01.03.1956
Efri deild: 78. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 1261 í B-deild Alþingistíðinda. (1258)

105. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins

Frsm. meiri hl. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir og er breyt. á lögunum um framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu, verðmiðlun og sölu á landbúnaðarvörum o.fl., er flutt inn í þingið eftir ósk landbrh., sem varð við óskum bændasamtakanna í landinu, er einróma báðu um, að það yrði gert að lögum.

Eins og hv. alþm. vita, eru lögin um framleiðsluráð landbúnaðarins lög, sem gefa sérstöku ráði, framleiðsluráði landbúnaðarins, sem kosið er af framleiðendunum sjálfum, visst vald til þess að sjá um dreifingu á vörunum og hafa eftirlit og umsjón með sölu þeirra í landinu og úr landinu. Þetta hefur eingöngu náð yfir kjöt og mjólk og ekki náð enn þá til annarra vara, en er með þessu frv., sem nú liggur hér fyrir og flutt er sem brtt. við eldri lögin, líka látið ná til garðmatar og eggja.

Við vitum allir, hvernig þessu hefur verið háttað. Því hefur verið háttað þannig, að sauðfénu er slátrað víðs vegar um landið og framleiðsluráðið hefur vald til þess að ráða, hverjir slátra og hve miklu hver, þegar þeir annars hafa uppfyllt þau lagaákvæði, sem ákveða, hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar, til þess að það sé hægt að slátra. Gildir þetta um húsið og aðbúnað allan og annað þess háttar. Það er svo verksvið framleiðsluráðsins að sjá um, að þetta kjöt dreifist sem jafnast um landið, vanti hvergi, flytjist á milli staða, og það er yfirleitt selt af sláturleyfishöfunum, sem selja það ýmist í smásölu eða heildsölu, en fer svo aftur til neytenda úr smásölunni, þar sem sláturleyfishafi er ekki jafnframt smásali, eins og er á ýmsum stöðum úti um landið.

Með mjólkina hefur þetta verið nokkuð öðruvísi. Þar hafa staðið að sérstök samtök bændanna, sem hafa reist upp mjólkurstöðvar, rjómabú eða mjólkursamsölur, eins og það hefur verið kallað, og þangað hefur safnazt mjólkin frá félagsmönnunum, bændunum, af stærri svæðum, ýmist verið send þaðan sem neyzlumjólk út í smásöluna, búðirnar, og fer þaðan til neytenda, eða þá unnið úr henni og þær afurðir svo farið í smásöluna. Líka þarna hefur framleiðsluráðið vald til þess að hlutast til um, að dreifingin gangi sem jafnast yfir, taka á móti verðjöfnunargjaldinu af mjólkinni, eftir því sem það er ákveðið á hverjum tíma, og verðbæta vinnsluvörurnar, þar sem aðstaðan er að einhverju leyti verri og það þykir rétt að gera, eftir þeim reglum, sem um það hafa gilt.

Ég held, að mönnum beri yfirleitt saman um það nú orðið, að þetta skipulag á þessum málum hafi reynzt allsæmilega og sé ekki bein ástæða til að breyta því. Nú er því bætt við, að inn í þetta skipulag eru teknir garðávextirnir. Og það er ætlazt til þess, að það sé líkt með þá eins og mjólkina, en þó er sá munur á, að sérstakur félagsskapur garðræktarframleiðenda, eins og var til viðvíkjandi mjólkinni áður en lögin þar um voru sett, þau sem nú gilda, framleiðsluráðslögin, hefur ekki verið og er ekki til um garðávextina. Þess vegna er gert ráð fyrir því í lögunum, að framleiðsluráðið geti komið þarna inn og orðið viðtakandi og séð um heildsöluna. Annar munur er þar eiginlega ekki á því skipulagi, sem nú ríkir með mjólkina. Og þá er ætlazt til þess, að það eins og með kjötið og mjólkina hlutist til um, að dreifingin verði sem jöfnust og menn geti haft sem mest upp úr sínum vörum, án þess þó að þær þurfi að hækka í verði til neytendanna. Það hefur sýnt sig með kjötið og mjólkina, að það er þvert á móti, skipulagið hefur á báðum stöðum látið vöruna lækka til neytendanna, og það er ákaflega mikil von í því, að ef kemur upp svipaður félagsskapur utan um garðræktina og er nú til staðar nm mjólkina, þá getur það a.m.k. farið á sama veg og jafnvel þótt því sé ekki til að dreifa.

Þá er í þriðja lagi ætlazt til þess, að fjórða varan geti komið þarna inn, þ.e. eggin. Það voru um nokkurt áraskeið dálítið sterk samtök eggjaframleiðenda, sem þó náðu ekki þá nema tiltölulega lítið út fyrir Reykjavík, og voru þau samtök búin að skapa sér aðstöðu með því að fá leigt húsnæði hjá Sláturfélagi Suðurlands til að geta geymt egg, þegar mikið var framleitt af þeim, geymt þau við skilyrði, sem voru sæmilega viðunandi, og dreift þeim aftur út, þegar minna var til af þeim eða kannske alveg vöntun á þeim í landinu. Þessari aðstöðu tapaði félagið, það gat ekki haldið því húsnæði, sem það hafði inn frá, það missti það húsnæði, og núna síðustu árin hefur félagið þess vegna verið mikið til nafnið. Nú er ætlazt til þess, að eggjaframleiðslan komist undir þessi lög, og mun framleiðsluráð landbúnaðarins reyna að skipuleggja sölu á þeirri vöru á svipaðan hátt og gert hefur verið með hinar vörurnar. Ég geri ráð fyrir, að það taki nokkurn tíma, að það geti komizt í það horf, sem æskilegast væri, eins og það líka reyndar gerði bæði með mjólkina og kjötið. En það er skapaður þarna rammi og möguleikar til þess, að það geti orðið.

Þá er tekið inn í lögin ákvæði um það, að Sölufélag garðyrkjumanna, sem aðallega er sölufélag þeirra manna, sem rækta garðmat í gróðurhúsum eða við jarðhita, þó að kunni að vera í því einhverjir fleiri, en þeir eru ekki margir, og hefur þegar með sér sterkan félagsskap, — þessi félagsskapur hefur byggt allgott hús fyrir sína starfsemi, þar sem það hefur ágæta aðstöðu til að geta geymt vörurnar, þegar mikið kemur af þeim, og miðlað þeim aftur út, þegar lítið er af þeim, og hér á landi er ekki tíminn langur, sem vörurnar eru ræktaðar og þær eru til nýjar úr garðinum, — það er gert ráð fyrir því, að þetta félag geti komið inn sem sjálfstæður aðili og viðhaldið þess vegna sínu heildsölukerfi og dreifingarkerfi, líkt og það gerir nú og eins og Sláturfélag Suðurlands til dæmis hefur alltaf gert í kjötskipulaginu og yfirleitt allir sláturleyfishafar, og þess vegna verði sú breyting, sem þarna verður á, í raun og veru engin, því að þar er skipulagið hvað ylræktargarðmatinn snertir í raun og veru þegar til. Það mun ekki vera núna nema milli 4 og 6% af þeim vörum, sem framleiddar eru og seldar á markaðinum, frá þessum mönnum, sem rækta sinn garðmat í gróðurhúsum eða við yl, sem ekki fer í gegnum hendurnar á Sölufélagi garðyrkjumanna. Þess vegna er það, að breytingin, sem þarna verður, er engin önnur en sú, að það er tekið inn sem aðili, sem sjálfsagt er, til þess að það geti haldið þeirri aðstöðu, sem það þegar hefur skapað sér og mundi halda, hvort sem lögin væru sett eða ekki.

Ég skal taka það fram, að þetta fyrirkomulag, sem hér er gert ráð fyrir, og sú athugun, sem liggur á bak við þetta frv., er ekki nema að nokkru leyti komin fram, þó að það sé samþ. Það á sjálfsagt nokkuð langt í land, að eggjaframleiðendur sameini sig og geti orðið aðili að þessu án þess að þurfa að nota sjálft framleiðsluráðið sem heildsala, sem æskilegast væri að þyrfti ekki, líkt og Sölufélag garðyrkjumanna núna, heldur hefðu þeir sína eigin stöð. Og eins get ég búizt við að sé með garðmatinn, sem ræktaður er í kaldri jörð um landið. Það eru ekki enn komin á samtök framleiðenda á svipaðan hátt og með hinar vörurnar. Þess vegna lít ég nú á þetta frv. meira sem ramma, sem eigi eftir að byggja meira út í, en það verður gert, að ég vona, í tiltölulega skammri framtið, kannske eftir 2–5 ár. Og það vil ég benda á, að þegar bæði voru sett lög til að reyna að koma skipulagi á kjötsölu og mjólkursölu, þá voru þau lög í byrjuninni ekkert annað en rammi, því að þeim var breytt hvað eftir annað, þangað til þau voru komin í þann búnað, sem þau núna eru komin í í framkvæmd. (Gripið fram í: Og mætti bæta þau enn.) Já, vel trúlegt, að mætti bæta þau enn. Þess vegna held ég, að það, sem hér er ætlazt til að gera, sé nokkurs konar stefnuyfirlýsing, sem þingið tekur með því að samþ. það, stefnuyfirlýsing, sem á að miða að því að reyna að gera hvort tveggja, tryggja sem bezt gæði vörunnar og tryggja sem hæst verð til framleiðenda og þó líka sem lægst verð til neytenda með því að hafa dreifingarkostnaðinn sem minnstan. Það er sú stefnuyfirlýsing, sem ég meina með samþykkt laganna, og svo fáum við að sjá, sem lifum það og verðum á þingi eftir 2–3 ár, kannske eftir lengri tíma, hvernig við getum þá lagað lögin eftir þróuninni, sem orðið hefur, og látið þau koma að fyllra og betra gagni en þau geta nú.

Ég skal svo að endingu geta þess, að bæði Stéttarsamband bænda hefur á öllum fundum sínum frá 1948 og til fundarins í sumar samþ. áskorun um að reyna að koma svona skipulagi á og búnaðarþingið hefur gert það sama nokkrum sinnum. Það hefur ekki verið eins þrautseigt að endurtaka þing eftir þing sömu till. og Stéttarsambandið, en það er nú alveg nýbúið að endurtaka svona áskorun, fyrir viku eða eitthvað svoleiðis, 5, 6, 7 dögum, alveg nýlega, svo að það liggur fyrir ótvíræður vilji bændanna í þessu efni. Aftur á móti er ekki hægt að segja það sama um neytendurna. Það hafa komið mótmæli móti þessu frv. frá neytendasamtökunum hér í Reykjavík, og lítur út fyrir, að þeir óttist, að með þessu muni vörurnar hækka. Ég held, að sá ótti sé gersamlega ástæðulaus. Það er ekki heldur reynt að rökstyðja það í þeim mótmælum, sem mér hafa borizt frá þeim eða réttara sagt til n. í Nd. En af þeim verður séð, að hann er til staðar.

Í því sambandi vil ég benda á tvennt. Í fyrsta lagi er það, að það er gert ráð fyrir því í lögunum, að hægt sé að koma á mati á garðmat, sem seldur er, en slíkt mat hefur ekki verið til nema á kartöflum. Ef það væri hægt að koma á mati á garðmat og verðskrá hann líkt og ýmsar aðrar vörur, þá teldi ég það vera ákaflega mikilsvert fyrir neytendur. Það er ekki því að leyna, að maður verður fyrir því oft og mörgum sinnum að kaupa gulrófur t.d., sem eru meira og minna skemmdar og mundu vera „kasseraðar“ í mati alveg viðstöðulaust, ef það væri komið. Á sama hátt kaupir maður stundum káltegundir. Sem sagt er ég ákaflega hræddur um, að það sé mjög mikilsverð sú heimild, sem kemur hér inn í lögin og verður að fara saman við skrásetninguna, því að það er ekki hægt að hugsa sér að skrásetja t.d. verð á ákveðinni vöru, t.d. hvítkáli eða einhverri vöru, nema það sé jafnframt 1., 2. og 3. flokkur og misjafnt verð á því. En líka það þarf áreiðanlega sinn tíma til að þróast og komast í það eðlilega horf, sem það á að komast í. Sá rammi er skapaður með lögunum. Það er heimilt að taka upp verðlagningu á því, og það er heimilt að taka upp mat á því. En það verður að fylgjast að og ef það kemst í framkvæmd og fylgist að, þá tel ég það stórkostlegan ávinning fyrir neytendurna, sem þeir hafa alls ekki hugsað út í eða gert sér grein fyrir, þegar þeir voru að andmæla því. Ég held þeir hefðu ekki gert það, ef þeir hefðu hugsað út í það.

Við fjórir nefndarmennirnir erum sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt, en eins og ég hef látið skína í, þá tel ég og ég held við allir, að það hljóti eftir tiltölulega skamman tíma, fá ár, að þurfa að endurskoða það, þegar séð er betur, hvernig sú þróun verður, sem hlýtur að skapast, eftir að frv. er orðið að lögum, og reyndar hefði átt að vera búið að skapa áður. En það gengur nú svona, það hefur allt sinn tíma, og maður ríður ekki ævinlega á stökki, þó að maður sé á ferðalagi.