06.02.1956
Neðri deild: 63. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1156 í B-deild Alþingistíðinda. (1229)
105. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins
Einar Olgeirsson [frh.]:
Mér þykir mjög fyrir því, að hæstv. landbrh. skuli ekki vera mættur í deildinni, og ég vil yfirleitt leyfa mér að víta þá aðferð, sem hæstv. ráðherrar hafa, að þeir skuli ekki mæta í deildinni til þess að ræða þau mál, sem þeim virðist vera að einhverju leyti áhugamál að nái fram að ganga. Afleiðingin af því, ef hæstv. ráðherrar halda uppi slíkum hætti, verður óhjákvæmilega sú, að þegar það hemur fyrir, að kría sezt á sker eða ráðherra í sinn ráðherrastól, þá neyðast þm. til þess að grípa tækifærið og fara að ræða við þessa ráðherra um mál, sem þeir eru máske margbúnir að ræða í deildinni. Og ég vil segja það, að það fer alveg sérstaklega illa á því, að ráðherrar, sem annars geta varla opnað sinn munn án þess að vera að tala um þingræði og jafnvel lýðræði, skuli leyfa sér að sýna þá ósvinnu, sem þeir sýna í sambandi við sína framkomu hér á Alþingi, að þeir skuli yfirleitt ekki mæta á þingfundum til þess að standa þar fyrir sinu máli. Og ég vil leyfa mér að segja það sama viðvíkjandi starfsemi nefndanna hér í þessari hv. deild. Ég sé, að hv. þm. Dal., sem er frsm. landbn. í þessu máli, er enn ekki mættur, og mun þó flugvélin vera komin til landsins, — eða a.m.k. ef svo væri, að hún væri ekki nema rétt lent, þá hefði það verið athugandi fyrir hæstv. forseta að gefa þessum frsm. hv. landbn., sem nú er búinn að vera fjarverandi allan þann tíma, sem þessi umr. hefur staðið, tækifæri til þess að vera hér viðstaddur og svara til saka. Hann leyfði sér að hafa slík ummæli hér í sambandi við sína framsögu í þessu máli, að það væri viðkunnanlegast, að hann stæði fyrir þeim, því að það er næstum einsdæmi, að þess háttar ummæli hafi verið höfð um starfsmann ríkisins, þegar verið er að ræða um að leggja ákveðna ríkisstofnun niður, svo að ég tali ekki um, hvers konar ósvinna það er þar að auki af honum að hafa þessi ummæli um einn af sinum fremstu flokksbræðrum, enda hef ég tekið eftir því hér í þessari hv. deild, að það hefur ekki einn einasti þm. Framsfl. treyst sér til þess að standa hér upp til þess að verja framkomu þeirra tveggja þm. Framsfl., sem hér hafa talað, hæstv. landbrh. og hv. þm. Dal. Þingmönnum Framsfl, í þessari hv. deild hefur þótt framkoma þessara manna slík, að hún væri gersamlega óverjandi. Þótt skorað hafi verið á þingmenn Framsfl. í þessari d. að tala í þessu máli og reyna að verja þessa flokksbræður sína, sem ekki hafa þorað að sýna sig, þá hafa þeir ekki orðið við slíkum áskorunum, og það er alveg greinilegt, hvað því veldur. Það er ekki annað en það, að þeim finnst, að flokksbræður þeirra hafi orðið sér til skammar, og finnst, að það sé rétt fyrir þá sjálfa að verja sig, en ekki treysta á neina aðra í slíkum efnum.
Þá vil ég enn fremur leyfa mér að taka það fram, að ég hef enn þá ekki fengið skýringu á þeirri stefnu Framsfl., sem virðist koma fram í þessu máli. Framsfl. hefur jafnvel allra flokka ákveðnast tekið hér afstöðu, þegar lagt hefur verið til að leggja niður fyrirtæki eins og skipaútgerð ríkisins. Og ég vil leyfa mér að spyrja hv. framsóknarmenn í þessari deild og þó alveg sérstaklega hæstvirta ráðh., hvaða munur sé á því að leggja niður skipaútgerð ríkisins og að leggja niður grænenmetisverzlun ríkisins, vegna þess að hv. þm. Framsfl. vita, að það er nokkur áhugi hjá þeirra ágæta samstarfsflokki, Sjálfstfl., fyrir því að leggja niður skipaútgerð ríkisins. Ég get ekki skilið það, ef Framsfl. fellst á að samþ. að leggja niður grænmetisverzlun ríkisins, öðruvísi en sem áskorun til þeirra flokka, sem fram að þessu hafa staðið á móti því, að skipaútgerð ríkisins væri lögð niður, að hún eigi að fara sömu leiðina. Og ég vil fá það fram alveg skýrt og ótvírætt, hvort það sé tilgangur Framsfl., að skipaútgerð ríkisins sé lögð niður, og hvort frv. þetta. sem hér er lagt til að samþ., eigi að vera fyrirheit um það og áskorun til Alþfl., Sósfl. og Þjóðvfl. um að leggja niður skipaútgerð ríkisins, og ég vil fá svör við þessu.
Það er vitanlegt, að hvað grænmeti snertir er um það að ræða, hvort eigi að taka tillit til annars vegar neytenda og hins vegar framleiðenda almennt. Það er gert með núverandi grænmetisverzlun ríkisins. Hún er sköpuð til þess að taka tillit annars vegar til neytenda og hins vegar til framleiðenda. Með því frv., sem hér liggur fyrir, er ákveðið í fyrsta lagi að taka grænmetisverzlun ríkisins úr eign ríkisins og fá hana í hendur eins hluta af framleiðendum, nokkurra ákveðinna aðila innan þess hóps, sem eru framleiðendur, ganga þar með í fyrsta lagi á móti hagsmunum allra neytenda í landinu og svipta þá allri aðstöðu til þess að hafa þarna áhrif, ganga í öðru lagi fram hjá hagsmunum helmingsins af öllum framleiðendum í landinu, öllum þeim framleiðendum, sem eru í bæjum og kauptúnum, og það er meira en helmingur af öllum framleiðendum, sem þar er.
Hvernig háttar svo til um skipaútgerð ríkisins. Skipaútgerð ríkisins, eins og við höfum skilið hana sósíalistar og ég býst við Alþýðuflokksmenn líka, hefur verið stofnuð til þess að tryggja hagsmuni neytenda, þeirra sem nota þessi skip, alveg sérstaklega mannanna í dreifbýlinu úti um land, sem þurfa á því að halda að hafa skipasamgöngur og fá ekki almennilegar skipasamgöngur, nema því aðeins að það sé ríkið, sem sjái um þær fyrir þá, vegna þess að þeim félögum, sem fyrst og fremst eru rekin með gróða fyrir augum, hefur ekki þótt borga sig sérstaklega vel að sleikja uppi smáhafnirnar. M.ö.o.: Skipaútgerð ríkisins var sköpuð til þess að þjóna almenningi, þjóna notendum þessara skipa, og þess vegna er það ríkið, sem rekur hana.
Nú eru hins vegar til önnur skipafélög í landinu, það eru til einkaskipaeigendur, alveg elns og það eru til menn, sem framleiða grænmeti og hafa hag af að selja það. Og nú hafa þessir einkaskipaeigendur í landinu farið fram á það og þeirra fulltrúar hér á Alþingi, að skipaútgerð ríkisins væri lögð niður og hennar skipum væri skipt upp á milli þeirra einkaskipafélaga, sem fyrir eru. Framsfl. hefur fram að þessu staðið á móti þessu, og Alþfl. og Sósfl. hafa gert það líka. En þarna hins vegar er um alveg sambærilegt að ræða. Ef það er annars vegar einn lítill hópur af framleiðendum eða einn lítill hópur af eigendum, sem á að fá að ráða hér á Alþingi og fyrirskipa sína hagsmuni í þessum efnum, þá er mjög eðlilegt, að það fari saman, að slíkt gerist á sviði skipaútgerðarinnar eins og á sviði t.d. grænmetisframleiðslunnar, ef það á að fara að verða stefna hér á Alþingi, að einhver eiginhagsmunasamtök nokkurra framleiðenda eða nokkurra eigenda að ákveðnum tækjum eigi að setjast hærra en hagsmunir ríkisins, hagsmunir almennings. Mér þætti þess vegna vænt um að heyra skoðun Framsfl. í þessu efni. Ég býst við, að það væri mikil uppörvun fyrir Sjálfstfl. hér í þinginu, sem fram að þessu hefur barizt mjög skarplega fyrir því að fá skipaútgerðina afnumda, að Framsfl. féllist nú á þetta frv. og gæfi þar með grænt ljós fyrir því að afnema skipaútgerðina líka.
Og ég vil minna á, að eitt af því, sem olli því seinast, að við stóðum skarplega með því að halda skipaútgerð ríkisins, var, að við trúðum þeirri greinargóðu skýrslu, sem kom frá forstjóra skipaútgerðarinnar um, að þetta væri gott fyrirtæki, og studdumst að nokkru leyti þar við okkar eigin reynslu. Nú lýsir Framsfl. því yfir, að ef einn forstjóri eins ríkisfyrirtækis gefi einhverjar slíkar yfirlýsingar og slíkar skýrslur, þá sé það bara ekkert að marka. Ef einhver forstjóri einhvers ríkisfyrirtækis segir, að þetta fyrirtæki sé gott, og segir, að það sé vel rekið, þá er það, eftir því sem hv. þm. Dal. segir, ekkert að marka, því að maðurinn hefur bara hagsmuni af því að viðhalda þessu fyrirtæki og talar þess vegna út frá því, og það nær ekki nokkurri átt að taka neitt mark á því. Þetta voru þau orð, sem hv. þm. Dal. viðhafði um þá skýrslu, sem liggur fyrir frá forstjóra grænmetisverzlunarinnar. Nú hafði ég áður aldrei munað eftir því, að Sjálfstfl. í sinni harðvítugu baráttu fyrir að leggja niður bæði skipaútgerðina og ferðaskrifstofuna hefði nokkurn tíma reynt að gera lítið úr áliti þeirra manna, sem stjórna þessum fyrirtækjum. Þvert á móti, hann hafði eins og við þm. aðrir tekið tillit til þeirra. En fulltrúi Framsfl. í þessum umr., hv. þm. Dal., reynir allt í einu að gera öll slík plögg að engu. Ég vil aðvara Framsfl. um þau vinnubrögð, sem hann hefur í þessu máli, alvarlega. Honum er bezt að sýna ekki neinn ofstopa í sambandi við þessi mál. Það getur þá komið niður á fyrirtækjum, sem hann þykist hafa borið fyrir brjósti fram að þessu. Ég vil minna á, að það liggur hérna fyrir í Alþingi nú í þessari hv. deild frv. viðvíkjandi ferðaskrifstofu ríkisins. Það liggur þar fyrir álit frá forstjóra þeirrar ferðaskrifstofu, og við, sem höfum staðið með ferðaskrifstofunni fram að þessu, höfum álitið það mjög þýðingarmikið atriði, að maður, sem er nákunnugur þessum málum og er búinn að stjórna þessu lengi og vel að okkar álíti, gæfi þarna skýrslu og legði sannanir á borðið, sem við höfum tekið gildar, fyrir því, að þetta væri gott fyrirtæki og vel rekið. Nú lýsir hv. þm. Dal., fulltrúi Framsfl. við þessar umr., því yfir, að ef einhver starfsmaður ríkisins komi með svona yfirlýsingar eins og forstjóri ferðaskrifstofunnar hefur komið með, þá sé það ekkert að marka, maðurinn sé bara að hugsa um að fá að sitja í sínu embætti. Þetta eru þær aðdróttanir, sem hv. þm. Dal. leyfir sér að hafa hér í frammi sem frsm. meiri hl. landbn., og svo skreppur hann af landi burt og stendur ekki enn þá fyrir sínu máli hér í þessari hv. deild. Ég er hræddur um, að það verði að fara að endurskoða alvarlega, hvers konar hvatir það eru eiginlega, sem ráða yfirlýsingum manna, þegar þessi hv. þm. Dal. leyfir sér að koma fram með svona yfirlýsingar. Sjálfstfl. hefur vissulega sótt það af kappi að leggja niður skipaútgerð ríkisins eða leggja niður ferðaskrifstofuna. Þing eftir þing er búið að berjast hérna fyrir þessu. En í öllu sínu kappi hefur Sjálfstfl. aldrei sýnt svona ósvinnu, að leyfa sér að draga í efa svo að segja heiðarleik þeirra starfsmanna, forstöðumanna ríkisfyrirtækja, sem þeir hafa kannske stjórnað í 10–20 ár og alltaf þótt stjórna þeim vei. Þeir hafa aldrei leyft sér að draga slíkt í efa. Ég hef aldrei heyrt frá einum einasta þm. Sjálfstfl. eina einustu aðdróttun, sem eitthvað svipar til þessa, sem hv. þm. Dal. leyfði sér hér að hafa í frammi. Og ég vil nú alvarlega leyfa mér að vona það, fyrst þetta mál er nú tekið á dagskrá hvað eftir annað, meðan frsm. meiri hl. landbn., hv. þm. Dal., er fjarverandi, að mér gefist tækifæri til þess, þegar hann er kominn, að endurtaka allt það, sem ég hef sagt um hann og alla hans framkomu í þessu máli, þó að ég sé búinn að tala nú með þessari ræðu tvisvar í þessu máli hér, og ég vil vonast til þess, að hæstv. forseti láti mig fá ríflegan athugasemdatíma, þegar þar að kemur, þannig að það verði ekki sagt, að ég hafi verið að segja þessi orð hér að hv. þm. Dal. fjarverandi og ekki viljað endurtaka þau í hans nærveru. Þvert á móti væri mér ánægja að því, og ég skyldi ekki draga úr því, sem ég nú hef sagt, þegar hann væri við og hefði möguleika til að bera hönd fyrir höfuð sér.
Ég hef áður tekið það fram, að það er ekki í einu einasta máli, sem Framsfl. hér á Alþingi hefur sýnt einhverjar svipaðar leiðinlegar tilhneigingar eins og í sambandi við þetta mál. Hann hefur sem sé staðið sig vel hvað snertir skipaútgerðina og ferðaskrifstofuna, hvort sem hann ætlar nú að fara að snúast gersamlega í því máli og drepa það hvort tveggja. Í einu einasta máli hefur hann verið eitthvað svipaður því, sem hann er í þessu máli hér, og það er nú satt að segja mál, sem er enn þá alvarlegra, það er í stærsta þjófnaðarmáli, sem komið hefur fyrir á Íslandi í seinni tíð, í sambandi við það, þegar tilraun hefur verið gerð til þess að stela af ríkinu áburðarverksmiðju ríkisins, áburðarverksmiðjunni, stærsta fyrirtækinu, sem ríkið á, fyrirtæki, sem kostaði 130 millj. kr. og samkv. 3. gr. laga um áburðarverksmiðju ríkisins er sjálfseignarstofnun og þar með eign ríkisins. Það hefur verið gerð tilraun til þess alveg sérstaklega af hálfu ráðherra Framsfl. að gera þetta fyrirtæki að eign eins hlutafélags með nokkrum yfirlýsingum úr ráðherrastóli, sem hafa enga stoð í lögum og þar að auki stangast algerlega á við yfirlýsingu, sem hefur verið gefin úr forsetastóli af hæstv. forseta sameinaðs Alþingis í sambandi við kosningu í stjórn þeirrar verksmiðju, að þetta fyrirtæki væri fyrirtæki ríkisins, væri eign ríkisins.
Það liggur nú fyrir þessari hv. deild frv. frá mér, sem flutt hefur verið á nokkrum þingum, um að leiðrétta þennan hlut og gera það ótvírætt, að áburðarverksmiðjan sé eign ríkisins, og ég vonast til þess, að þess verði ekki langt að biða, að það frv. komi úr þeirri nefnd, sem það er í, og þá gefst okkur tækifæri til að sjá, hvort ekki sé mögulegt að bjarga því við og tryggja það, að ríkið eigi áburðarverksmiðjuna áfram. Og ef það yrði nú samþykkt hér á þessu þingi að gera það alveg ótvirætt, þá held ég, að það væri mjög í mótsetningu við allt, sem meiri hl. hér á þingi hefur viljað fram að þessu, að fara nú að taka grænmetisverzlun ríkisins úr eign ríkisins og selja hana einhverjum mönnum eða gefa, sem enn þá er ekki einu sinni alveg ljóst, hvernig megi eiga hana, ettir þessu frv., sem hér liggur fyrir. Jafnframt vil ég benda á það í sambandi við þessi mál, að það hefur komið fyrir, að flokkar, sem nú ráða, hafa stundum minnzt á dálítið, sem þeir að vísu öðru hverju eru feimnir við, en heitir frjáls verzlun. Þeir hafa minnzt á, að það eigi helzt að vera frjáls verzlun í ríkinu, og hafa hins vegar, ef það hefur verið óhjákvæmilegt að hafa einkasölu á einhverjum hlut, álitið, að það væri þá rétt, að það væri ríkið, sem hefði slíkt, en ekki einstakir aðilar.
Hver er nú sú braut, sem hins vegar er farið inn á með því að leggja niður grænmetisverzlun ríkisins og fela ákveðnum hagsmunasamtökum eins hluta af framleiðendum að eiga að fara með hana? Jú, það væri nokkurn veginn samsvarandi, ef bændurnir og þeirra samtök, framleiðsluráð landbúnaðarins, fulltrúar tæps helmings af kartöfluframleiðendum í landinu, aðilar, sem hafa vissa hagsmuni jafnvel á móti neytendunum í landinu, ættu samkv. þessu frv., sem hér liggur fyrir, að fá einkarétt á að flytja inn kartöflur til landsins, eða væri kannske rétt að orða það þannig: einkarétt á því að hindra, að það yrðu fluttar inn kartöflur til landsins, eins og að Álafossi og Gefjuni eða einhverjum þeim, sem framleiða föt í landinu, væri gefinn einkaréttur á því að flytja inn öll föt til landsins. Og mér fyndist það ákaflega eðlilegt, að framleiðendur fata hér á Íslandi, Álafoss og Gefjun, færu fram á það þá næst, að það væri ekki lengur látin haldast uppi önnur eins ósvinna og það, að verið væri að flytja hér inn föt, sem jafnvel kepptu við þessi innlendu föt, heldur að þessar verksmiðjur fengju þá einkaleyfi á því að flytja inn föt og flyttu inn föt, þegar þeim þætti það eðlilegt. Þetta væri nákvæmlega samsvarandi, þ.e. að gefa einstökum aðilum, nokkrum hluta af framleiðendum, rétt á því að hafa einkasölu á þessum hlutum. Þessu væri þá í fyrsta lagi beint gegn neytendum í landinu. Þó væri þetta ekki eiginlega að öllu leyti alveg samsvarandi, því að ef Álafoss og Gefjun og aðrar klæðaverksmiðjur hérna — þær munu nú vera einhverjar fleiri — fengju þessa einokun á innflutningi klæðnaðar, þá væri það nokkuð samsvarandi því og að bæði framleiðsluráð landbúnaðarins og samtök kartöfluframleiðenda í kaupstöðunum fengju einkasölu. En nú er tilgangurinn með þessum till. hér, að það sé aðeins tæpur helmingurinn af framleiðendum, sem fengi slík einkaréttindi. Það samsvaraði kannske því, að t.d. Álafoss fengi slík einkaréttindi, en Gefjun og einhverjir fleiri væru þar algerlega skildir út undan, og ég veit ekki, hvernig Framsfl. litist á það. Hann er kannske farinn að hafa svo mikinn áhuga fyrir einkasölum handa einstökum framleiðendum, að honum litist vel á slíkt. En það er brautin, sem farið er inn á með þessu frv., að gefa einstökum hagsmunahópum einkasöluaðstöðu í landinu, í fyrsta lagi gagnvart notendum í landinu, í öðru lagi til þess að flytja inn, þegar þess þarf með.
Það var einu sinni um það talað, að það væri eitthvað til, sem héti samvinnuhreyfing á Íslandi, og að þessi samvinnuhreyfing ætti að vera hreyfing neytenda, hún ætti að vera hreyfing þeirra, sem gjarnan vildu kaupa vörur ódýrt og hafa frelsi til að kaupa vörur. Mér er spurn: Var ekki Framsfl. einhvern tíma í fyrndinni eitthvað riðinn við samvinnuhreyfinguna? Það er kannske orðið mjög langt síðan. En ég hélt hálfpartinn, að hann hefði einu sinni haft það á stefnuskrá sinni, að neytendur ættu að hafa vissan rétt í sambandi við að fá að kaupa vörur. Ég veit ekki, hvort hann er búinn að strika þetta út. Hann er kannske ekki búinn að strika það út af stefnuskránni, en hann er e.t.v. að strika það út í reyndinni og þykir núna réttara að fara að gefa sig að því, að ákveðnir hagsmunahópar framleiðenda skuli hafa allt vald neytenda í sínum höndum. Ef svo kynni að hafa farið á einhverjum sviðum, að meira að segja ríkið ætti að reyna að jafna þar metin á milli notenda og framleiðenda og taka tillit til beggja, þá ætti meira að segja að afnema slíkar ríkiseinkasölur og gefa ákveðnum hagsmunahópum einkaréttinn á slíku. Ég skal viðurkenna það, að svona framkvæmd hefur viðgengizt á vissum sviðum undanfarið, t.d. hvað útflutninginn snertir. Það er vitanlegt, að fyrir 20 árum höfðu Kveldúlfur og Alliance alveg sérstakan áhuga á því að fá einkasölu á öllum útflutningi á íslenzkum saltfiski. Og Ólafur Thors, sem fyrir 23 árum varð ráðherra í fyrsta skipti, veitti þeim með stjórnarráðstöfun slíka einokun. Mér hefur hins vegar fundizt Framsfl. alltaf vera frekar andvígur þessari einokun, og það hefur ekki vantað, að hann hafi hvað eftir annað ýmist flutt tillögur eða talað á móti þeim hér í þinginu. En nú virðist sem hann sé að verða slíkum einokunum hlynntur. Ég held, að það væri gott, að hann upplýsti okkur um sína stefnu í þessu, og alveg sérstaklega vildi ég í því sambandi leyfa mér að spyrja hann að því, af því að hann hefur stundum verið að heimta frelsi á þessu sviði viðvíkjandi útflutningnum, hvort þetta frv., sem hérna liggur fyrir, sé eitt af því, sem eigi að marka hans stefnu hvað frelsi snertir.
Ef til vill er þessi till. um að leggja niður grænmetiseinkasöluna og fá hana í hendur ákveðnum einstökum hagsmunahópi líka ein af þessum yfirlýsingum Framsfl. um, að hann hafi svo mikla ást á lýðræði og á umbótum. Hann hefur talað nokkuð mikið um það, a.m.k. ef hann kemst í útvarp, að hann vilji reka hér lýðræðissinnaða endurbótastarfsemi, og mér þætti ákaflega gaman að heyra, ekki sízt frá þeim mönnum af hálfu Alþfl., sem hafa verið að tala við hann undanfarið, hvort það sé einn þátturinn í hinni lýðræðissinnuðu endurbótasamvinnu, sem þessir flokkar hafi hugsað sér, að það eigi að leggja niður stofnanir ríkisins, byrja á grænmetisverzlun ríkisins, taka svo skipaútgerð ríkisins, taka svo ferðaskrifstofu ríkisins og vafalaust halda svona áfram með tóbakseinkasöluna og líklega brennivínseinkasöluna líka og fá þetta í hendur ákveðnum hagsmunahópum. Það væri fróðlegt að vita, hvort þetta væri lýðræðið, sem Framsfl. stefnir að í þessum efnum, að það ætti sem sé að svipta Alþingi og ríkið möguleikanum til þess að gera ráðstafanir neytendum almennt í hag með sinni starfsemi, og hvort ætti að ofurselja neytendur einstökum einokunarhringum, hvort það sé lýðræðið, sem Framsfl. hugsar sér, og hvort það séu svo hins vegar endurbæturnar, að ríkisfyrirtæki, sem búið sé að reka í 20 ár, ríkisfyrirtæki, sem sett hafa verið á í harðvitugri baráttu við íhaldið, ríkisfyrirtæki, sem mönnum hafi þótt vera rekin vel, skuli lögð niður og einstökum hagsmunahópum, sem þá íhaldið mundi líklega leggja sína blessun yfir, væri fengin sú valdaaðstaða í hendur, sem ríkið hefur haft fram að þessu. Það væri fróðlegt að fá að vita um þessa stefnu.
Það hefur orðið lítið um varnir af hálfu ráðherra Framsfl. í þessum efnum. Einn ráðherra, hæstv. landbrh., talaði hér einu sinni í þessu máli. Hann kom með nokkur fúkyrði, hafði alls konar ósvífni hér í frammi. Og hann hefur ekki sýnt sig í þinginu síðan, þegar þetta mál hefur verið rætt. Ég veit ekki, hvort hæstv. ráðh. hefur skammazt sín. Ef svo væri, þá væri það mikil framför. Þá virtist það benda til þess, að hæstv. ráðherrar Framsfl. væru ofur lítið að byrja að átta sig á því, hvers konar hneykslismál þetta er, sem þeir leggja hérna fyrir, og hve hneykslanleg þeirra framkoma er í þessu sambandi. Og mér finnst nú orðin nokkuð aum aðstaðan hjá hv. Framsfl., ef hann ætlar alveg að gefast upp við að reyna að færa rök fyrir þessu máli sínu, reyna að verja þetta, ef það er sem sé orðið svo, að í sambandi við þetta mál er ekki um neitt annað að ræða en baktjaldamakk, sem ákveðið hefur verið, eins konar samsæri, sem gert hefur verið, í fyrsta lagi gegn öllum neytendum í landinu, í öðru lagi gagnvart helmingnum af framleiðendunum í landinu, þeim framleiðendum, sem búa í kaupstöðunum, og menn treysti sér ekki til þess að verja þetta hér á Alþingi. Það, að menn koma hér upp einu sinni, beita fúkyrðum og flýja svo af hólmi, bendir helzt til þess, að menn hafi ekki rétt góða trú á sínum málstað, menn treysti sér ekki til þess að standa frammi fyrir Alþingi og verja hann.
Hvað er svo um undirbúning þessa máls? Þegar hæstv. landbrh. kom hér í stólinn í það eina skipti, sem hann hefur hætt sér upp í hann í sambandi við þetta mál, sagðist hann ætla að tala um undirbúning þessa máls. Hann hætti hins vegar við í sinni ræðu að tala um undirbúning þessa máls. Hann kom ekki með kartöflubiblíuna hérna, hann kom ekki með doðrantinn, því síður að hann segði okkur, hvað hann hefði kostað. Hann skýrði ekki frá, hvernig þessi undirbúningur hefði farið fram, því síður að hann léti prenta upp allan þennan að hans áliti vafalaust stórmerkilega undirbúning og útbýta sem þingskjali á meðal þingmanna til þess að reyna að sannfæra þá um með röksemdunum úr þeim stóra doðranti, hvernig unnið hefði verið að þessu máli. Mér er spurn: Af hverju hefur hæstv. ráðh. ekki lagt fram þessar undirbúningsrannsóknir? Af hverju hefur hann ekki einu sinni látið hv. landbn. í té þessa rannsókn og undirbúning? Af hverju er farið með það eins og eitthvert leyniplagg, sem á að vera aðalröksemd fyrir þessu máli? Af hverju fá menn helzt ekki að sjá það? Er hæstv. ráðh. svona hræddur um það sjálfur, að undirbúningurinn sé ekki eins góður og eðlilegur og hann vill láta þingmenn halda? Er hann hræddur um, ef allur undirbúningurinn yrði tekinn í gegn, að það kæmi í ljós í fyrsta lagi, að þarna væri nokkuð mikið um mjög vafasama röksemdafærslu að ræða, svo að ekki sé sterkar að orði kveðið, en þó hins vegar alveg sérstaklega, að það kæmi greinilega fram, að allur undirbúningurinn væri gerður frá einu sjónarmiði, því sjónarmiði að þjóna ákveðnum hóp af framleiðendum, ákveðnum hagsmunasamtökum framleiðenda? Er hann hræddur um, að það kæmi fram í þessari bók, að það væri yfirleitt ekki minnzt á neytendur og þeirra hagsmuni, að notendur kartaflna og annars grænmetis á Íslandi væru ekki til í hugarheimi þeirra manna, sem hafa hugsað um þetta, og því síður tekið tillit til þess hluta framleiðendanna, sem samkv. síðustu skýrslum frá hagstofunni er meiri hluti framleiðendanna, kartöfluframleiðendanna í kaupstöðunum? Það getur nú verið, þó að hæstv. ráðh. hafi ekki séð ástæðu til þess að leggja þetta plagg fram hér í þinginu, að þetta plagg komi hér fram engu að siður og þingmenn verði nokkuð um það upplýstir, hvernig það plagg er.
Ég er hræddur um, að það hafi verið unnið þannig í þessu máli, að það hafi verið hafður í frammi áróður af hálfu ákveðinna aðila, sem hér hafa sérstakra hagsmuna að gæta, áróður í framleiðsluráði landbúnaðarins og í Stéttarsambandi bænda eða á þess þingum til þess að smeygja þar í gegn þeim samþykktum, sem hæstv. ráðh. nú svo vitnar í, að bændur hafi svo mikinn áhuga fyrir að fá þetta í sínar hendur. Þetta hefur aldrei komið fram hjá bændum sjálfum. Og allir þeir kaupfélagsstjórar víðs vegar að af landinu, úr öllum fjórðungum landsins, sem við erum búnir að lesa upp vitnisburði frá hér, hafa aldrei orðið varir við neinn áhuga hjá bændum fyrir þessari séreinkasölu, þessari grænmetisverzlun landbúnaðarins. Það skyldi þó aldrei vera, að ákveðinn hagsmunahópur hér úr Reykjavík hafi unnið að því að fá í gegn samþykktir hjá framleiðsluráði landbúnaðarins og Stéttarsambandi Lænda á þess þingum um að krefjast þessara hluta, og svo sé þessum samþykktum veifað hér framan í okkur, án þess að nokkur áhugi sé fyrir þessum málum hjá bændum? Ég er hræddur um það, ef það yrði farið að taka stóra plaggið hérna fyrir, að það komi nokkuð viða í ljós í því, að þeir, sem hafa aðaláhugann í þessu máli, séu að kvarta yfir því, að framleiðendur hafi alls ekki bundizt samtökum, kartöfluframleiðendur og slíkir hafi því miður ekki bundizt samtökum og látið til sín heyra, m.ö.o., það, sem á bak við þetta liggur, sé það, að ákveðnir menn, sem hér hafa sérstakra hagsmuna að gæta, hafi farið að beita sér fyrir því að reyna að fá samtök benda út í að heimta þessa einkasölu til han3a framleiðsluráði landbúnaðarins, þannig að það sé sprottið upp af sérstökum hagsmunahópum að reyna þannig að skapa þessa einkasölu handa Stéttarsambandinu og framleiðsluráðinu, þvert ofan í hagsmuni allra þeirra manna um allt land, sem annars vegar neyta kartaflnanna, og hins vegar allra þeirra í kaupstöðum og kauptúnum, sem framleiða kartöflur og eiga að vera útilokaðir frá öllum áhrifum með samþykkt þessa frv. Og kannske ég megi þá bregða upp áframhaldsmyndinni, sem þessir menn máske mundu reyna að knýja fram, ef svo færi sem farið hefur á sumum öðrum sviðum?
Við skulum hugsa okkur, að nú verði grænmetisverzlun landbúnaðarins sett á stofn, sérréttindi fyrir Stéttarsamband bænda og framleiðsluráð landbúnaðarins, að þeir svo að segja skuli framleiða og ráða sölu og verði á kartöflum og öðrum slíkum afurðum, þó að þeir séu minni hluti þeirra manna, sem framleiða kartöflur á Íslandi. Ég gæti trúað, að næsta ákvörðunin yrði sú, að Stéttarsamband bænda og framleiðsluráð landbúnaðarins, sem sæju fram á, að meiri hluti kartöfluframleiðenda væri í kaupstöðum, færu að segja: Ja, þessi ósvífna samkeppni, sem ákveðnir menn, sem eru að rækta kartöflur í kaupstöðum, hafa í franuni og selja jafnvel utan við grænmetisverzlun ríkisins kartöflur, getur bara ekki gengið. — Mönnum finnst kannske hjákátlegt að láta sér detta slíkt í hug. En má ég spyrja: Var ekki einn sinni mjólkurframleiðsla hérna í nágrenni Reykjavíkur, sem viss samtök fóru að líta illu auga? Og skyldi það nú ekki eins geta komið fyrir, að það yrði farið að gera ráðstafanir til þess að leggja niður kartöfluframleiðslu í sambandi við kaupstaðina, m.a. vegna þess, að í sumum árum, eins og 1953, hafi það sýnt sig, að kartöfluframleiðslan í landinu hafi verið allt of mikil, skapa síðan fyrir þessa einkasölu, sem þarna er verið að koma upp, sérréttindi til þess að rækta kartöflur á Íslandi? Og svo þegar væri búið að skapa sérréttindi til þess að rækta kartöflur á Íslandi, hvað væri þá næsta stigið? Það væri líklega, að þessi sama einkasala heimtaði að flytja kartöflur út og af því að þær kartöflur gætu ekki keppt við kartöfiur erlendis, þá yrði auðvitað að styrkja þennan útflutning. Það var verið að samþykkja 15 millj. í slíka styrki núna nýlega viðvíkjandi landbúnaðarvörum, og það gæti orðið eitthvað meira, þegar kartöflurnar væru komnar inn í þetta.
M.ö.o.: Ef farið er út á þessa braut, sem hér er lagt til að fara út á, þá er ómögulegt að sjá, hvar það endar. Sá yfirgangur og sú frekja, sem kemur fram í þessu frumvarpi, er slík, að þetta frv. á að stöðva nú þegar. Þetta frv. er ósvífni, í fyrsta lagi gagnvart öllum neytendum í landinu, í öðru lagi gagnvart meiri hluta framleiðenda á kartöflum í landinu, og meiri hluti þeirra framleiðenda er í kaupstöðunum. Um það liggur skýrsla fyrir, prentuð með nál. minni hl. landbn., fylgiskjal I, skýrsla Hagstofu Íslands. Og hvað sagði hæstv. landbrh., þegar hann talaði um þessa skýrslu? Ja, hann bara dró í efa, að hún væri rétt. Hann leyfði sér að efast um það, að Hagstofa Íslands byggi yfirleitt til réttar skýrslur um svona hlut. Ef óvefengjanlegar hagskýrslur passa ekki í kram þessa landbrh. Framsfl., þá segir hann bara: Hagskýrslur eru vitlausar.
Ég vil þess vegna eindregið leyfa mér að vonast til þess, að hv. þingdeild verði sammála um að víkja þessu máli frá, og jafnframt vil ég leyfa mér að vona, að það gefist tækifæri til þess að tala betur við þá einu menn, sem reynt hafa að halda uppi einhverri málsvörn fyrir þessu hneykslismáli, hæstv. landbrh. og hv. þm. Dal., frsm. meiri hl. landbn., þegar þeir á annað borð sýna sig hér í deildinni.