlýtur upphæð söluskattsins einnig að hækka. Ég held því, að það sé óhætt að fullyrða, að söluskatturinn muni fara mjög verulega fram úr þeim 120 millj., sem gert er ráð fyrir, ef eitthvert áframhald verður á þeim almennu verðlagshækkunum, sem hafa átt sér stað undanfarna mánuði. Ég tel því, að það sé alveg hættulaust fyrir ríkissjóðinn að taka fjórða hluta af söluskattinum og leggja hann til sveitarfélaganna, eins og gert er ráð fyrir í brtt. mínum á þskj. 211. Ég vil þó ekki fullyrða, að sú hækkun, sem verður á söluskattinum vegna hækkaðs verðlags, svari alveg til þessa fjórða hluta, en það getur ekki orðið það mikið á mununum, að ríkissjóðinn muni þar verulega um, ef svo heldur áfram sem nú horfir.
Með tilliti til þessa hef ég lagt til, þar sem ég þykist sjá, að skatturinn verði framlengdur, að fjórði hluti af honum verði lagður til sveitar- og bæjarfélaga eftir þeim reglum, sem í brtt. segir.
Ég skal einnig minna á í því sambandi, að þó að sú upphæð, sem rynni til sveitarfélaganna með þessum hætti, yrði nokkru meiri en ætla má að skatturinn hækki á næsta ári, þá eru þó allar líkur til þess að ríkissjóður mundi engan halla hafa af því. Ég ætla, að í fjárlfrv. fyrir árið 1956 sé gert ráð fyrir því, að ríkissjóður greiði 12 millj. kr. vegna lána, sem hann hefur ábyrgzt fyrir ýmis sveitar- og bæjarfélög, en í till. er gert ráð fyrir því, að af hluta sveitarfélaganna af söluskattinum mætti taka til greiðslu á þessum lánum, og losnaði þá ríkissjóður væntanlega að fullu við þessar ábyrgðargreiðslur, sem hafa vaxið undanfarið ár frá ári.
Ég hef sem sagt enga von um það, að hv. dm. fallist á að fella þennan skatt niður, en hafði hins vegar leyft mér að vænta þess, að þeir gætu metið réttmæti og nauðsyn þeirra till., sem ég flyt á þskj. 211 um að láta fjórða hluta skattsins renna til sveitarfélaganna þetta eina ár, sem um er að ræða, að hann verði framlengdur.
Um einstök atriði till. sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða. Þær skýra sig sjálfar og hafa enda legið hér fyrr fyrir þessari hv. d. og verið teknar til athugunar þá.
Ég vil því mæla með því, að hv. d. fallist á að samþ. brtt., en sé mér ekki fært að greiða atkvæði með frv., ef þær verða felldar.