01.03.1956
Efri deild: 78. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1087 í B-deild Alþingistíðinda. (1175)

169. mál, vátryggingarsamningar

Frsm. (Jón Kjartansson):

Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa langa framsögu fyrir þessu litla frv. Í 32. gr. bifreiðalaga er ráðherra heimilað að setja gjaldskrá og ákveða gjaldmæla í leigubifreiðar til mannflutninga. Breytingin, sem farið er fram á að gerð verði samkv. þessu litla frv., er sú, að hér verði bætt við að heimila ráðherra einnig að setja gjaldskrá og ákveða að hafa gjaldmæla í sendiferðabifreiðum.

Frv. þetta er flutt samkv. ósk félags sendibifreiðarstjóra hér í bænum, Trausta. Samgmrn. hefur fengið það til athugunar og taldi heppilegt, að þetta yrði sett inn í lög, og mælti með því fyrir sitt leyti, að þetta frv. næði fram að ganga. Ég hef svo ekki meira um þetta að segja og óska, að hv. d. taki þessu máli vel.